Fara í efni

Breyting á lóð, Mörk 8, Djúpivogur

Málsnúmer 202603177

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 188. fundur - 06.07.2026

Við upphaf máls vakti áheyrnarfulltrúi (HKH) máls á mögulegu vanhæfi sínu og færði rök fyrir því. Formaður bar tillöguna upp til atkvæðagreiðslu og var hún samþykkt með 5 atkvæðum (ÁMS, GB, ÞS, ÞBJ, GBH), 2 sitja hjá (ÞB og ÞKS).
HKH vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu málsins.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur umsókn frá Eimskip Ísland ehf. um 75m2 stækkun til austurs, á lóð sinni við Mörk 8 á Djúpavogi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi beiðni og felur starfsfólki að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?