Fara í efni

Prókúra fyrir Múlaþing

Málsnúmer 202602036

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 180. fundur - 24.02.2026

Fyrir liggur tillaga frá sveitarstjóra um að veita Hlyni Jónssyni, sviðsstjóra stjórnsýslu og Ingvari Rafni Stefánssyni, sviðsstjóra fjármála, prókúruumboð fyrir hönd Múlaþings.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með tilliti til þess að Óðinn Gunnar Óðinsson, sviðsstjóri stjórnsýslu og Guðlaugur Sæbjörnsson, sviðsstjóri fjármála, eru að láta af störfum og nýir einstaklingar að taka við þeirra störfum, leggur byggðaráð Múlaþings til, með vísan til 4. mgr. 55.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 4. mgr. 50.gr. samþykktar um stjórn Múlaþings, að sveitarstjórn heimili sveitarstjóra að veita eftirtöldum starfsmönnum Múlaþings prókúruumboð: Hlyni Jónssyni, sviðsstjóra stjórnsýslu, kt. 3008882089 og Ingvari Rafni Stefánssyni, sviðsstjóra fjármála, kt. 0202872179, frá og með 16. mars 2026.
Umboðið nær til að undirrita skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem krefst samþykkis byggðaráðs og eða sveitarstjórnar.
Byggðaráð vísar málinu til afgreiðslu hjá sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Sveitarstjórn Múlaþings - 66. fundur - 11.03.2026

Á fundi byggðaráðs Múlaþings 24. febrúar 2026 var samþykkt að vísa til sveitarstjórnar tillögu frá sveitarstjóra um að veita Hlyni Jónssyni, sviðsstjóra stjórnsýslu og Ingvari Rafni Stefánssyni, sviðsstjóra fjármála, prókúruumboð fyrir hönd Múlaþings.
Til máls tóku: Berglind Harpa Svavarsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir tillögu sveitarstjóra um að veita Hlyni Jónssyni, kt. 300888-2089, sviðsstjóra stjórnsýslu, og Ingvari Rafni Stefánssyni, kt. 020287-2179, sviðsstjóra fjármála, prókúruumboð fyrir hönd Múlaþings í stað Óðins Gunnars Óðinssonar og Guðlaugs Sæbjörnssonar sem eru að láta af störfum sem sviðsstjóri stjórnsýslu og sviðsstjóri fjármála.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Getum við bætt efni þessarar síðu?