Fara í efni

Sveitarstjórn Múlaþings

66. fundur 11. mars 2026 kl. 13:00 - 15:05 í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir forseti
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir aðalmaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Vilhjálmur Jónsson aðalmaður
  • Eyþór Stefánsson aðalmaður
  • Einar Freyr Guðmundsson aðalmaður
  • Þröstur Jónsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Óðinn Gunnar Óðinsson fundarritari
  • Hlynur Jónsson verðandi sviðsstjóri stjórnsýslu
Fundargerð ritaði: Óðinn Gunnar Óðinsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Ársreikningur Múlaþings 2025

Málsnúmer 202602270Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til fyrri umræðu ársreikningur Múlaþings fyrir árið 2025.
Til máls tóku: Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Þröstur Jónsson, Hildur Þórisdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Múlaþings 2025 til seinni umræðu í byggðaráði og sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Prókúra fyrir Múlaþing

Málsnúmer 202602036Vakta málsnúmer

Á fundi byggðaráðs Múlaþings 24. febrúar 2026 var samþykkt að vísa til sveitarstjórnar tillögu frá sveitarstjóra um að veita Hlyni Jónssyni, sviðsstjóra stjórnsýslu og Ingvari Rafni Stefánssyni, sviðsstjóra fjármála, prókúruumboð fyrir hönd Múlaþings.
Til máls tóku: Berglind Harpa Svavarsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir tillögu sveitarstjóra um að veita Hlyni Jónssyni, kt. 300888-2089, sviðsstjóra stjórnsýslu, og Ingvari Rafni Stefánssyni, kt. 020287-2179, sviðsstjóra fjármála, prókúruumboð fyrir hönd Múlaþings í stað Óðins Gunnars Óðinssonar og Guðlaugs Sæbjörnssonar sem eru að láta af störfum sem sviðsstjóri stjórnsýslu og sviðsstjóri fjármála.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Sveitarstjórnarkosningar 2026

Málsnúmer 202512171Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga sem samþykkt var í byggðaráði Múlaþings 3. mars 2026 varðandi fyrirkomulag sveitarstjórnarkosninga og heimastjórnakosninga í Múlaþingi 16. maí 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að kjörstaðir vegna sveitarstjórnar- og heimastjórnakosninga í Múlaþingi 16. maí 2026 verði eftirfarandi:

Borgarfjörður: Grunnskólinn á Borgarfirði. Djúpivogur: Tryggvabúð Djúpavogi. Fljótsdalshérað: Menntaskólinn á Egilstöðum. Seyðisfjörður: Íþróttamiðstöðin á Seyðisfirði.

Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að kjördeildir við sveitarstjórnarkosningarnar og heimastjórnarkosningarnar verða fimm talsins, þar af tvær á Fljótsdalshéraði. Kjördeildirnar á Fljótsdalshéraði skiptast þannig: Í kjördeild 1 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum A til og með bókstafnum M. Í kjördeild 2 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur hverra nöfn byrja á bókstafnum N til og með bókstafnum Ö, íbúar í Fellabæ, Eiðum og Hallormsstað og íbúar í dreifbýli á Fljótsdalshéraði. Í kjördeildum 1 og 2 á Fljótsdalshéraði verða sérstakar kjörstjórnir annars vegar vegna sveitarstjórnarkosninga og hins vegar vegna heimastjórnarkosninga.

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að óska eftir því við sýslumann að hægt verði að kjósa utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga á skrifstofum sveitarfélagsins á Borgarfirði og Djúpavogi, frá og með 30. apríl til og með 15. maí 2026.

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að óska eftir því við sýslumann að kjörstjórar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna sveitarstjórnarkosninga verði Alda Marín Kristinsdóttir, Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar og Þórunn Ólafsdóttir á Borgarfirði og Ólöf Vilbergsdóttir á Djúpavogi.

Sveitarstjórn samþykkir að atkvæðagreiðsla vegna heimastjórnarkosninga í Múlaþingi 2026 hefjist fimmtudaginn 30. apríl 2026. Atkvæðagreiðslan fari fram á skrifstofum sveitarfélagsins á Borgarfirði, Djúpavogi, Egilsstöðum og Seyðisfirði á opnunartíma þeirra til og með 15. maí 2026, auk þess sem hægt verður að neyta atkvæðisréttar á kjörstöðum á kjördag þann 16. maí 2026.

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir eftirfarandi lista fulltrúa í yfirkjörstjórn Múlaþings og kjörstjórnir á Borgarfirði, Djúpavogi, Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði:

Eftirtaldir einstaklingar skipi yfirkjörstjórn Múlaþings. Aðalmenn: Stefán Þór Hauksson, Arna Soffía Dahl Christiansen, Björn Aðalsteinsson. Varamenn: Ólöf Ólafsdóttir, Ásdís Þórðardóttir, Unnur Óskarsdóttir.

Eftirtaldir einstaklingar skipi undirkjörstjórnir hjá Múlaþingi:

Fljótsdalshérað, kjördeild 1 vegna sveitarstjórnarkosninga. Aðalmenn: Lovísa Hreinsdóttir, Eydís Bjarnadóttir, Jón Hávarður Jónsson. Varamenn: Maríanna Jóhannsdóttir, Bára Dögg Þórhallsdóttir, Vignir Elvar Vignisson.

Fljótsdalshérað, kjördeild 2 vegna sveitarstjórnarkosninga. Aðalmenn: Inga Rós Unnarsdóttir, Guðmundur Þorsteinsson, Fríða Margrét Sigvaldadóttir. Varamenn: Baldur Grétarsson, Guðmundur Sveinsson Kröyer, Anna Dís Jónsdóttir.

Fljótsdalshérað, kjördeild 1 vegna heimastjórnarkosningar. Aðalmenn: Aron Thorarensen, Sigurlaug Jónasdóttir, Arnar Jón Óskarsson. Varamenn: Ingibjörg Þuríður Stefánsdóttir, Hafþór Atli Rúnarsson, Guðný B. Kjartansdóttir Briem.

Fljótsdalshérað, kjördeild 2 vegna heimastjórnarkosningar. Aðalmenn: Nína Heiðrún Óskarsdóttir, Hugborg Hjörleifsdóttir, Hlynur Ármannsson. Varamenn: Sóley Garðarsdóttir, Antoníus Bjarki Halldórsson, Þórey Hákonardóttir.

Borgarfjörður, kjördeild vegna sveitarstjórnarkosningar og heimastjórnarkosningar. Aðalmenn: Sigurður Högni Sigurðsson, Lindsey Suzanne Lee, Sigurlaug Margrét Bragadóttir. Varamenn: Alda Marín Kristinsdóttir, Óttar Már Kárason, Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar.

Seyðisfjörður, kjördeild vegna sveitarstjórnarkosningar og heimastjórnarkosningar. Aðalmenn: Bára Mjöll Jónsdóttir, Þorsteinn Sotti Arason, Sigrún Rósa Björgvinsdóttir. Varamenn: Sigurður Snæbjörn Stefánsson, Elena Pétursdóttir, Margrét Urður Snorradóttir.

Djúpivogur, kjördeild vegna sveitarstjórnarkosningar og heimastjórnarkosningar. Aðalmenn: Egill Egilsson, Kristrún Gunnarsdóttir, Ólöf Vilbergsdóttir. Varamenn: Sóley Dögg Birgisdóttir, Unnþór Snæbjörnsson, Hera Líf Liljudóttir.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Mikilvægi Egilsstaðaflugvallar

Málsnúmer 202603058Vakta málsnúmer

Þann 26. febrúar 2026 þurftu 16 farþegaþotur að hætta við lendingu á Keflavíkurflugvelli vegna slæmra veðurskilyrða og lenda á varaflugvöllum hér á landi.
Til máls tóku: Berglind Harpa Svavarsdóttir, Þröstur Jónsson sem gerði grein fyrir atkvæði sínu.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Við framangreindar aðstæður kom í ljós mikilvægi þess að tryggt verði, til viðbótar við fyrirliggjandi framkvæmdir við akbraut á Egilsstaðaflugvelli, að til staðar séu fullnægjandi eldsneytisbirgðir á flugvellinum og að lenging flugbrautarinnar verði sett í forgang. Í Flugstefnu Íslands er Egilsstaðaflugvöllur skilgreindur í forgangi í uppbyggingu varaflugvalla sökum góðra aðstæðna.

Sveitarstjórn Múlaþings skorar á ríkisstjórn Íslands að koma framangreindum fjárfestingum einnig fyrir í uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar til þess að tryggja alþjóðlegt flugöryggi hér á landi.

Sveitarstjóra falið að koma erindinu til viðeigandi ráðherra.

Samþykkt með 10 atkvæðum, einn sat hjá (ÞJ).

5.Kosning fulltrúa í embætti, stjórnir, ráð og nefndir

Málsnúmer 202205380Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tölvupóstur, dagsettur 9. mars 2026, frá Guðnýju Láru Guðrúnardóttur, þar sem óskað er eftir áframhaldandi tímabundinni lausn frá störfum í sveitarstjórn, fjölskylduráði og heimastjórn Djúpavogs til og með 31. maí 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að veita Guðnýju Láru Guðrúnardóttur áframhaldandi lausn frá setu í sveitarstjórn, fjölskylduráði og heimastjórn Djúpavogs. Einar Freyr Guðmundsson tekur áfram sæti sem aðalmaður í sveitarstjórn Múlaþings og aðalmaður í fjölskylduráði til og með 31. maí 2026, í stað Guðnýjar Láru. Varamaður Guðnýjar Láru í fjölskylduráði verður áfram til sama tíma Guðný Margrét Hjaltadóttir. Ívar Karl Hafliðason tekur áfram sæti sem formaður heimastjórnar á Djúpavogi og Einar Freyr Guðmundsson sem varamaður formanns til og með 31. maí 2026, í stað Guðnýjar Láru.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Gjaldskrár 2026

Málsnúmer 202508030Vakta málsnúmer

Fyrir liggur gjaldskrá fyrir Hlymsdali sem samþykkt var í fjölskylduráði Múlaþings 17. febrúar 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá fyrir Hlymsdali.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Gjaldskrá Fjarðarborgar

Málsnúmer 202601139Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að gjaldskrá fyrir félagsheimilið Fjarðarborg sem samþykkt var í byggðaráði Múlaþings 17. febrúar 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá fyrir félagsheimilið Fjarðarborg.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Reglur Múlaþings um úthlutun íbúða eldri borgara á Múlavegi á Seyðisfirði

Málsnúmer 202601143Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að reglum Múlaþings um úthlutun íbúða eldri borgara á Múlavegi á Seyðisfirði sem samþykkt voru í fjölskylduráði Múlaþings 17. febrúar 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi reglur Múlaþings um úthlutun íbúða eldri borgara á Múlavegi á Seyðisfirði.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

9.Reglur Múlaþings um sérstakan húsnæðisstuðning

Málsnúmer 202602057Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að breytingum á reglum Múlaþings um sérstakan húsnæðisstuðning sem samþykkt voru í fjölskylduráði Múlaþings 17. febrúar 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi breytingar á reglum Múlaþings um sérstakan húsnæðisstuðning.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

10.Reglur um noktun Hlymsdala

Málsnúmer 202511009Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að reglum fyrir afnot af Hlymsdölum sem samþykkt voru í fjölskylduráði Múlaþings 17. febrúar 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi reglur fyrir afnot af Hlymsdölum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

11.Heimastjórn Djúpavogs - 69

Málsnúmer 2602008FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Djúpavogs frá 5. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

12.Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 67

Málsnúmer 2602018FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Fljótsdalshéraðs frá 5. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

13.Heimastjórn Seyðisfjarðar - 66

Málsnúmer 2602013FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Seyðisfjarðar frá 6. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Byggðaráð Múlaþings - 179

Málsnúmer 2602005FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 17. febrúar 2026.
Til máls tóku: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 2 og lið 3, Ívar Karl Hafliðason sem svaraði Ásrúnu varðandi lið 3, Dagmar Ýr Stefánsdóttir sem einnig svaraði Ásrúnu varðandi lið 3, Berglind Harpa Svavarsdóttir um lið 2 og 3, Hildur Þórisdóttir um lið 3, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 3 og 2, Dagmar Ýr Stefánsdóttir um lið 3, Helgi Hlynur Ásgrímsson um lið 3, Berglind Harpa Svavarsdóttir um lið 3.

Lagt fram til kynningar.

15.Byggðaráð Múlaþings - 180

Málsnúmer 2602011FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 24. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

16.Byggðaráð Múlaþings - 181

Málsnúmer 2602015FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 3. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

17.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 174

Málsnúmer 2602004FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 16. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

18.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 175

Málsnúmer 2602010FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 23. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

19.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 176

Málsnúmer 2602016FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 2. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

20.Fjölskylduráð Múlaþings - 152

Málsnúmer 2602007FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 17. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

21.Fjölskylduráð Múlaþings - 153

Málsnúmer 2602019FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 3. mars 2026.
Til máls tóku: Þröstur Jónsson um lið 7, Björg Eyþórsdóttir um lið 7 og svaraði Þresti, Einar Freyr Guðmundsson um lið 7, Hildur Þórisdóttir um lið 7, Eyþór Stefánsson um lið 7, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 7, Þröstur Jónsson um lið 7 ig beindi fyrirspurn til Einars Freys, Einar Freyr sem svaraði Þresti, Helgi Hlynur Ásgrímsson um lið 7, Þröstur Jónsson um lið 7.

Lagt fram til kynningar.

22.Ungmennaráð Múlaþings - 46

Málsnúmer 2601024FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð ungmennaráðs Múlaþings frá 26. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

23.Skýrsla sveitarstjóra 2026

Málsnúmer 202601052Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri fór yfir og kynnti helstu mál sem hann hefur unnið að undanförnu og þau verkefni sem fram undan eru.

Fundi slitið - kl. 15:05.

Getum við bætt efni þessarar síðu?