Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

188. fundur 06. júlí 2026 kl. 13:00 - 15:25 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir formaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir varaformaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Þórhallur Borgarsson aðalmaður
  • Þórir Stefánsson aðalmaður
  • Glúmur Björnsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála

1.Deiliskipulagsbreyting, Úlfsstaðaholt

Málsnúmer 202607003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn frá Austurbygg verktaka ehf. um óverulega breytingu á deiliskipulagi Úlfsstaðaholts, frístundabyggðar í landi Úlfsstaða. Breytingin felur m.a. í sér aukið byggingarmagn á lóðum og breytingu á skilmálum um hámarks vegg- og mænishæð húsa.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi umsókn og að málsmeðferð verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málið verður tekið fyrir að nýju þegar tillaga skipulagsbreytingar liggur fyrir og afstaða tekin til grenndarkynningar samhliða þeirri afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.

2.Umsókn um framkvæmdaleyfi, skógrækt, Hvanná 1

Málsnúmer 202606209Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi vegna 18 ha. skógræktar í landi Hvannár 1 (L156914) á Jökuldal. Fyrirhuguð áform eru í samræmi við landnotkun og ákvæði aðalskipulags.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við fyrirliggjandi gögn.

Samþykkt samhljóða.

3.Umsókn um framkvæmdaleyfi, vegslóði og bílastæði á Búlandsnesi

Málsnúmer 202604196Vakta málsnúmer

Grenndarkynningu fyrirhugaðra áforma um gerð bílastæðis og vegslóða út á sanda á Búlandsnesi lauk þann 17. júní síðastliðinn. Þrettán athugasemdir bárust í gegnum Skipulagsgátt og liggur fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði að taka afstöðu til þeirra.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Áður en til frekari greininga og hönnunar kemur telur umhverfis- og framkvæmdaráð mikilvægt að óska eftir umsögn frá Isavia ohf. og Norlandair um raunverulegt notkunargildi flugvallarins með hliðsjón af hlutverki hans í sjúkraflutningum.

Afgreiðslu vegna grenndarkynningar er frestað þar til frekari gögn liggja fyrir.

Samþykkt samhljóða.

4.Umsókn um framkvæmdaleyfi, endurbygging Jökuldalsvegar (923) frá Langagerði að Hákonarstöðum

Málsnúmer 202606178Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni vegna endurbyggingar á 4 km. löngum kafla Jökuldalsvegar (923), frá Langagerði að Hákonarstöðum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við fyrirliggjandi gögn.

Samþykkt samhljóða.

5.Umsókn um framkvæmdaleyfi, efnistaka, Fjarðará

Málsnúmer 202404072Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku úr Fjarðará á Borgarfirði. Efnistökustaður er skilgreindur í aðalskipulagi og staðsettur ofan Fjarðarárbrúar. Í gildi er samningur við landeiganda vegna leigu á efnistökuréttindum og er umsjón og rekstur námusvæðisins á höndum Múlaþings.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Fyrirhuguð áform eru í samræmi við stefnu aðalskipulags og samþykkir umhverfis- og framkvæmdaráð að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll gögn liggja fyrir.

Samþykkt samhljóða.

6.Umsókn um framkvæmdaleyfi, Efnistaka, Stafdalur

Málsnúmer 202510060Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Landsverk ehf. vegna efnistöku í námu í Stafdal. Efnistökustaður er samkvæmt aðalskipulagi.

Í gildi er samningur milli Múlaþings, sem landeiganda, og Landsverks ehf. sem fer með umsjón og rekstur svæðisins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að gefið verði út umbeðið framkvæmdaleyfi þegar öll gögn liggja fyrir.

Samþykkt samhljóða.

7.Umsókn um skráningu landeigna í fasteignaskrá, Klettur

Málsnúmer 202606106Vakta málsnúmer

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu lands úr jörðinni Jaðar (L157517). Ný lóð fær heitið Klettur.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur verkefnastjóra skipulagsmála að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

8.Umsókn um skráningu landeigna í fasteignaskrá, Flórustaðir 1 og 2

Málsnúmer 202606107Vakta málsnúmer

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu lands úr jörðinni Hrafnabjörg 4 (L156870). Nýjar lóðir fá heitið Flórustaðir 1 og 2.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur verkefnastjóra skipulagsmála að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

9.Umsókn um skráningu landeigna í fasteignaskrá, Hánefsstaðir 2

Málsnúmer 202607028Vakta málsnúmer

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu lands úr jörðinni Hánefsstaðir (L154850). Ný lóð fær heitið Hánefsstaðir 2.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur verkefnastjóra skipulagsmála að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

10.Umsókn um stækkun á lóð, Hlíð 3

Málsnúmer 202607004Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um 50m2 stækkun á lóðinni Hlíð 3 (L159233) á Djúpavogi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að óska eftir umsögn frá lóðarhafa Hlíð 1.
Málið verður tekið fyrir að nýju.

Samþykkt samhljóða.

11.Breyting á lóð, Mörk 8, Djúpivogur

Málsnúmer 202603177Vakta málsnúmer

Við upphaf máls vakti áheyrnarfulltrúi (HKH) máls á mögulegu vanhæfi sínu og færði rök fyrir því. Formaður bar tillöguna upp til atkvæðagreiðslu og var hún samþykkt með 5 atkvæðum (ÁMS, GB, ÞS, ÞBJ, GBH), 2 sitja hjá (ÞB og ÞKS).
HKH vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu málsins.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur umsókn frá Eimskip Ísland ehf. um 75m2 stækkun til austurs, á lóð sinni við Mörk 8 á Djúpavogi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi beiðni og felur starfsfólki að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

12.Erindi. Beiðni um afléttingu hverfisverndar á Múla 1 í Álftarfirði

Málsnúmer 202606045Vakta málsnúmer

Við upphaf máls vakti formaður (ÞKS) máls á mögulegu vanhæfi sínu og færði rök fyrir því. Formaður bar tillöguna upp til atkvæðagreiðslu og var hún samþykkt samhljóða.
Einnig vakti fulltrúi (GBH) máls á mögulegu vanhæfi sínu og færði rök fyrir því. Formaður bar tillöguna upp til atkvæðagreiðslu og var hún felld með öllum atkvæðum.

ÞKS vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins. Varaformaður (ÞBJ) fór með stjórn fundar í fjarveru hennar.

Fyrir ráðinu liggur erindi frá Þebu Björt Karlsdóttur Blöndal, dags. 7. júní 2026 þar sem óskað er eftir því að hverfisvernd í landi Múla 1 í Álftafirði, neðan þjóðvegar, verði aflétt í nýju Aðalskipulagi Múlaþings 2025-2045 sem nú er í auglýsingu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Fyrirliggjandi erindi er vísað til yfirstandandi auglýsingar nýs Aðalskipulags Múlaþings 2025-2045 og verður afstaða tekin til þess samhliða þeirri málsmeðferð.

13.Umferðaröryggi við Grunnskóla Djúpavogs

Málsnúmer 202606160Vakta málsnúmer

Heimastjórn Djúpavogs tók fyrir á 71. fundi sínum þann 26. júní innsent erindi er varðar umferðaröryggi við Grunnskólann á Djúpavogi.
Heimastjórn vísaði málinu áfram til umhverfis- og framkvæmdaráðs til umfjöllunar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir erindið og vísar málinu áfram til sviðsstjóra framkvæmda til nánari skoðunar í tengslum við framtíðarskipulag við grunnskólann.

Samþykkt samhljóða.

14.Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa Múlaþings - 16

Málsnúmer 2607001FVakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð frá 16. afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:25.

Getum við bætt efni þessarar síðu?