Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.
Fyrir liggur umsókn um heimild til að víkja frá skipulagsskilmálum deiliskipulags Fjarðarhafnar, Pálshúsreits og Öldunnar í tengslum við byggingaráform á Austurvegi 19 (L232716) á Seyðisfirði. Skipulagið gerir ráð fyrir að hámarkshæð húsa fari ekki upp fyrir 7,5m og að nýtingarhlutfall sé að hámarki 0,3. Fyrirhuguð áform, sem fela í sér endurbyggingu Breiðabliks, gera ráð fyrir að húsið verði 8,2m á hæð og nýtingarhlutfall 0,35. Vísað er til þess að stafnar hússins verði vel undir leyfilegri hámarkshæð og einungis miðjukvisturinn hærri. Hámarkshæð húsa á næstu lóðum er 8,54/7,69 (Austurvegur 21) og 7,5m (Austurvegur 17).
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir, með vísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að víkja frá kröfum 1. og 2. mgr. sömu greinar um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu vegna fyrirliggjandi umsóknar. Er það gert með vísan til þess að um svo óveruleg frávik sé að ræða í þessu tilviki að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Samþykkt samhljóða.