Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

180. fundur 20. apríl 2026 kl. 08:30 - 11:36 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Þórhallur Borgarson varaformaður
  • Björgvin Stefán Pétursson aðalmaður
  • Ásdís Hafrún Benediktsdóttir aðalmaður
  • Eiður Gísli Guðmundsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Pétur Heimisson aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Guðný Margrét Hjaltadóttir varamaður
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Þórhallur Borgarson, aðalmaður, sat fundinn undir eftirfarandi liðum: 1, 2, 3, 4, 5, 8 og 9.
Guðný Margrét Hjaltadóttir, varamaður, sat fundinn undir eftirfarandi liðum: 6, 7, 10 og 11.

Sóley Valdimarsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála, sat fundinn undir liðum 2.-10.
Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri, sat fundinn undir lið 6.
Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála, sat fundinn undir lið 10.
Glúmur Björnsson, starfsmaður HEF Veitna, sat fundinn undir lið 11.

1.Umsagnarbeiðni, Endurskoðun á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Málsnúmer 202604064Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni um umsögn Múlaþings við auglýsingu að tillögu að nýju aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar, mál nr. 11/2023 í Skipulagsgátt, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Athugasemdafrestur við bæði aðalskipulagstillögu og tillögu að skrá yfir vegi í náttúru Íslands er til og með 12. júní 2026 og skal athugasemdum skilað í Skipulagsgátt.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi skipulagstillögu.

Samþykkt samhljóða.

2.Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Úlfsstaðaskógur 45 - Umfangsflokkur 1

Málsnúmer 202603266Vakta málsnúmer

Fyrir liggja gögn um byggingaráform og byggingarleyfi í Úlfsstaðaskógi 45 (L209276).
Ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu og liggur fyrir ráðinu að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir með vísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og með hliðsjón af því að ekki er líklegt að áformin hafi veruleg grenndaráhrif, að falla frá grenndarkynningu og vísar málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Samþykkt samhljóða.

3.Umsókn um framkvæmdaleyfi, Tengivirki við Hryggstekk

Málsnúmer 202603258Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdarleyfi frá Landsneti hf. vegna nýs tengivirkis við Hryggstekk í Skriðdal.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi á grundvelli fyrirliggjandi gagna.

Samþykkt samhljóða.

4.Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá, Desjarmýri 2

Málsnúmer 202502152Vakta málsnúmer

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu jarðarinnar Desjarmýri (L157234) sem er í eigu Þjóðkirkjunnar. Skipta á upp jörðinni í tvo hluta; annars vegar ræktunarland og byggingar og hins vegar afrétt. Heiti nýrrar landeignar verður Desjarmýri 2.
Jafnframt liggur fyrir viljayfirlýsing milli landeiganda og ábúanda þar sem staðfest er að gengið verði frá gagnkvæmum forkaupsrétti milli Desjarmýrar 1 og 2 og að gerður verði leigusamningur um afréttinn.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

5.Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá, Stórhóll 2

Málsnúmer 202604045Vakta málsnúmer

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu lands úr jörðinni Stórhóll (L159353). Ný lóð verður 39.000 m2 og fær heitið Stórhóll 2.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

6.Miðbær á Egilsstöðum, uppbygging

Málsnúmer 202308120Vakta málsnúmer

Til umræðu og kynningar er þróun miðbæjar á Egilsstöðum.
Lagt fram til kynningar.

Íbúar eru hvattir til þess að mæta á opinn íbúafund vegna miðbæjarskipulags, mánudaginn 27. apríl kl. 16:30 í Sláturhúsinu á Egilsstöðum.

7.Hraðhleðslustöð á Borgarfirði eystri

Málsnúmer 202603008Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur minnisblað um samantekt af fundum við orkusöluðaðila vegna fyrirhugaðrar uppsetningar hraðhleðslustöðvar á Borgarfirði eystri.
Formaður heimastjórnar á Borgarfirði situr fundinn undir þessum lið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til að Orkusölunni verði boðið svæðið til afnota fyrir hraðhleðslustöð/stöðvar, við lóð Spennustöðvar RARIKS. Ráðið vísar málinu til umsagnar hjá heimastjórn Borgarfjarðar og felur starfsmönnum að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

8.Djúpavogsflugvöllur

Málsnúmer 202410056Vakta málsnúmer

Fyrir liggja athugasemdir frá íbúa á Djúpavogi vegna fyrirhugaðra framkvæmda við nýjan vegslóða, samhliða flugbrautinni, út á Sanda.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Gert er ráð fyrir veginum í nýju Aðalskipulagi Múlaþings en ekkert deiliskipulag er af svæðinu. Framkvæmdin er talin styðja ákvæði hverfisverndar í nýju Aðalskipulagi Múlaþings og vera í samræmi við það markmið Cittaslow stefnunnar að auka lífsgæði og ánægju íbúa. Þegar umsókn um framkvæmdaleyfi hefur verið skilað inn verður málið afgreitt samkvæmt viðkomandi lögum og reglugerðum, sem felur m.a. í sér að óskað verður umsagna viðkomandi stofnana.

Heimild fyrir losun á malbiksefni var ekki til staðar og verður það fjarlægt.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þykir miður að efnislosun á svæðinu hafi átt sér stað án leyfis og þakkar ábendinguna. Málinu er vísað til umfjöllunar hjá náttúruverndarnefnd (Heimastjórn Djúpavogs).

Samþykkt samhljóða.

9.Lagarfell 15A, spennistöð

Málsnúmer 202604044Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur erindi frá RARIK, vegna spennistöðvar í Lagarfelli 15a (L157082). RARIK hugar að endurnýjun Lagarfellsins milli nr. 13 og 26, og óskar eftir því að Múlaþing kaupi húsnæðið af RARIK.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð fagnar framkvæmdinni. Ráðið sér ekki að sveitarfélagið hafi not fyrir húsið en hvetur RARIK til að fjarlægja húsið.

Samþykkt samhljóða.

10.Loftgæðamælingar í þéttbýlinu á Egilsstöðum

Málsnúmer 202602217Vakta málsnúmer

Framlagt erindi um loftgæðamaælingar í þéttbýlinu á Egilsstöðum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir erindið. HAUST bókaði um málið á fundi sínum þann 9. apríl sl. og fól starfsmönnum að kanna möguleikan á uppsetningu á minni loftgæðastöð.
Verkefnastjóra umhverfismála er falið að setja sig í samband við HAUST og vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

11.Tilraunaborun eftir heitu vatni í Seyðisfirði 2026

Málsnúmer 202602102Vakta málsnúmer

Starfsmaður HEF veitna ehf. kynnir fyrirhuguð boráform á Seyðisfirði í tengslum við tilraunaverkefni um uppsetningu á miðlægri varmadælu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemd við fyrirhugaðar tilraunaboranir við Dagmálalæk. Ráðið leggur áherslu á að HEF upplýsi íbúa nærliggjandi svæða um fyrirkomulag framkvæmda, með hliðsjón af fyrirliggjandi umsögn HAUST dags. 9. mars 2026.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Glúmur Björnsson - mæting: 11:05

Fundi slitið - kl. 11:36.

Getum við bætt efni þessarar síðu?