Fara í efni

Útboð tjaldsvæðis á Borgarfirði

Málsnúmer 202512105

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 183. fundur - 17.03.2026

Útboð á rekstri tjaldsvæðisins á Borgarfirði var auglýst þann 20. janúar 2026. Tilboðsfrestur rann út mánudaginn 23. febrúar 2026 og voru tilboð opnuð á skrifstofu sveitarfélagsins á Borgarfirði fimmtudaginn 26. febrúar 2026. Alls bárust átta tilboð frá sjö bjóðendum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að gengið verði til samninga við hæstbjóðendur, þau Söndru Luceno og Karoly Toth, á grundvelli tilboðs viðkomandi í rekstur tjaldsvæðis á Borgarfirði.
Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?