Fara í efni

Heimastjórn Borgarfjarðar

69. fundur 07. maí 2026 kl. 09:00 - 11:00 á skrifstofu sveitarfélagsins, Borgarfirði
Nefndarmenn
  • Eyþór Stefánsson formaður
  • Ólafur Arnar Hallgrímsson aðalmaður
  • Elísabet Dögg Sveinsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Alda Marín Kristinsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Alda Marín Kristinsdóttir fulltrúi sveitarstjóra

1.Víknaslóðir, leyfisbeiðni vegna viðbótar við leiðarkerfi

Málsnúmer 202504009Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Sigurlaugi Elíassyni fyrir hönd landeigenda í Brúnavík til Múlaþings, dagsett 29. mars 2026, vegna beiðnar Ferðamálahóps Borgarfjarðar um leyfi fyrir hönnun og framkvæmd á göngu- og hjólaleiðum í Brúnavík. Málið var áður á dagskrá heimastjórnar Borgafjarðar 8. maí 2025.
Samkvæmt reglugerð nr. 205/1973 um náttúruvernd er hlutverk náttúruverndarnefnda meðal annars að stuðla að náttúruvernd á sínu svæði og skulu þær fylgjast með því að náttúru landsins sé ekki spillt með athöfnum sem brjóta í bága við ákvæði og fyrirmæli laga. Þær eiga meðal annars að hafa gát á yfirvofandi akstri utan vega og umgengni í óbyggðum og stuðla að auknum möguleikum almennings til útivistar.
Fjallahjólreiðar njóta sívaxandi vinsælda sem útivistarmáti og ef vilji er til að stýra því hvar þær fara fram þarf að skipuleggja slíkar leiðir ellegar fara þær fram á leiðum sem eru ekki til þess búnar að bera slíka umferð. Heimastjórn stendur við fyrri bókun sína um málið þar sem hún gerir ekki athugasemdir fyrir sitt leyti við uppbyggingu fjallahjólaleiða á svæðinu svo fremi sem það verði gert í sátt við landeigendur svæðisins og Ferðafélag Fljótsdalshéraðs (ábyrgðaraðila gönguleiðanna) og framkvæmdin verði í samræmi við gildandi reglur og lög. Heimastjórn hefur engar valdheimildir til að leyfa slíka uppbyggingu og mun ekki beita sér fyrir henni nema samþykki landeigenda liggi fyrir.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

2.Hraðhleðslustöð á Borgarfirði eystri

Málsnúmer 202603008Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun frá umhverfis- og framkvæmdaráði frá 20. apríl 2026 þar sem eftirfarandi var bókað:
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til að Orkusölunni verði boðið svæðið til afnota fyrir hraðhleðslustöð/stöðvar, við lóð Spennustöðvar RARIK. Ráðið vísar málinu til umsagnar hjá heimastjórn Borgarfjarðar og felur starfsmönnum að vinna málið áfram.

Heimastjórn Borgarfjarðar fagnar áhuga þeirra aðila sem selja orku á rafbíla til uppsetningar á hleðslustöðvum á Borgarfirði.
Heimastjórn leggst ekki gegn uppsetningu hraðhleðslustöðvar við nýja spennustöð RARIK við Bakkaá en bendir á að svæðið er afar þröngt og fyrirséð að erfitt verði að koma þar að stærri ökutækjum. Þá þarf að huga að umferðaröryggi bæði vegna gangandi og akandi umferðar um Eyrarbratta en þar eru engar gangstéttar og veghalli talsverður við gatnamót.
Til lengri tíma litið vill heimastjórn finna hleðslu- og bensínstöðvum betri staðsetningu og ítrekar fyrri hugmyndir sínar um að horfa til Hólstúns eða lóðarinnar norðan við rafstöð Rarik við Hólalandsveg.

Samþykkt samhljóða án atkvæðargreiðslu.

3.Fundir sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna júní til desember 2026

Málsnúmer 202604259Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að fundadagatali allra nefnda fyrir tímabilið júní til desember 2026.
Heimstjórn gerir ekki athugasemdir við drögin.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Borgarfirði

Málsnúmer 202212043Vakta málsnúmer

Síðasti íbúafundur heimastjórnar á kjörtímabilinu var haldinn þriðjudaginn 21. apríl síðastliðinn. Um þrjátíu gestir mættu og hlýddu á erindi frá Glúmi Björnssyni frá HEF veitum og Hugrúnu Hjálmarsdóttur sviðstjóra framkvæmdamála. Líflegar umræður voru á fundinum um ýmis mál, svo sem jarðhitaleit, götulýsingu, slæmt ástand gatna og hraðatakmarkanir í þorpinu. Ábendingum verður komið á viðeigandi staði.

Vakin er athygli á að nýr kjörstaður á Borgarfirði verður í grunnskólanum og skal gengið inn um aðalinngang frá bílastæði (ekki í gegnum leikskólagarðinn).

Ljóst er að hafnarframkvæmdum seinkar vegna tafa á afhendingu á harðviði og því fyrirséð að framkvæmdir standi yfir í sumar. Fulltrúi sveitarstjóra mun verða í sambandi við sjómenn vegna þessa en framkvæmdaraðilar munu leggja sig alla fram við að vinna verkið í góðu samstarfi við notendur hafnarinnar.

Gjaldtaka við Hafnarhólma hefst í maí en dregist hefur að koma henni af stað en óhapp varð í vikunni þegar önnur myndavélin við bílastæðið var ekin niður og skemmdist lítillega. Von er á viðgerðarmanni frá rekstraraðila tækjanna.

Vonir standa til að lundamyndavélin í Hafnarhólma komist í betra lag á næstunni en truflanir hafa verið á útsendingu, eins og einhverjir hafa tekið eftir.

Verið er að leggja lokahönd á bruna- og loftræstikerfi í Fjarðarborg. Kjallarinn undir sviði verður einnig kláraður fyrir sumarið.

Verið er að undirbúa lagningu nýrrar gangstéttar við aðalgötuna í gegnum þorpið en það verk hófst í fyrra. Verður gangstétt meðal annars lengd út að afleggjara að tjaldsvæði.

Fyrsta leiðangursskip sumarsins kemur á Borgarfjörð næstkomandi þriðjudag, 12. maí en alls eru 14 komur áætlaðar í ár. Hægt er að skoða finna dagatal með skipakomum í allar hafnir Múlaþings á vefsíðunni www.portsofmulathing.is.

5.Fundir Heimastjórnar Borgarfjarðar

Málsnúmer 202010615Vakta málsnúmer

Tímasetning fyrsta heimastjórnarfundar á nýju kjörtímabili liggur ekki fyrir á þessari stundu. Erindi fyrir fundinn skal senda á netfangið alda.kristinsdottir@mulathing.is eða bréfleiðis á skrifstofu.

Fráfarandi heimastjórn þakkar kærlega fyrir kjörtímabilið og hvetur íbúa til að bjóða sig fram til setu í heimastjórn.

Fundi slitið - kl. 11:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?