Fara í efni

Hraðhleðslustöð á Borgarfirði eystri

Málsnúmer 202603008

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 180. fundur - 20.04.2026

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur minnisblað um samantekt af fundum við orkusöluðaðila vegna fyrirhugaðrar uppsetningar hraðhleðslustöðvar á Borgarfirði eystri.
Formaður heimastjórnar á Borgarfirði situr fundinn undir þessum lið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til að Orkusölunni verði boðið svæðið til afnota fyrir hraðhleðslustöð/stöðvar, við lóð Spennustöðvar RARIKS. Ráðið vísar málinu til umsagnar hjá heimastjórn Borgarfjarðar og felur starfsmönnum að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 69. fundur - 07.05.2026

Fyrir liggur bókun frá umhverfis- og framkvæmdaráði frá 20. apríl 2026 þar sem eftirfarandi var bókað:
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til að Orkusölunni verði boðið svæðið til afnota fyrir hraðhleðslustöð/stöðvar, við lóð Spennustöðvar RARIK. Ráðið vísar málinu til umsagnar hjá heimastjórn Borgarfjarðar og felur starfsmönnum að vinna málið áfram.

Heimastjórn Borgarfjarðar fagnar áhuga þeirra aðila sem selja orku á rafbíla til uppsetningar á hleðslustöðvum á Borgarfirði.
Heimastjórn leggst ekki gegn uppsetningu hraðhleðslustöðvar við nýja spennustöð RARIK við Bakkaá en bendir á að svæðið er afar þröngt og fyrirséð að erfitt verði að koma þar að stærri ökutækjum. Þá þarf að huga að umferðaröryggi bæði vegna gangandi og akandi umferðar um Eyrarbratta en þar eru engar gangstéttar og veghalli talsverður við gatnamót.
Til lengri tíma litið vill heimastjórn finna hleðslu- og bensínstöðvum betri staðsetningu og ítrekar fyrri hugmyndir sínar um að horfa til Hólstúns eða lóðarinnar norðan við rafstöð Rarik við Hólalandsveg.

Samþykkt samhljóða án atkvæðargreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?