Fara í efni

Niðurfelling varnarlína vegna sauðfjársjúkdóma Jökuldalslína

Málsnúmer 202506070

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 66. fundur - 05.02.2026

Fyrir liggur minnisblað, dagsett 19. janúar 2026, frá verkefnisstjóra umhverfismála, um niðurfellingu Jökuldalslínu, þar sem óskað er eftir afstöðu heimastjórnar til niðurfellingar girðingarinnar.
Guðný Drífa gerði grein fyrir hæfi sínu og óskaði eftir að víkja af fundi og var það samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir að óska eftir að á næsta fund heimastjórnar verði boðaður formaður Félags sauðfjárbænda á Héraði og fjörðum til viðræðna um málið.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 67. fundur - 05.03.2026

Fyrir liggur minnisblað, dagsett 19. janúar 2026, frá verkefnisstjóra umhverfismála, um niðurfellingu Jökuldalslínu, þar sem óskað er eftir afstöðu heimastjórnar til niðurfellingar girðingarinnar. Málið var síðast á dagskrá heimastjórnar 5. febrúar 2026. Á fundinn undir þessum lið mætir Þórey Birna Jónsdóttir, ritari Félags sauðfjárbænda á Héraði og fjörðum og Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála.
Guðný Drífa gerði grein fyrir hæfi sínu og óskaði eftir að víkja af fundi og var það samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs lýsir vonbrigðum með ferli málsins og að ekki hafi verið haft samráð við hagaðila og sveitarfélagið. Heimastjórn tekur undir sjónarmið bænda á svæðinu um að ákvörðun um niðurfellingu Jökuldalslínu verði endurskoðuð.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 68. fundur - 09.04.2026

Fyrir liggur svar atvinnuvegaráðuneytisins frá 9. mars 2026 við bókun heimastjórnar Fljótsdalshéraðs frá 5. mars 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs felur starfsmanni að óska eftir samskiptum atvinnuvegaráðuneytisins og Bændasamtaka Íslands varðandi niðurfellingu viðkomandi varnarlínu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 70. fundur - 24.06.2026

Fyrir liggur svar atvinnuvegaráðuneytisins, dagsett 27. maí 2026, við beiðni starfsmanns heimastjórnar um afrit af samskiptum ráðuneytisins og Bændasamtaka Íslands varðandi niðurfellingu Jökuldalslínu, ásamt tölvupósti ráðuneytisins til samtakanna frá 7. maí 2025.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs lýsir yfir miklum vonbrigðum með stjórnsýslu og vinnubrögð atvinnuvegaráðuneytisins við ákvörðun um niðurfellingu Jökuldalslínu. Ákvörðunin er tekin án fullnægjandi rannsóknar og án samráðs við hagaðila og sveitarfélagið.

Aðferð ráðuneytisins, að líta á einn ósvaraðan tölvupóst til Bændasamtaka Íslands sem fullnægjandi samráð, stangast alvarlega á við vandaða stjórnsýsluhætti og rannsóknarskyldu stjórnvalda. Ákvörðun af þessari stærðargráðu, sem varðar búfjárvarnir og hagsmuni heillar byggðar, krefst ítarlegrar skoðunar á áhættu og raunverulegs samráðs áður en til ákvörðunartöku kemur.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs krefst þess að ráðuneytið taki ákvörðunina til endurskoðunar og efni til samráðs með hagsmunasamtökum bænda á svæðinu og fulltrúum sveitarfélagsins.

Starfsmanni heimastjórnar er falið að koma bókun þessari á framfæri við ráðuneytið við fyrsta tækifæri.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?