Fara í efni

Hafnargata 40b,sala

Málsnúmer 202311364

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 102. fundur - 05.12.2023

Fyrir liggja drög að auglýsingu varðandi mögulega sölu eignarinnar.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að eignin Hafnargata 40B verði auglýst til sölu í samræmi við fyrirliggjandi drög að auglýsingu og felur framkvæmda- og umhverfismálastjóra framkvæmd verksins.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Byggðaráð Múlaþings - 111. fundur - 19.03.2024

Fyrir liggja fjögur tilboð í íbúðarhús og bílskúr við Hafnargötu 40B á Seyðisfirði.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að taka tilboði Arnars Bergmanns Jónssonar í íbúðarhús við Hafnargötu 40B, á Seyðisfirði en hafna öllum tilboðum í bílskúr við Hafnargötu 40B. Sveitarstjóra veitt umboð, fyrir hönd sveitarfélagsins, til að ganga frá sölu eignarinnar og undirrita öll skjöl því tengd.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Byggðaráð Múlaþings - 160. fundur - 22.07.2025

Frestur til að skila inn tilboðum í Hafnargötu 40b á Seyðisfirði rann út þann 15. júlí 2025. Þrjú tilboð bárust í fasteignina sem seld er til flutnings á nýja lóð að Oddagötu 3, Seyðisfirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Byggðaráð samþykkir að gengið verði til samninga við hæstbjóðanda í eignina Hafnargötu 40b á Seyðisfirði í samræmi við ákvæði er fram komu í auglýsingu eftir tilboðum í eignina. Framkvæmda- og umhverfismálastjóra falin framkvæmd málsins.

Byggðaráð Múlaþings - 161. fundur - 12.08.2025

Frestur til að skila inn tilboðum í Hafnargötu 40b á Seyðisfirði rann út þann 15. júlí 2025. Þrjú tilboð bárust í fasteignina sem seld er til flutnings á nýja lóð að Oddagötu 3, Seyðisfirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Byggðaráð samþykkir að þar sem hæstbjóðandi hefur fallið frá tilboði sínu verði gengið til samninga við þann aðila sem átti næsthæsta tilboð í eignina Hafnargötu 40b á Seyðisfirði í samræmi við ákvæði er fram komu í auglýsingu eftir tilboðum í eignina. Framkvæmda- og umhverfismálastjóra falin framkvæmd málsins.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?