Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

153. fundur 03. mars 2026 kl. 12:30 - 16:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Sigurður Gunnarsson formaður
  • Björg Eyþórsdóttir varaformaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Einar Freyr Guðmundsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Eyþór Stefánsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Þröstur Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Stefanía Malen Stefánsdóttir grunnskólafulltrúi
  • Marta Wium Hermannsdóttir leikskólafulltrúi
  • Ingibjörg Jónsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
Áheyrnarfulltrúar grunnskóla Dagbjört Kristinsdóttir, Karen Sveinsdóttir og Agla Þorsteinsdóttir sátu liði 1-7. Áheyrnarfulltrúar leikskóla Dagur Hákon Rafnsson og Kolbrún Nanna Magnúsdóttir sátu liði 7-8. Skólastjórarnir Viðar Jónsson og Ásgrímur Ingi Arngrímsson fylgdu eftir liðum sinna skóla.

1.Fellskóli - breyting á skóladagatali 2025-2026

Málsnúmer 202602265Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Önnu Birnu Einarsdóttur, skólastjóra Fellaskóla, dagsett 25. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir heimild til að hafa skertan skóladag 22. apríl nk. vegna náms- og fræðsluferðar starfsfólks.
Fjölskylduráð samþykkir skertan skóladag þann 22. apríl næstkomandi. Ráðið óskar starfsfólki Fellaskóla góðrar og lærdómsríkar námsferðar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Matsferill námsmatskerfi MMS

Málsnúmer 202602179Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum liggur til kynningar námsmatskerfið Matsferill, sem ætlað er að fylgjast markvisst með stöðu og framvindu nemenda í grunnskólum.
Lagt fram til kynningar.

3.Innleiðing nemendagrunns Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Málsnúmer 202411165Vakta málsnúmer

Fyrir liggur kynning á Nemendagrunni sem er miðlægur gagnagrunnur þar sem vistaðar eru samræmdar upplýsingar um alla nemendur á grunnskólaaldri á Íslandi. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu heldur utan um Nemendagrunninn.
Lagt fram til kynningar.

4.Ytra mat Brúarásskóli

Málsnúmer 202104020Vakta málsnúmer

Fyrir liggur staðfesting, dagsett 23. febrúar 2026, þess efnis að eftirfylgni mennta- og barnamálaráðuneytisins með umbótum í kjölfar úttektar á Brúarásskóla árið 2018 sé lokið.
Lagt fram til kynningar.

5.Starfamessa Austurlands 2026

Málsnúmer 202602235Vakta málsnúmer

Kynning á Starfamessu Austurlands sem haldin verður 24. september 2026 í Neskaupstað. Starfamessan er samstarfsverkefni grunn- og framhaldsskóla á Austurlandi, auk Austurbrúar og SSA.
Lagt fram til kynningar.

6.Fundargerðir skólaráðs Egilsstaðaskóla

Málsnúmer 202010627Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn liggur fundargerð skólaráðs Egilsstaðaskóla, dagsett 25. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

7.Endurnýjun fræðslusamnings við Samtökin '78

Málsnúmer 202602226Vakta málsnúmer

Fyrir liggur endurnýjaður fræðslusamningur við Samtökin '78 fyrir tímabilið 2026-2028. Fyrri samningur var undirritaður árið 2023.
Fjölskylduráð fagnar endurnýjun samnings við Samtökin '78 og leggur áherslu á að fræðsla sé ein besta forvörnin gegn fordómum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Bókun Þrastar Jónssonar:
Í ljósi upplýsinga sem betur og betur virðast leiða í ljós að svo nefnd fræði eða boðskapur sem S78 grundvalla þjónustu sína á, séu mjög véfengjanleg og jafnvel skaðleg börnum tel ég rétt að fresta ákvörðun um endurnýjun samnings Múlaþings og S78 fram yfir kosningar. Einnig er óviðeigandi að binda hendur nýrrar sveitastjórnar með slíkum langtímasamningi til þriggja ára.
Bókun þessari til stuðnings hef ég lagt fyrir þennan fund bréf barnavelferðar- og foreldrafélagsins Dregnlyndis til lýðheilsuráðs Akureyrar og Bæjarstjórnar Akureyrar, þar sem samtökin lýsa yfir þungum áhyggjum vegna samsvarandi endurnýjunar Akureyrarbæjar á samning við S78. Þar er rökstudd gagnrýni, með vísan í heimildir, á ofangreindan grunn sem S78 grundvalla þjónustu sína á, þar með talin svo nefnd Cass-skýrsla sem hefur vakið mikla athygli víða um heim.
Æski ég þess að bréf þetta fylgi sem opinbert gagn með fundargerð þessa fundar.

8.Starfsumhverfi leikskóla

Málsnúmer 202602258Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað til kynningar á starfsumhverfi leikskóla.
Í vinnslu.

9.Skýrsla sviðstjóra fjölskyldusviðs 2026

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Skýrsla lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?