Fara í efni

Erindi frá íbúa vegna samgönguáætlunar

Málsnúmer 202602224

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 181. fundur - 03.03.2026

Fyrir liggur bréf frá Þorvaldi Jóhannssyni, dagsett 23. febrúar 2026, þar sem fjallað er um þá ákvörðun Eyjólfs Ármanssonar að breyta samþykktri forgangsröðun jarðganga í nýrri samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040. Lagt er til að málsmeðferð ráðherra verði vísað til Umboðsmanns Alþingis.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 66. fundur - 05.03.2026

Fyrir liggur erindi frá Þorvaldi Jóhannsyni, þar sem fjallað er um samgöngumál á Seyðisfirði og gagnrýni á málsmeðferð innviðaráðherra í tengslum við Fjarðarheiðargöng. Í erindinu er lagt til að sveitarstjórn Múlaþings beiti sér fyrir því að kvörtun verði send til umboðsmanns Alþingis vegna málsins.
Fyrir fundinum liggur minnisblað frá Aroni Thorarensen, lögfræðingi Múlaþings, dags. 24. febrúar 2026, þar sem farið er yfir lagalega stöðu málsins og heimildir til að beina kvörtun til umboðsmanns Alþingis. Í minnisblaðinu kemur fram að samkvæmt lögum nr. 85/1997 um umboðsmann Alþingis geti einstaklingar kvartað til umboðsmanns vegna ætlaðrar rangsleitni af hálfu stjórnvalda. Það hefur verið túlkað með því móti að stjórnvöld, þar á meðal sveitarfélög, geti almennt ekki kvartað til umboðsmanns vegna annarra stjórnvalda, svo sem ráðherra. Jafnframt er bent á að starfssvið umboðsmanns nær ekki til starfa Alþingis eða stofnana þess, en það er hlutverk Alþingis að samþykkja samgönguáætlun. Þó er ekki útilokað að umboðsmaður taki mál til skoðunar að eigin frumkvæði samkvæmt 5. gr. laganna. Sveitarfélag getur því sent umboðsmanni bréf þar sem athygli hans er vakin á málinu og óskað eftir að hann taki það til skoðunar sem frumkvæðismál, en ákvörðun um slíkt er alfarið í höndum umboðsmanns.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn hvetur sveitarstjóra til að vekja athygli umboðsmanns á málinu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.



Getum við bætt efni þessarar síðu?