Fara í efni

Umsókn um framkvæmdaleyfi, efnistaka, Fjarðará

Málsnúmer 202404072

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 188. fundur - 06.07.2026

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku úr Fjarðará á Borgarfirði. Efnistökustaður er skilgreindur í aðalskipulagi og staðsettur ofan Fjarðarárbrúar. Í gildi er samningur við landeiganda vegna leigu á efnistökuréttindum og er umsjón og rekstur námusvæðisins á höndum Múlaþings.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Fyrirhuguð áform eru í samræmi við stefnu aðalskipulags og samþykkir umhverfis- og framkvæmdaráð að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll gögn liggja fyrir.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?