Fara í efni

Kynning á starfsemi fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202606038

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 161. fundur - 09.06.2026

Sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu kynnti starfsemi skóla- og frístundaþjónustu Múlaþings og veitti yfirlit yfir helstu verkefni, áherslur og þjónustu sviðsins. Jafnframt var farið yfir þær stofnanir og starfseiningar sem heyra undir sviðið.
Fjölskylduráð þakkar sviðsstjóra menntunar og lýðsheilsu fyrir kynninguna.

Fjölskylduráð Múlaþings - 163. fundur - 22.06.2026

Sviðsstjóri velferðar kynnti starfsemi sviðsins og veitti yfirlit yfir helstu verkefni, áherslur og þjónustu. Jafnframt var farið yfir þær starfseiningar sem heyra undir sviðið.
Fjölskylduráð þakkar sviðsstjóra velferðar fyrir kynninguna.

Fjölskylduráð Múlaþings - 164. fundur - 17.08.2026

Guðmunda Vala Jónasdóttir, skólastjóri Hádegishöfða, kom inn á fund og kynnti verkefnið Föruneyti barna.
Fjölskylduráð þakkar fyrir upplýsandi kynningu.

Fjölskylduráð Múlaþings - 165. fundur - 24.08.2026

Anna Steinunn Árnadóttir, deildarstjóri málefna fatlaðs fólks, kynnti starfsemi og helstu verkefni deildarinnar fyrir fjölskylduráði.
Fjölskylduráð þakkar Önnu Steinunni fyrir upplýsandi kynningu.

Fjölskylduráð Múlaþings - 167. fundur - 14.09.2026

Fyrir liggur að kynna verkefnið Heillaspor en Miðstöð menntunar og skólaþjónustu stendur að þróun og innleiðingu Heillaspora hér á landi. Heillaspor er heildræn nálgun sem styður við velferð, öryggi og virka þátttöku barna í inngildandi skóla- og frístundastarfi.
Máli er frestað.

Fjölskylduráð Múlaþings - 168. fundur - 21.09.2026

Leikskólafulltrúi skóla- og frístundaþjónustu kynnti verkefnið Heillaspor en Miðstöð menntunar og skólaþjónustu stendur að þróun og innleiðingu Heillaspora hér á landi. Heillaspor er heildræn nálgun til að styðja við farsæla þátttöku barna í inngildandi skóla- og frístundastarfi.
Fjölskylduráð þakkar leikskólafulltrúa fyrir kynninguna.
Getum við bætt efni þessarar síðu?