Fara í efni

Endurnýjun fræðslusamnings við Samtökin '78

Málsnúmer 202602226

Vakta málsnúmer

Ungmennaráð Múlaþings - 46. fundur - 26.02.2026

Drög að endurnýjuðum fræðslusamningi Múlaþings og Samtakanna '78 lögð fram til kynningar.
Ungmennaráð lýsir yfir ánægju með áframhaldandi samstarf við Samtökin '78 og undirstrikar mikilvægi þessarar fræðslu fyrir samfélagið.

Fjölskylduráð Múlaþings - 153. fundur - 03.03.2026

Fyrir liggur endurnýjaður fræðslusamningur við Samtökin '78 fyrir tímabilið 2026-2028. Fyrri samningur var undirritaður árið 2023.
Fjölskylduráð fagnar endurnýjun samnings við Samtökin '78 og leggur áherslu á að fræðsla sé ein besta forvörnin gegn fordómum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Bókun Þrastar Jónssonar:
Í ljósi upplýsinga sem betur og betur virðast leiða í ljós að svo nefnd fræði eða boðskapur sem S78 grundvalla þjónustu sína á, séu mjög véfengjanleg og jafnvel skaðleg börnum tel ég rétt að fresta ákvörðun um endurnýjun samnings Múlaþings og S78 fram yfir kosningar. Einnig er óviðeigandi að binda hendur nýrrar sveitastjórnar með slíkum langtímasamningi til þriggja ára.
Bókun þessari til stuðnings hef ég lagt fyrir þennan fund bréf barnavelferðar- og foreldrafélagsins Dregnlyndis til lýðheilsuráðs Akureyrar og Bæjarstjórnar Akureyrar, þar sem samtökin lýsa yfir þungum áhyggjum vegna samsvarandi endurnýjunar Akureyrarbæjar á samning við S78. Þar er rökstudd gagnrýni, með vísan í heimildir, á ofangreindan grunn sem S78 grundvalla þjónustu sína á, þar með talin svo nefnd Cass-skýrsla sem hefur vakið mikla athygli víða um heim.
Æski ég þess að bréf þetta fylgi sem opinbert gagn með fundargerð þessa fundar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?