Fara í efni

Sveitarstjórn Múlaþings

67. fundur 15. apríl 2026 kl. 13:00 - 15:54 í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir forseti
  • Þórhallur Borgarson varamaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Vilhjálmur Jónsson aðalmaður
  • Eyþór Stefánsson aðalmaður
  • Einar Freyr Guðmundsson aðalmaður
  • Þröstur Jónsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Óðinn Gunnar Óðinsson fundarritari
  • Hlynur Jónsson verðandi sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Hrund Erla Guðmundsdóttir starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Ársreikningur Múlaþings 2025

Málsnúmer 202602270Vakta málsnúmer

Helstu niðurstöðutölur eru sem hér segir:

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2025 námu 11.389 millj. kr. samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 9.552 millj. kr. Rekstrargjöld fyrir fjármagnsliði og afskriftir námu alls 9.934 millj. kr. í samanteknum ársreikningi 2025 fyrir A og B hluta, þar af námu rekstrargjöld A hluta 9.050 millj.kr. Afskriftir ársins í A og B hluta námu 585 millj.kr. og þar af 347 millj.kr. í A hluta. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 624 millj.kr. í samanteknum A og B hluta, þar af 528 millj.kr. í A hluta.

Rekstrarniðurstaða A og B hluta samstæðureiknings Múlaþings var jákvæð um 224 milljónir króna á árinu 2025 en rekstrarniðurstaða eingöngu A hluta var neikvæð um 372 milljónir króna. Fyrir fjármagnsliði og óvenjulega liði var rekstrarniðurstaða A og B hluta jákvæð um 869 millj.kr., þar af 155 millj.kr. í A hluta. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 472 millj. kr. rekstrarafgangi af A hluta.

Lakari rekstarniðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir skýrist m.a. af samdrætti í tekjum miðað við áætlun, auknum launakostnaði og hækkun lífeyrisskuldbindingar. Annar rekstrarkostnaður stóð í stað milli ára en fór þó fram úr væntingum miðað við áætlun ársins. Hlutfall annars rekstrarkostnaðar af heildartekjum var nam 31% sem er áþekkt hlutfall og síðustu ár. Verðbólga mældist hærri árið 2025 en gert var ráð fyrir í áætlun.

Fjármagnsgjöld námu 625 millj. kr. í samstæðu A og B hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 582 millj. kr. Fjármagnsgjöld A hluta námu 528 millj. kr. en fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir 466 millj. kr. Veltufé frá rekstri var jákvætt um 1.210 millj. kr. á árinu 2025 í samstæðu A- og B hluta, þar af er veltufé frá rekstri A hluta jákvætt um 377 millj. kr. Fjárfestingahreyfingar ársins námu nettó 1.153 millj.kr. hjá samstæðu A og B hluta, þar af 567 millj.kr. í A hluta. Eigið fé var jákvætt í árslok 2025 um 4.557 millj. kr. í samstæðu A- og B hluta að teknu tilliti til hlutdeildar minnihluta.

Lántökur námu 544 millj.kr á árinu 2025, en afborganir af lánum og leiguskuldbindingum námu 836 millj.kr. á árinu 2025. Eignir samkvæmt efnahagsreikningi námu 18.489 millj.kr. í árslok 2025 fyrir A og B hluta, þar af nema heildareignir A hluta 11.737 millj.kr. í árslok 2025.

Skuldir og skuldbindingar samstæðu A- og B hluta námu í árslok 2025 um 13.932 millj. kr. og hækka um 557 millj. kr. frá árinu 2024. Þar af nema heildarskuldir og skuldbindingar A hluta 10.919 millj. kr. Skuldaviðmið skv. reglugerð um fjárhagsleg viðmið fyrir samstæðureikning A og B hluta er 92% í árslok 2025.

Ársreikningurinn í heild sinni er að öðru leyti aðgengilegur á heimasíðu Múlaþings.
Til máls tóku: Ívar Karl Hafliðason, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Þröstur Jónsson, Jónína Brynjólfsdóttir, Einar Freyr Guðmundsson, Vilhjálmur Jónsson.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn samþykkir framlagðan samstæðureikning Múlaþings fyrir árið 2025, við síðari umræðu, en fyrri umræða um hann fór fram 11. mars 2026.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Samþykkt um stjórn Múlaþings - breytingatillaga

Málsnúmer 202604001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að breytingu á samþykkt um stjórn Múlaþings og viðaukum við hana. Byggðaráð Múlaþings tók tillöguna fyrir á 185. fundi sínum, þann 7. apríl 2026, og vísaði henni til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Til máls tók: Jónína Brynjólfsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn samþykkir að vísa tillögu að breytingu á samþykkt um stjórn Múlaþings og viðaukum við hana til síðari umræðu.

Samþykkt með 10 atkvæðum, einn sat hjá (ES).

3.Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045

Málsnúmer 202208083Vakta málsnúmer

Tillaga að nýju Aðalskipulagi Múlaþings 2025-2045 var auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með athugasemdafresti til og með 11. febrúar 2026. Að lokinni auglýsingu hafa verið gerðar breytingar á skipulagstillögunni sem teljast þess eðlis að nauðsynlegt er að auglýsa hana að nýju.

Fyrir liggur uppfærð tillaga nýs Aðalskipulags Múlaþings sem sett er fram í greinargerð, forsendu- og umhverfismatsskýrslu auk skipulagsuppdrátta. Meðfylgjandi eru jafnframt ýmis fylgiskjöl og skýringaruppdrættir.
Til máls tóku: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, Ívar Karl Hafliðason, Þröstur Jónsson, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Hildur Þórisdóttir, Jónína Brynjólfsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn samþykkir að vísa tillögu að Aðalskipulagi Múlaþings 2025-2045 í auglýsingu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

Samþykkt með 10 atkvæðum, einn á móti (ÞJ).

4.Sumarlokun skrifstofa Múlaþings 2026

Málsnúmer 202603212Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun byggðaráðs Múlaþings frá 7. apríl 2026 auk minnisblaðs frá sviðsstjóra stjórnsýslu og sviðsstjóra mannauðs og þjónustu í Múlaþingi vegna sumarlokunar á skrifstofum Múlaþings.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn samþykkir að sumarlokun á skrifstofum Múlaþings verði með eftirfarandi hætti:
Skrifstofur á Borgarfirði, Seyðisfirði og Djúpavogi verði lokaðar frá og með mánudeginum 6. júlí 2026 til og með föstudeginum 31. júlí 2026.
Skrifstofa sveitarfélagsins á Egilsstöðum verði lokuð frá og með mánudeginum 20. júlí 2026 til og með föstudeginum 31. júlí 2026.
Þá samþykkir sveitarstjórn að opnunartími á skrifstofunni á Egilsstöðum verði styttur með þeim hætti að hann verði frá kl. 09:00-15:00 frá og með 15. júní 2026 til og með 14. ágúst 2026. Á föstudögum loki skrifstofan kl. 13:30 á sama tímabili.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Sveitarstjórnarkosningar 2026

Málsnúmer 202512171Vakta málsnúmer

Á 66. fundi sveitarstjórnar Múlaþings, þann 11. mars 2026, var samþykkt fyrirkomulag sveitarstjórnarkosninga og heimastjórnarkosninga í Múlaþingi 2026. Fyrir liggur tillaga um notkun kjörgagna, sem ætluð eru til utankjörfundaratkvæðagreiðslu, við komandi heimastjórnarkosningar í Múlaþingi, og skipun starfsmanna til að annast þann hluta kosninganna á skrifstofum sveitarfélagsins. Auk þess liggur fyrir tillaga um kjörstjóra til viðbótar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna sveitarstjórnarkosninga á skrifstofu sveitarfélagsins á Djúpavogi.

Þá liggur fyrir tillaga um leiðréttingu á skipun í undirkjörstjórn í kjördeild 2 á Fljótsdalshéraði vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Á síðasta fundi sveitarstjórnar 11. mars 2026 stóð til að skipa Guðmund Þorstein Bergsson í kjörstjórnina, en hann var ranglega nefndur Guðmundur Þorsteinsson. Um er að ræða leiðréttingu á ritvillu í fyrri bókun, en ekki breytingu á viðkomandi einstaklingi.
Til máls tóku: Helgi Hlynur Ásgrímsson, Eyþór Stefánsson, Jónína Brynjólfsdóttir, Ívar Karl Hafliðason, Vilhjálmur Jónsson, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Eyþór Stefánsson, Þröstur Jónsson, Ívar Karl Hafliðason, Þröstur Jónsson, Vilhjálmur Jónsson.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að við atkvæðagreiðslu í fyrirhuguðum heimastjórnarkosningum verði notuð kjörgögn skv. c-lið 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 922/2023 í stað kjörgagna skv. a-lið, frá upphafi kosninganna 30. apríl 2026 til og með 15. maí 2026. Utankjörfundaratkvæðagreiðslan fer fram á skrifstofum sveitarfélagsins á Borgarfirði, Djúpavogi, Egilsstöðum og Seyðisfirði á opnunartíma þeirra, eins og áður hefur verið ákveðið. Hægt verður að neyta atkvæðisréttar á kjörstöðum á kjördag 16. maí 2026.

Sveitarstjórn samþykkir að fela eftirtöldum einstaklingum umsjón með og framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu í heimastjórnarkosningum á hverri skrifstofu sveitarfélagsins:

Á Borgarfirði: Alda Marín Kristinsdóttir, Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar og Þórunn Ólafsdóttir.
Á Djúpavogi: Ólöf Vilbergsdóttir og Rúnar Matthíasson.
Á Fljótsdalshéraði: Andri Þór Ómarsson, Hlynur Jónsson og Sigrún Hólm.
Á Seyðisfirði: Bára Mjöll Jónsdóttir og Inga Þorvaldsdóttir.

Sveitarstjórn samþykkir að óska eftir því við sýslumann að kjörstjóri til viðbótar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna sveitarstjórnarkosninga á Djúpavogi verði Rúnar Matthíasson.

Sveitarstjórn samþykkir jafnframt fyrirliggjandi tillögu um leiðréttingu á ritvillu varðandi skipun í undirkjörstjórn í kjördeild 2 á Fljótsdalshéraði. Í stað nafnsins Guðmundur Þorsteinsson kemur rétt nafn, þ.e. Guðmundur Þorsteinn Bergsson.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Afslættir af gatnagerðargjöldum í Múlaþingi 2026-2030

Málsnúmer 202602089Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til staðfestingar hjá sveitarstjórn tillaga að afslætti á gatnagerðargjöldum sem umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings samþykkti fyrir sitt leyti á 178. fundi sínum, þann 23. mars 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu um afslætti á gatnagerðargjöldum fyrir árið 2026 og felur sviðsstjóra framkvæmda að auglýsa afslættina á vefsíðu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Hækkun virðisaukaskatts á baðlón

Málsnúmer 202603264Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, dagsett 30. mars 2026, um áform ríkisstjórnarinnar um hækkun virðisaukaskatts á baðlón, og áhrif þessarar hækkunar á atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu. Erindið var tekið fyrir á 185. fundi byggðaráðs Múlaþings, þann 7. apríl 2026.
Til máls tóku: Ívar Karl Hafliðason, Einar Freyr Guðmundsson, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Þröstur Jónsson.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í erindi Samtaka ferðaþjónustunnar og lýsir yfir verulegum áhyggjum af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón og áhrifum þeirrar ákvörðunar á ferðaþjónustu og atvinnulíf, sérstaklega á landsbyggðinni þar sem nánast öll baðlón landsins eru staðsett.

Baðlón eru lykilþáttur í ferðaþjónustu og gegna mikilvægu hlutverki í atvinnusköpun og uppbyggingu samfélaga utan höfuðborgarsvæðisins. Jafnframt eru þau mikilvæg þjónusta fyrir heimafólk. Í Vök Baths á Egilsstöðum eru seld rúmlega 800 árskort árlega til íbúa á Austurlandi og því er ljóst að hækkun virðisaukaskatts á baðlón felur einnig í sér hækkun neysluskatta á heimafólk.

Sveitarstjórn hefur sérstakar áhyggjur af því að fyrirhuguð hækkun geti haft neikvæð áhrif á rekstrarforsendur Vök Baths og leitt til samdráttar í starfsemi eða tímabundinnar eða varanlegrar lokunar yfir vetrarmánuði, með tilheyrandi áhrifum á atvinnu, þjónustu og lífsgæði í sveitarfélaginu. Slík þróun myndi jafnframt hafa neikvæð áhrif á byggðaþróun og samkeppnishæfni ferðaþjónustu á Austurlandi.

Sveitarstjórn Múlaþings telur mikilvægt að tryggja stöðugt og samkeppnishæft rekstrarumhverfi fyrir ferðaþjónustu um land allt og skorar á ríkisstjórn Íslands að endurskoða fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón og falla frá henni.

Sveitarstjóra er falið að koma bókun þessari á framfæri við viðeigandi ráðherra.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Ferðakostnaður barna í Múlaþingi

Málsnúmer 202604039Vakta málsnúmer

Fyrir liggur áskorun frá KSÍ til yfirvalda íþróttamála, sveitarfélaga, ÍSÍ og UMFÍ, sem samþykkt var á ársþingi KSÍ sem fram fór á Egilsstöðum þann 28. febrúar 2026. Í henni var lýst verulegum áhyggjum af þeirri staðreynd að börn á landsbyggðinni búi við skert jafnrétti til íþróttaiðkunar vegna ferðakostnaðar, vinnutaps foreldra og fjarveru barna frá námi.
Til máls tóku: Björg Eyþórsdóttir, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, Hildur Þórisdóttir, Ívar Karl Hafliðason, Jónína Brynjólfsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings tekur undir áskorun Knattspyrnusambands Íslands um að grípa þurfi til markvissra aðgerða til að jafna aðstöðumun barna og ungmenna til íþróttaiðkunar, óháð búsetu.
Sveitarstjórn telur ljóst að hér sé um kerfislægt misrétti að ræða sem er óásættanlegt.

Íþróttaiðkun barna er ekki munaður heldur grundvallarþáttur í lýðheilsu, félagslegri þátttöku og uppbyggingu samfélaga. Þegar fjölskyldur standa frammi fyrir milljónakostnaði vegna þátttöku barna sinna í íþróttum er ljóst að jafnræði barna er ekki tryggt.

Sveitarstjórn skorar á stjórnvöld að taka höndum saman við íþróttahreyfinguna og sveitarfélög um að tryggja raunhæfan og markvissan stuðning við ferðakostnað barna og ungmenna vegna íþróttaiðkunar. Það er ekki ásættanlegt að búseta barna á Íslandi ráði því hvort þau hafi raunhæfa möguleika á að taka þátt í íþróttum.

Sveitarstjóra er falið að koma bókun þessari á framfæri við viðeigandi ráðherra.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

9.Erindi nemenda í Djúpavogsskóla um Axarveg

Málsnúmer 202603232Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi nemenda í 10. bekk Djúpavogsskóla sem hyggjast ganga yfir Öxi laugardaginn 25. apríl 2026 til þess að vekja athygli á framkvæmdaleysi stjórnvalda á fjallveginum í áraraðir og mikilvægi almenningssamgangna innan Múlaþings, en með göngunni ætla þau jafnframt að safna áheitum vegna fyrirhugaðs skólaferðalags. Í erindinu er skorað á sveitarstjórn að ganga með nemendunum alla leið eða hluta leiðar.
Til máls tóku: Ívar Karl Hafliðason, Hildur Þórisdóttir, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings fagnar framtaki og frumkvæði nemenda grunnskólans á Djúpavogi til að vekja athygli á mikilvægi uppbyggingar heilsársvegar um Öxi. Sveitarstjórn hvetur íbúa og aðra áhugasama til þátttöku í göngunni.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

10.Heimastjórn Borgarfjarðar - 67

Málsnúmer 2602021FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Borgarfjarðar frá 9. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

11.Heimastjórn Borgarfjarðar - 68

Málsnúmer 2603023FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Borgarfjarðar frá 9. apríl 2026.
Til máls tók: Helgi Hlynur Ásgrímsson um lið 6.

Lagt fram til kynningar.

12.Heimastjórn Djúpavogs - 70

Málsnúmer 2603020FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Djúpavogs frá 9. apríl 2026.
Til máls tóku: Ívar Karl Hafliðason um lið 2, Helgi Hlynur Ásgrímsson sem svaraði Ívari Karli varðandi lið 2, Ívar Karl Hafliðason um lið 2, Helgi Hlynur Ásgrímsson um lið 2, Eyþór Stefánsson um lið 2.

Lagt fram til kynningar.

13.Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 68

Málsnúmer 2604001FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Fljótsdalshéraðs frá 9. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Heimastjórn Seyðisfjarðar - 67

Málsnúmer 2603012FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Seyðisfjarðar frá 10. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

15.Byggðaráð Múlaþings - 182

Málsnúmer 2603003FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 11. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

16.Byggðaráð Múlaþings - 183

Málsnúmer 2603008FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 17. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

17.Byggðaráð Múlaþings - 184

Málsnúmer 2603018FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 24. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

18.Byggðaráð Múlaþings - 185

Málsnúmer 2603022FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 7. apríl 2026.
Til máls tók: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 13.

Lagt fram til kynningar.

19.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 177

Málsnúmer 2603007FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 16. mars 2026.
Til máls tók: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 11.

Lagt fram til kynningar.

20.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 178

Málsnúmer 2603013FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 23. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

21.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 179

Málsnúmer 2604004FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 13. apríl 2026.
Þórhallur Borgarsson gerði grein fyrir mögulegu vanhæfi sínu til umfjöllunar um lið 7, Deiliskipulag, Gilsársvirkjun. Tillagan var borin upp og samþykkt með 10 atkvæðum, einn sat hjá (ÞJ). Þórhallur vék af fundi undir umfjöllun þessa liðar.

Til máls tóku: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 7, Ívar Karl Hafliðason sem svaraði Ásrúnu Mjöll varðandi lið 7, Helgi Hlynur Ásgrímsson um lið 7, Þröstur Jónsson um lið 7.

Lagt fram til kynningar.

22.Fjölskylduráð Múlaþings - 154

Málsnúmer 2603010FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 17. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

23.Fjölskylduráð Múlaþings - 155

Málsnúmer 2603016FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 24. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

24.Fjölskylduráð Múlaþings - 156

Málsnúmer 2603024FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 7. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

25.Ungmennaráð Múlaþings - 47

Málsnúmer 2603019FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð ungmennaráðs Múlaþings frá 30. mars 2026.
Til máls tók: Einar Freyr Guðmundsson um lið 2.

Lagt fram til kynningar.

26.Skýrsla sveitarstjóra 2026

Málsnúmer 202601052Vakta málsnúmer

Staðgengill sveitarstjóra fer yfir og kynnir helstu mál sem sveitarstjóri og stjórnsýslan hefur unnið að undanförnu og þau verkefni sem fram undan eru.

Fundi slitið - kl. 15:54.

Getum við bætt efni þessarar síðu?