Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

181. fundur 03. mars 2026 kl. 08:30 - 12:20 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Vilhjálmur Jónsson varaformaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Þröstur Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Guðlaugur Sæbjörnsson sviðsstjóri fjármála
  • Óðinn Gunnar Óðinsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
  • Hlynur Jónsson verðandi sviðsstjóri stjórnsýslu
Fundargerð ritaði: Óðinn Gunnar Óðinsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða fjármál og rekstur sveitarfélagsins.

2.Ársreikningur Múlaþings 2025

Málsnúmer 202602270Vakta málsnúmer

Magnús Jónsson og Ingimar Guðmundsson mættu á fundinn undir þessum lið og kynntu drög að ársreikningi sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.

3.Afslættir af gatnagerðargjöldum í Múlaþingi 2026-2030

Málsnúmer 202602089Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun frá fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 16. febrúar 2026, þar sem því er vísað til byggðarráðs að taka til umfjöllunar tillögu um afslætti á gatnagerðargjöldum af iðnaðar-, athafna-, verslunar- og þjónustulóðum. Málið var á dagskrá byggðaráðs 24. febrúar 2026. Inn á fundinn undir þessum lið mætti Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda.
Í vinnslu.

4.Skráning lögheimilis án tilgreinds heimilisfangs

Málsnúmer 202507010Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 20. febrúar 2026, varðandi skráningu lögheimilis án tilgreinds heimilisfangs.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings skorar á dómsmálaráðherra að setja á fót hið fyrsta spretthóp ráðuneyta og Sambands íslenskra sveitarfélaga til að endurskoða lög um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018 svo tryggt sé að skipulagsvald sveitarfélaga sé virt í samræmi við vilja sveitarfélaga landsins.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Samráðgátt. Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati

Málsnúmer 202602246Vakta málsnúmer

Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs, í Samráðsgátt, mál nr. S 51/2026, Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati. Umsagnarfrestur er til og með 6. mars 2026. Á fundinn undir þessum lið mætir Jónína Brynjólfsdóttir.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að senda inn umsögn um frumvarpið í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt með 4 atkvæðum með handauppréttingu, einn sat hjá (HHÁ).

6.Erindi frá íbúa vegna samgönguáætlunar

Málsnúmer 202602224Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bréf frá Þorvaldi Jóhannssyni, dagsett 23. febrúar 2026, þar sem fjallað er um þá ákvörðun Eyjólfs Ármanssonar að breyta samþykktri forgangsröðun jarðganga í nýrri samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040. Lagt er til að málsmeðferð ráðherra verði vísað til Umboðsmanns Alþingis.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Sveitarstjórnarkosningar 2026

Málsnúmer 202512171Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað frá sviðsstjóra stjórnsýslu varðandi fyrirkomulag sveitarstjórnarkosninga og heimastjórnakosninga í Múlaþingi 16. maí 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að kjörstaðir vegna sveitarstjórnar- og heimastjórnakosninga í Múlaþingi 16. maí 2026 verði eftirfarandi:
Borgarfjörður: Grunnskólinn á Borgarfirði. Djúpivogur: Tryggvabúð Djúpavogi. Fljótsdalshérað: Menntaskólinn á Egilstöðum. Seyðisfjörður: Íþróttamiðstöðin á Seyðisfirði.
Jafnframt samþykkir byggðaráð að kjördeildir við sveitarstjórnarkosningarnar og heimastjórnarkosningarnar verða fimm talsins, þar af tvær á Fljótsdalshéraði. Kjördeildirnar á Fljótsdalshéraði skiptast þannig: Í kjördeild 1 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum A til og með bókstafnum M. Í kjördeild 2 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur hverra nöfn byrja á bókstafnum N til og með Ö, íbúar í Fellabæ, Eiðum og Hallormsstað og íbúar í dreifbýli á Fljótsdalshéraði. Í kjördeildum 1 og 2 á Fljótsdalshéraði verða sérstakar kjörstjórnir annars vegar vegna sveitarstjórnarkosninga og hins vegar vegna heimastjórnarkosninga.
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi lista fulltrúa í yfirkjörstjórn Múlaþings og kjörstjórna á Borgarfirði, Djúpavogi, Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði.
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að óska eftir því við sýslumann að hægt verði að kjósa utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga á skrifstofum sveitarfélagsins á Borgarfirði og Djúpavogi, frá og með 30. apríl til og með 15. maí 2026.
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að óska eftir því við sýslumann að kjörstjórar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna sveitarstjórnarkosninga verði Alda Marín Kristinsdóttir, Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar og Þórunn Ólafsdóttir á Borgarfirði og Ólöf Vilbergsdóttir á Djúpavogi.
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna heimastjórnakosninga fari fram á skrifstofum sveitarfélagsins á Borgarfirði, Djúpavogi, Egilsstöðum og Seyðisfirði frá og með 30. apríl til og með 15. maí 2026.

Byggðaráð vísar framangreindum afgreiðslum til sveitarstjórnar Múlaþings til staðfestingar.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

8.Stuðningur við Kór Egilsstaðakirkju

Málsnúmer 202512199Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bréf frá stjórn kórs Egilsstaðakirkju, dagsett 22. desember 2025, þar sem óskað er eftir fjárhagslegum stuðningi við starfsemi kórsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings getur ekki orðið við fyrirliggjandi styrkbeiðni en hvetur kórinn til að sækja um menningarstyrk til Múlaþings næst þegar hann verður auglýstur. Byggðaráð ítrekar bókun sína frá 9. janúar 2024 þar sem meðal annars kemur fram að “samkvæmt úthlutunarreglum Múlaþings sé ekki hægt að verða við beiðni kórs Egilsstaðakirkju um langtímasamning. Vakin er athygli á að sveitarfélagið úthlutar styrkjum til sértækra menningarverkefna tvisvar á ári og eru aðilar hvattir til að nýta sér þann valkost".

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

9.Beiðni um ferðastyrk

Málsnúmer 202602192Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tölvupóstur, dagsettur 19. febrúar 2026, frá formanni Kammerkórs Egilsstaðakirkju, þar sem óskað er eftir ferða- og gististyrk fyrir kórinn.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings getur ekki orðið við fyrirliggjandi styrkbeiðni en hvetur kórinn til að sækja um menningarstyrk næst þegar hann verður auglýstur.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

10.Aðalfundur Ársala bs. 2026

Málsnúmer 202602268Vakta málsnúmer

Fyrir liggur boð á aðalfund Ársala bs. 2026 auk ársreiknings félagsins fyrir árið 2025.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að sveitastjóri, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, fari með umboð og atkvæði sveitarfélagsins á aðalfundi Ársala bs. 2026.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

11.Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202602028Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tölvupóstur dagsettur 3. febrúar 2026, frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem vakin er athygli á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem haldið verður á Akureyri dagana 23. til 25. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

12.Fundargerðir stjórnar Tækniminjasafns Austurlands

Málsnúmer 202602139Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Tækniminjasafns Austurlands frá 29. janúr 2026.
Lagt fram til kynningar.

13.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202601171Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 993, frá 18. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Fundagerðir SSA 2026

Málsnúmer 202601173Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundagerð SSA dagsett 20. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

15.Fundagerðir Austurbrúar 2026

Málsnúmer 202601174Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Austurbrúar dagsett 20. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:20.

Getum við bætt efni þessarar síðu?