Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

192. fundur 23. júní 2026 kl. 08:30 - 11:02 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Eiður Ragnarsson varaformaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Guðlaugur Sæbjörnsson starfsmaður
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjármála fór yfir og kynnti mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjármála kynnti tillögu að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030.
Í vinnslu.

3.Menningarstefna og aðgerðaráætlun

Málsnúmer 202403115Vakta málsnúmer

Elsa Guðný Björgvinsdóttir, deildarstjóri menningarmála, fór yfir stöðu menningarmála í Múlaþingi og kynnti menningarstefnu Múlaþings ásamt aðgerðaáætlun.
Byggðaráð þakkar Elsu Guðnýju fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

Lagt fram til kynningar.

4.Aðalfundur Vísindagarðsins 2026

Málsnúmer 202606065Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundarboð aðalfundar Vísindagarðsins ehf. sem haldinn verður 6. júlí 2026. Einnig liggur fyrir ársreikningur félagsins fyrir árið 2025.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri fari með umboð og atkvæði sveitarfélagsins á aðalfundi Vísindagarðsins ehf. sem haldinn verður 6. júlí 2026.

5.Stjórnarfundir Vísindagarðsins 2026

Málsnúmer 202606137Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar fundargerðir stjórnar Vísindagarðsins ehf. frá 19. maí 2025, 11. júlí 2025, 6. nóvember 2025, 15. janúar 2026 og 16. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202601171Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 9. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

7.Aukaaðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 2026

Málsnúmer 202605247Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð aukaaðalfundar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi frá 4. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

8.Fundagerðir SSA 2026

Málsnúmer 202601173Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi frá 4. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Aðalfundur HEF veitna ehf 2026

Málsnúmer 202603080Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð hluthafafundar HEF veitna ehf. frá 18. júní 2026 þar sem gengið var frá skipan nýrrar stjórnar félagsins eftir kjör sveitarstjórnar Múlaþings 16. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:02.

Getum við bætt efni þessarar síðu?