Fara í efni

Samráðsgátt. Grænbók, stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga

Málsnúmer 202607037

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 194. fundur - 14.07.2026

Fyrir liggur erindi frá innviðaráðuneytinu, dagsett 6. júlí 2026, þar sem óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélaginu við gerð grænbókar í vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að taka saman upplýsingar frá sveitarfélaginu til innviðaráðuneytisins vegna verkefnisins, og leggja aftur fyrir byggðaráð.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Byggðaráð Múlaþings - 198. fundur - 01.09.2026

Fyrir liggja drög að svörum sveitarfélagsins til innviðaráðuneytisins vegna grænbókar þar sem unnið er að endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi drög að svörum sveitarfélagsins til innviðaráðuneytisins vegna grænbókar og vísar þeim til staðfestingar hjá sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Sveitarstjórn Múlaþings - 71. fundur - 09.09.2026

Fyrir liggja drög að svörum sveitarfélagsins til innviðaráðuneytisins vegna grænbókar þar sem unnið er að endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga. Drögin voru samþykkt í byggðaráði Múlaþings 1. september 2026 sem vísaði þeim til staðfestingar hjá sveitarstjórn.
Til máls tók: Berglind Harpa Svavarsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi svör sveitarfélagsins til innviðaráðuneytisins vegna grænbókar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?