Fara í efni

Umsókn um byggingaráform, umfangsflokkur 2, Borgarland 12

Málsnúmer 202204129

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 53. fundur - 27.04.2022

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur umsókn um heimild til að byggja viðbyggingu utan byggingarreits við einbýlishús að Borgarlandi 12 á Djúpavogi eins og sýnt er á meðfylgjandi gögnum. Skipulagsfulltrúi situr fundinn undir þessum lið.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og einnig, með vísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að víkja frá kröfum 1. og 2. mgr. sömu greinar um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu. Er það gert með vísan til þess að um svo óveruleg frávik sé að ræða í þessu tilviki að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu er vísað til heimastjórnar Djúpavogs til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Djúpavogs - 26. fundur - 02.05.2022

Vísað til Heimastjórnar frá Umhverfis og framkvæmdaráði, umsókn um heimild til að byggja viðbyggingu utan byggingarreits við einbýlishús að Borgarlandi 12 á Djúpavogi

Heimastjórn samþykkir umsóknina, með vísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að víkja frá kröfum 1. og 2. mgr. sömu greinar um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu. Er það gert með vísan til þess að um svo óveruleg frávik sé að ræða í þessu tilviki að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Múlaþings - 19. fundur - 27.06.2022

Fyrir liggur umsókn um byggingaráform og byggingarheimild vegna stækkunar einbýlishúss.

Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarheimild verður gefin út þegar fullnægjandi gögnum hefur verið skilað.
Getum við bætt efni þessarar síðu?