Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

169. fundur 28. september 2026 kl. 09:05 - 10:40 í fundarsal Slökkvistöðvar Seyðisfjarðar
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Guðný Lára Guðrúnardóttir aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Guðgeir Einarsson aðalmaður
  • Erlingur Hjörvar Guðjónsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
  • Gunnlaugur Aðalbjarnarson deildarstjóri íþrótta og tómstunda
  • Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri velferðar á fjölskyldusviði

1.Skíðasvæðið í Stafdal, skýrsla forstöðumanns

Málsnúmer 202609228Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar skýrslur forstöðumanns Skíðasvæðisins í Stafdal, annars vegar skýrsla fyrir árið 2025 og hins vegar drög að skýrslu fyrir árið 2026.
Lagt fram til kynningar.

2.Skíðasvæðið í Stafdal, rekstur

Málsnúmer 202609229Vakta málsnúmer

Gunnlaugur Aðalbjarnarson, deildarstjóri íþrótta- og tómstunda, fór yfir rekstur Skíðasvæðisins í Stafdal.
Fjölskylduráð leggur áherslu á að áfram verði haldið úti góðu skíðasvæði í Stafdal samhliða ábyrgum og fyrirsjáanlegum rekstri.

Fjölskylduráð felur deildarstjóra íþrótta- og tómstunda að vinna áfram að endurskipulagningu rekstrar Skíðasvæðisins í Stafdal með það að markmiði að reksturinn rúmist innan þeirra fjárheimilda sem veittar verða fyrir næsta fjárhagsár.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Framtíðaruppbygging Íþróttamiðstöðvar á Egilsstöðum

Málsnúmer 202511028Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá aðalstjórn Íþróttafélagsins Hattar, dags. 25. ágúst 2026, vegna þarfagreiningar og frumhönnunar fjölnota knattspyrnu- og íþróttamannvirkis á Egilsstöðum.
Fjölskylduráð þakkar Íþróttafélaginu Hetti fyrir erindið og þær hugmyndir sem þar eru settar fram. Ráðið metur mikils það mikilvæga framlag sem Höttur og Byggingafélag Hattar hafa lagt til uppbyggingar íþróttastarfs og íþróttaaðstöðu á Egilsstöðum og það frumkvæði og þann kraft sem félagið hefur sýnt í þágu samfélagsins. Ráðið telur rétt að starfshópur um framtíðaruppbyggingu Íþróttamiðstöðvar ljúki þeirri vinnu sem honum hefur verið falin áður en tekin verða næstu skref í samtali við Hött um framtíðaruppbyggingu íþróttasvæðisins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Framtíðaruppbygging Íþróttamiðstöðvar á Egilsstöðum

Málsnúmer 202511028Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar fundargerðir starfshóps um uppbyggingu íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum, dagsettar 11. september og 26. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

5.Skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:40.

Getum við bætt efni þessarar síðu?