Fara í efni

Aðalfundur HEF veitna ehf 2026

Málsnúmer 202603080

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 183. fundur - 17.03.2026

Fyrir liggur fundarboð vegna aðalfundar HEF veitna ehf., sem haldinn verður fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 16.30 í Oddfellowsalnum, Fagradalsbraut 25 á Egilsstöðum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð samþykkir að fulltrúar í sveitarstjórn fari með atkvæði sveitarfélagsins á aðalfundinum og skiptist það jafnt á þá sem mæta til fundar. Sé fulltrúi í sveitarstjórn forfallaður er viðkomandi heimilt að kalla til varafulltrúa í sinn stað, sem fer þá með atkvæði viðkomandi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?