Fara í efni

Umsagnarferli vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir Eiðar farfuglaheimili

Málsnúmer 202304117

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 35. fundur - 05.05.2023

Fyrir liggur frá Sýslumanninum á Austurlandi beiðni um umsögn vegna umsóknar frá Önnu Kristínu Magnúsdóttur, dagsett 18.4. 2023, um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki III-D, gistiskáli D, að Eiðum 5, 701 Egilsstöðum.

Fyrir liggja umsagnir frá slökkviliði, byggingarfulltrúa, skipulagsfulltrúa.

Þar sem umsagnir byggingarfulltrúa og slökkviliðs eru neikvæðar veitir heimastjórn Fljótsdalshéraðs neikvæða umsögn um rekstrarleyfi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 36. fundur - 08.06.2023

Fyrir liggur frá Sýslumanninum á Austurlandi beiðni um umsögn vegna umsóknar frá Önnu Kristínu Magnúsdóttur, dagsett 6.6. 2023, um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki III-D, gistiskáli D, að Eiðum bóndabær 5, 701 Egilsstöðum.

Á grundvelli 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 veitir heimastjórn Fljótsdalshéraðs jákvæða umsögn um um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki III-d, gistiskáli D, að Eiðum bóndabær 5, 701 Egilsstöðum, með þeim fyrirvara sem fram kemur hér að neðan.

Heimastjórn staðfestir að starfsemin er í samræmi við skipulagsskilmála sbr. umsögn skipulagsfulltrúa og að starfsemin er í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og laga um matvæli, sbr. umsögn Heilbrigðiseftirlits Austurlands. Jafnframt staðfestir heimastjórn að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að er innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um. Þá staðfestir heimastjórn að leyfið verði veitt miðað við 14 manns, sbr. umsögn Brunavarna á Austurlandi, en með þeim fyrirvara, sem fram kemur í umsögninni, um úrbætur eldvarna sem verði lokið fyrir 1. júlí 2023, ella verði óskað eftir því að sýslumaður afturkalli rekstrarleyfið. Heimastjórn staðfestir að byggingin er skráð á byggingarstig 7 og telst eignin því fullbúin, sbr. umsögn byggingarfulltrúa.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?