Fara í efni

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs

67. fundur 05. mars 2026 kl. 13:00 - 14:10 á skrifstofu sveitarfélagsins, Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Vilhjálmur Jónsson formaður
  • Björgvin Stefán Pétursson aðalmaður
  • Guðný Drífa Snæland varamaður
Starfsmenn
  • Óðinn Gunnar Óðinsson fulltrúi sveitarstjóra
  • Hlynur Jónsson verðandi sviðsstjóri stjórnsýslu
Fundargerð ritaði: Óðinn Gunnar Óðinsson fulltrúi sveitarstjóra og sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Niðurfelling varnarlína vegna sauðfjársjúkdóma Jökuldalslína

Málsnúmer 202506070Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað, dagsett 19. janúar 2026, frá verkefnisstjóra umhverfismála, um niðurfellingu Jökuldalslínu, þar sem óskað er eftir afstöðu heimastjórnar til niðurfellingar girðingarinnar. Málið var síðast á dagskrá heimastjórnar 5. febrúar 2026. Á fundinn undir þessum lið mætir Þórey Birna Jónsdóttir, ritari Félags sauðfjárbænda á Héraði og fjörðum og Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála.
Guðný Drífa gerði grein fyrir hæfi sínu og óskaði eftir að víkja af fundi og var það samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs lýsir vonbrigðum með ferli málsins og að ekki hafi verið haft samráð við hagaðila og sveitarfélagið. Heimastjórn tekur undir sjónarmið bænda á svæðinu um að ákvörðun um niðurfellingu Jökuldalslínu verði endurskoðuð.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Endurgerð Geitdalskofa

Málsnúmer 202602049Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Þorvaldi P. Hjarðar og Magnúsi Karlssyni um lagfæringar á Geitdalskofa, sem er gangnamannakofi, þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til viðhaldsframkvæmda "heimafólks" á gangnamannakofanum.
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs fagnar frumkvæðinu og gerir ekki athugasemdir við að farið verði í viðhaldsframkvæmdir Geitdalskofa, eins og lýst er í erindinu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 14:10.

Getum við bætt efni þessarar síðu?