Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

194. fundur 28. september 2026 kl. 13:00 - 16:05 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Ólafur Arnar Hallgrímsson varamaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir varaformaður
  • Björg Eyþórsdóttir varamaður
  • Þórhallur Borgarsson aðalmaður
  • Þórir Stefánsson aðalmaður
  • Glúmur Björnsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Í upphafi fundar bar varaformaður upp tillögu um að bæta við dagskrárlið og að hann yrði nr. 9 í röðinni. Um er að ræða Umhverfisviðurkenningar 2026.

Samþykkt samhljóða.

Byggingarfulltrúi Múlaþings, Jörgen Sveinn Þorvarðarson, situr fundinn undir lið 1.

Verkefnastjóri skipulagsmála, Sóley Valdimarsdóttir, situr fundinn undir liðum 1.-6.

Verkefnastjóri umhverfismála, Stefán Aspar Stefánsson, situr fundinn undir lið 8.

1.Lóðaleigusamningur, Miðvangur 8

Málsnúmer 202609037Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi og verkefnastjóri skipulagsmála sitja fundinn undir þessum lið.

Samkvæmt 4. lið lóðarleigusamnings Sigurgarðs ehf. frá 27. febrúar 2024 er kveðið á um að frágangi byggingar utanhúss að Miðvangi 8 skuli vera lokið eigi síðar en þrem árum eftir undirritun. Dráttur hefur orðið á framkvæmdum og fyrirséð að leigutaka er ekki unnt að standa við ákvæði þetta og liggur fyrir erindi frá lóðarhafa þar sem er þess farið á leit að frestur þessi verði lengdur um þrjú ár og gildi til 27. febrúar 2030.
Í lok afgreiðslu þessa máls bar Björg Eyþórsdóttir, B-lista, upp vanhæfi sitt til meðferðar og afgreiðslu málsins. Ráðið tók hæfi BE til afgreiðslu og var það samþykkt samhljóða. BE vék af fundi.
Þar sem BE hafði tekið þátt í fyrri meðferð og afgreiðslu málsins samþykkir ráðið að fella þá afgreiðslu úr gildi. Málið var tekið fyrir að nýju til umræðu og afgreiðslu án þátttöku BE.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi erindi.

Samþykkt samhljóða.

2.Deiliskipulag, Kollsstaðasel, frístundabyggð, 701

Málsnúmer 202510198Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Vinnslutillaga nýs deiliskipulags fyrir frístundabyggð í landi Kollsstaðasels var kynnt frá 7. júlí til 4. ágúst 2026. Fyrir liggja umsagnir sem bárust við kynninguna, samantekt og viðbrögð við þeim.
Jafnframt er lögð fram tillaga til auglýsingar þar sem brugðist hefur verið við þeim athugasemdum sem gerðar voru.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fyrirliggjandi skipulagstillaga verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar málinu til heimastjórnar Fljótsdalshéraðs til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.

3.Umsókn um byggingarleyfi, Austurvegur 19, 710,

Málsnúmer 202301200Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur umsókn um heimild til að víkja frá skipulagsskilmálum deiliskipulags Fjarðarhafnar, Pálshúsreits og Öldunnar í tengslum við byggingaráform á Austurvegi 19 (L232716) á Seyðisfirði. Skipulagið gerir ráð fyrir að hámarkshæð húsa fari ekki upp fyrir 7,5m og að nýtingarhlutfall sé að hámarki 0,3. Fyrirhuguð áform, sem fela í sér endurbyggingu Breiðabliks, gera ráð fyrir að húsið verði 8,2m á hæð og nýtingarhlutfall 0,35. Vísað er til þess að stafnar hússins verði vel undir leyfilegri hámarkshæð og einungis miðjukvisturinn hærri. Hámarkshæð húsa á næstu lóðum er 8,54/7,69 (Austurvegur 21) og 7,5m (Austurvegur 17).
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir, með vísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að víkja frá kröfum 1. og 2. mgr. sömu greinar um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu vegna fyrirliggjandi umsóknar. Er það gert með vísan til þess að um svo óveruleg frávik sé að ræða í þessu tilviki að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

Samþykkt samhljóða.

4.Umsókn um skráningu nýrra fasteigna í landeignaskrá, Hófmörk

Málsnúmer 202609036Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu lands úr jörðinni Mýnes L158098. Ný lóð verður 2,5 ha. og fær heitið Hófmörk.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur verkefnastjóra skipulagsmála að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

5.Umsókn um breytingu á staðfangi, Borg Lóð 1 verður Kristínarborg

Málsnúmer 202609004Vakta málsnúmer

Við upphaf máls vakti Glúmur Björnsson V-Lista athygli á vanhæfi sínu og bar varaformaður upp tillögu þess efnis sem var samþykkt samhljóða. GB vék af fundinum undir umfjöllun og afgreiðslu málsins.

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur umsókn um breytingu á staðfangi íbúðalóðar í Skriðdal sem ber heitið Borg /Lóð 1 (L211643). Nýtt staðfang verði Kristínarborg.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi umsókn og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

6.Útikennslustofa, verksummerki HEF, Borgarfjörður eystri

Málsnúmer 202608126Vakta málsnúmer

Við upphaf máls vakti Glúmur Björnsson V-Lista athygli á vanhæfi sínu og bar varaformaður upp tillögu þess efnis sem var samþykkt samhljóða. GB vék af fundinum undir umfjöllun og afgreiðslu málsins.

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur fyrir, eftir umfjöllun heimastjórnar á Borgarfirði, erindi frá deildarstjórum leik- og grunnskólans á Borgarfirði vegna verksummerkja HEF veitna á útikennslusvæði barnanna. Erindið er dagsett 20. ágúst 2026.
Heimastjórn Borgarfjarðar vísaði því til umhverfis- og framkvæmdaráðs að skoða skilgreiningu landnotkunar svæðisins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð staðfestir að svæðið er skilgreint sem opið svæði.

HEF veitur skulu vinna áfram að frágangi svæðisins í samráði við leik- og grunnskóla Borgarfjarðar. Ráðið beinir því einnig til HEF veitna að skerpa á verkferlum sínum varðandi frágang á svæðum að loknu verki.

Samþykkt samhljóða.

7.Brekkubær, land og lóðir, 721

Málsnúmer 202609071Vakta málsnúmer

Við upphaf máls vakti Ólafur Arnar Hallgrímsson D-lista athygli á vanhæfi sínu og bar varaformaður upp tillögu þess efnis sem var samþykkt samhljóða. ÓAH vék af fundinum undir umfjöllun og afgreiðslu málsins.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur umsókn frá Ásgeiri Arngrímssyni vegna Brekkubæjar (L157286) á Borgarfirði eystri.
Lóðarhafi óskar eftir því að stækka lóð um íbúðarhús og samhliða því að stofna lóð fyrir fjárhús í Brekkubæ.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að unnið verði að stækkun lóðar umhverfis íbúðarhúsið í Brekkubæ og eins að stofnuð verði sérstök lóð umhverfis fjárhúsin.
Ráðið felur starfsmönnum skipulagssviðs að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

8.Breytingar á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga

Málsnúmer 202609101Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri umhverfismála situr fundinn undir þessum lið ásamt Jónínu Brynjólfsdóttur, forseta sveitarstjórnar og varaformanni heilbrigðisnefndar.

Byggðaráð vísaði til umfjöllunar hjá umhverfis- og framkvæmdaráði, á 199. fundi sínum 15. september, kynningu frá Umhverfis- og orkustofnun. Kynningin fjallar um yfirfærslu verkefna frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga frá 1. janúar 2027. Þá liggur fyrir minnisblað um málið, dagsett 4. september 2026, frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur undir bókun byggðarráðs.

Jafnframt felur ráðið verkefnastjóra umhverfismála að taka saman minnisblað um þau verkefni sem að sveitarfélögum verður falið og fjalla um önnur álitamál sem tengjast þessari yfirfærslu verkefna.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Jónína Brynjólfsdóttir - mæting: 14:10

9.Umhverfisviðurkenningar 2026

Málsnúmer 202607097Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri umhverfismála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur að taka afstöðu til sérstakrar tilnefningar vegna umhverfisviðurkenninga Múlaþings 2026, en sérstök tilnefning barst frá heimastjórn Fljótsdalshéraðs.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir veitingu sérstakrar umhverfisviðurkenningar í samræmi við umræður á fundinum og felur formanni umhverfis- og framkvæmdaráðs og verkefnastjóra umhverfismála að veita viðurkenninguna.

Ráðið þakkar tilnefningarnar og hvetur íbúa til að senda inn tilnefningar á næsta ári.

Samþykkt samhljóða.

10.Umsagnarbeiðni um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. 4.mál

Málsnúmer 202609164Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að nýju, beiðni um umsögn frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, vegna frumvarps til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón), 4. mál.
https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/158/4/?ltg=158&mnr=4

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 1. október nk. og skal skilað inn í gegnum umsagnagátt Alþingis.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur formanni ráðsins, skipulagsfulltrúa og sviðsstjóra framkvæmda að skila inn fyrirliggjandi umsögn.

Samþykkt samhljóða.

11.Krafa um endurskoðun umhverfismats í Seyðisfirði

Málsnúmer 202608218Vakta málsnúmer

Lagt er fram til kynningar hjá umhverfis- og framkvæmdaráði erindi frá Rétti ehf. sem beint er til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS).

Erindið snýr að kröfu um að HMS taki án tafar afstöðu til þess hvort endurskoða þurfi umhverfismat framkvæmdar Kaldvíkur hf. til sjókvíaeldis í Seyðisfirði, sbr. 28. gr. laga nr. 111/2021.
Eftirfarandi tillaga frá V-lista lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð telur mikilvægt að HMS taki efnislega afstöðu til framkominnar kröfu um endurskoðun umhverfismats áður en byggingarleyfisumsókn Kaldvíkur er afgreidd, enda varðar hún m.a. atriði sem sveitarfélagið hefur sjálft gert athugasemdir við í umsögn sinni.

Hafnað með 5 atkvæðum, 2 með (ÁMS V-lista og GB V-lista).

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis og framkvæmdaráð stendur við umsögn sína vegna byggingarleyfisumsóknar, frá 183. fundi 18. maí 2026.

Samþykkt með 5 atkvæðum, 2 sitja hjá (ÁMS V-lista og GB V-lista).

12.Skýrsla sviðsstjóra framkvæmda

Málsnúmer 202512240Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda, Hugrún Hjálmarsdóttir, fer yfir stöðu verkefna á sviðinu.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:05.

Getum við bætt efni þessarar síðu?