Fara í efni

Umsókn um byggingarheimild, Suðurgata 2B, 710

Málsnúmer 202601074

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 174. fundur - 16.02.2026

Fyrir liggur umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Suðurgötu 2b(L235241) á Seyðisfirði. Áformin eru í samræmi við aðalskipulag en ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Jafnframt liggur fyrir erindi frá lóðarhafa þar sem óskað er eftir því að fá nýja innkeyrslu að húsinu, samhliða innkeyrslu að Suðurgötu 2a.
Málið er áfram í vinnslu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 177. fundur - 16.03.2026

Tekin er fyrir að nýju umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Suðurgötu 2b (L235241) á Seyðisfirði.
Undirritað samþykki lóðarhafa við Suðurgötu 2a liggur einnig fyrir. Áformin eru í samræmi við aðalskipulag en ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsaðili hefur með símtali fallið frá innsendu erindi þar sem óskað var eftir nýrri innkeyrslu að húsinu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan í fyrirliggjandi samþykki aðliggjandi lóðarhafa samþykkir umhverfis- og framkvæmdaráð að falla frá grenndarkynningu og vísar málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?