Fara í efni

Sumarlokun skrifstofa Múlaþings 2026

Málsnúmer 202603212

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 185. fundur - 07.04.2026

Fyrir liggur minnisblað frá sviðsstjóra stjórnsýslu og sviðsstjóra mannauðs og þjónustu í Múlaþingi vegna sumarlokunar á skrifstofum Múlaþings.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að sumarlokun á skrifstofum Múlaþings verði með eftirfarandi hætti:
Skrifstofur á Borgarfirði, Seyðisfirði og Djúpavogi verði lokaðar frá og með mánudeginum 6. júlí 2026 til og með föstudeginum 31. júlí 2026.
Skrifstofa sveitarfélagsins á Egilsstöðum verði lokuð frá og með mánudeginum 20. júlí 2026 til og með föstudeginum 31. júlí 2026.
Þá samþykkir byggðaráð að opnunartími á skrifstofunni á Egilsstöðum verði styttur með þeim hætti að hann verði frá kl. 09:00-15:00 frá og með 15. júní 2026 til og með 14. ágúst 2026. Á föstudögum loki skrifstofan kl. 13:30 á sama tímabili.
Byggðaráð vísar þessari tillögu til staðfestingar hjá sveitarstjórn Múlaþings.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?