Fara í efni

Ungmennaráð Múlaþings

46. fundur 26. febrúar 2026 kl. 16:15 - 18:50 í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Aron Bergur Hjaltason aðalmaður
  • Agla Eik Frostadóttir aðalmaður
  • Árni Stefán Ólafsson varamaður
  • Bríet Eva Ágústsdóttir aðalmaður
  • Edda Lind Einarsdóttir Hallbach varafulltrúi
  • Egill Freyr Ólafsson aðalmaður
  • Helgi Sævar Steingrímsson aðalmaður
  • Ína Berglind Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Jóhann Smári Kjartansson aðalmaður
  • Rakel Wium Ágústsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Þórunn Ólafsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Þórunn Ólafsdóttir Verkefnastjóri á fjölskyldusviði

1.Rannís umsóknir, frístundir og forvarnir

Málsnúmer 202410215Vakta málsnúmer

Skipulag Erasmus-ungmennaskipta sem fara fram í Múlaþingi í apríl nk.
Verkefnastjóri og fulltrúi ungmennaráðs segja frá undirbúningsferð til Finnlands sem farin var í byrjun febrúar 2026.
Gestur fundarins er Hildur Bergsdóttir.
Hildur Bergsdóttir fór yfir reynslu sína af Erasmus verkefnum og kynnti rokkverkefni sem fer fram í Vegahúsinu í mars. Öllum ungmennum er frjálst að taka þátt í verkefninu.
Ungmennaráð ræddi fyrirkomulag ungmennaskiptanna í apríl og tekin var ákvörðun um að hópurinn gisti á Egilsstöðum af ýmsum praktískum ástæðum.
Fulltrúar ræða málin við foreldra og láta verkefnastjóra vita fyrir 10. mars hvort þau geta tekið þátt.
Ef flreiri vilja taka þátt en komast að verður tekin sameiginleg ákvörðun um hvernig valið verður í hópinn.

2.Ungmennaþing 2026

Málsnúmer 202601206Vakta málsnúmer

Umræður um ungmennaþing 2026.
Vilji fyrir að fá fjölbreytt erindi og fræðslu, t.d. um símareglur, skjánotkun og samfélagsmiðla. Líttu upp-verkefnið nefnt í því samhengi.
Erindi frá lögreglunni um afleiðingar þess að brjóta lög, t.d. skemmdarverk og ofbeldi.
Umræður í anda Öruggara Austurland.
Fræðsla um fordóma og staðalmyndir.
Fræðsla um lýðræði og hlutverk sveitarfélaga. Kynna hlutverk ungmennaráðs.
Mögulega kynningu frá Rannís á Erasmus-tækifærum.

3.Endurnýjun fræðslusamnings við Samtökin '78

Málsnúmer 202602226Vakta málsnúmer

Drög að endurnýjuðum fræðslusamningi Múlaþings og Samtakanna '78 lögð fram til kynningar.
Ungmennaráð lýsir yfir ánægju með áframhaldandi samstarf við Samtökin '78 og undirstrikar mikilvægi þessarar fræðslu fyrir samfélagið.

4.Skýrsla verkefnastjóra

Málsnúmer 202601208Vakta málsnúmer

Önnur mál.
Engin önnur mál

Fundi slitið - kl. 18:50.

Getum við bætt efni þessarar síðu?