Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

161. fundur 09. júní 2026 kl. 12:00 - 14:15 í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Einar Freyr Guðmundsson varaformaður
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Guðgeir Einarsson aðalmaður
  • Erlingur Hjörvar Guðjónsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Sigríður Lára Sigurjónsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
  • Ingibjörg Jónsdóttir fundarritari
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri velferðar á fjölskyldusviði
Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri sat liði 1-4

1.Erindisbréf nefnda

Málsnúmer 202206247Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindisbréf fyrir fjölskylduráð Múlaþings.
Lagt fram til kynningar.

2.Siðareglur kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 202605238Vakta málsnúmer

Fyrir liggja siðareglur kjörinna fulltrúa í Múlaþingi.
Lagt fram til kynningar.

3.Málefni fjölskylduráðs, framkvæmd og skipulag funda

Málsnúmer 202606037Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að fundarskipulagi fjölskylduráðs.
Eftirfarandi tillaga er lögð fram: Fjölskylduráð fundar þrisvar í mánuði. Fastur fundartími verður að jafnaði á mánudögum kl. 09:00-12:00. Í meginatriðum er gert ráð fyrir að hver fundur fjalli um einn af þeim málaflokkum sem undir ráðið heyra, þ.e. málefni velferðar, menntamál og íþrótta- og æskulýðsmál.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Þagnarheit kjörinna fulltrúa í fjölskylduráði

Málsnúmer 202606039Vakta málsnúmer

Farið yfir þagnarheit kjörinna fulltrúa og undirrituð þagnarskylduyfirlýsing.
Þagnarskylduyfirlýsingar undirritaðar af öllum fundarmönnum.

5.Lög og reglur sem gilda um starfsemi á fjölskyldusviði

Málsnúmer 202606040Vakta málsnúmer

Til kynningar eru helstu lög og reglur sem gilda um starfsemi á fjölskyldusviði.
Lagt fram til kynningar.

6.Kynning á starfsemi fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202606038Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu kynnti starfsemi skóla- og frístundaþjónustu Múlaþings og veitti yfirlit yfir helstu verkefni, áherslur og þjónustu sviðsins. Jafnframt var farið yfir þær stofnanir og starfseiningar sem heyra undir sviðið.
Fjölskylduráð þakkar sviðsstjóra menntunar og lýðsheilsu fyrir kynninguna.

Fundi slitið - kl. 14:15.

Getum við bætt efni þessarar síðu?