Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

185. fundur 07. apríl 2026 kl. 08:30 - 11:48 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Vilhjálmur Jónsson varaformaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Þröstur Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Ársreikningur Múlaþings 2025

Málsnúmer 202602270Vakta málsnúmer

Fyrir liggur ársreikningur Múlaþings 2025 til seinni umræðu í byggðaráði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að vísa ársreikningi Múlaþings 2025 til síðari umræðu í sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

3.Hækkun virðisaukaskatts á baðlón

Málsnúmer 202603264Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, dagsett 30. mars 2026, um áform ríkisstjórnarinnar um hækkun virðisaukaskatts á baðlón, og áhrif þessarar hækkunar á atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu. Inn á fundinn undir þessum lið mæta Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, og Kristín Dröfn Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Vök baths.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings tekur undir áhyggjur Samtaka ferðaþjónustunnar og hvetur ríkisstjórnina til að falla frá áformum um hækkun virðisaukaskatts á baðlón. Ljóst er að hækkunin mun koma illa við starfsemi og framtíðaráform Vök baths á Egilsstöðum og hafa neikvæð áhrif á ferðaþjónustu, atvinnustarfsemi og lífsgæði íbúa á Austurlandi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Samþykkt um stjórn Múlaþings - breytingatillaga

Málsnúmer 202604001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að breytingu á samþykkt um stjórn Múlaþings og viðaukum við hana.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að vísa fyrirliggjandi tillögu að breytingum á samþykkt um stjórn Múlaþings og viðaukum við hana til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Miðdalur II í Mosfellssveit

Málsnúmer 202603174Vakta málsnúmer

Fyrir liggur kauptilboð í landið Miðdal II í Mosfellssveit, fasteignanúmer 208-2191, en sveitarfélagið á hlut í landinu. Kauptilboðið var samþykkt af sveitarstjóra með fyrirvara um samþykki byggðaráðs.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrir sitt leyti kauptilboð Angélique Dény, dagsett 19. mars 2026, í jörðina Miðdal II í Mosfellssveit, með fasteignanúmer 208-2191.
Sveitarstjóra falið að ganga frá kaupsamningi um eignina.

Samþykkt með 4 atkvæðum með handauppréttingu, einn sat hjá (HHÁ).

6.Sumarlokun skrifstofa Múlaþings 2026

Málsnúmer 202603212Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað frá sviðsstjóra stjórnsýslu og sviðsstjóra mannauðs og þjónustu í Múlaþingi vegna sumarlokunar á skrifstofum Múlaþings.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að sumarlokun á skrifstofum Múlaþings verði með eftirfarandi hætti:
Skrifstofur á Borgarfirði, Seyðisfirði og Djúpavogi verði lokaðar frá og með mánudeginum 6. júlí 2026 til og með föstudeginum 31. júlí 2026.
Skrifstofa sveitarfélagsins á Egilsstöðum verði lokuð frá og með mánudeginum 20. júlí 2026 til og með föstudeginum 31. júlí 2026.
Þá samþykkir byggðaráð að opnunartími á skrifstofunni á Egilsstöðum verði styttur með þeim hætti að hann verði frá kl. 09:00-15:00 frá og með 15. júní 2026 til og með 14. ágúst 2026. Á föstudögum loki skrifstofan kl. 13:30 á sama tímabili.
Byggðaráð vísar þessari tillögu til staðfestingar hjá sveitarstjórn Múlaþings.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Víknaslóðir, leyfisbeiðni vegna viðbótar við leiðarkerfi

Málsnúmer 202504009Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar svar eigenda Brúnavíkur til Múlaþings, dagsett 29. mars 2026, vegna beiðni um leyfi fyrir hönnun og framkvæmd á göngu- og hjólaleiðum í Brúnavík.
Byggðaráð Múlaþings felur sviðsstjóra stjórnsýslu að koma á fundi milli landeiganda í Brúnavík, Árna Magnússonar og ferðamálahóps Borgarfjarðar svo hægt sé að ákvarða framhald verkefnisins. Málinu er einnig vísað til umfjöllunar hjá heimastjórn Borgarfjarðar með tilliti til náttúruverndarsjónarmiða.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

8.SSA - samþykktir

Málsnúmer 202603218Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar samþykktir Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sem samþykktar voru á aðalfundi sambandsins 20. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Stefna um opinbera þjónustu

Málsnúmer 202603242Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar stefna um opinbera þjónustu, dagsett í mars 2026, sem unnin var af fjármála- og efnahagsráðuneytinu í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.

10.Framtíðaruppbygging atvinnulífs á Seyðisfirði

Málsnúmer 202310203Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð samráðshóps um uppbyggingu atvinnulífs á Seyðisfirði frá 25. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

11.Fundargerðir stjórnar Samtaka Orkusveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202602127Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga dags. 28. janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

12.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202601171Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

13.Samráðsgátt. Frumvarp til laga um lagareldi, mál nr. S 252 2025, mál 529 og 530.mál

Málsnúmer 202601003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur í umsagnagátt Alþingis mál 529, Lagareldi, og 530, Lax- og silungsveiði o.fl. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 10. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að senda inn umsögn um frumvarpið í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt með 4 atkvæðum með handauppréttingu, einn sat hjá (HHÁ).

14.Umsagnarbeiðni um frumvarp til laga um innviðafélag, 535.mál.

Málsnúmer 202603224Vakta málsnúmer

Fyrir liggur í umsagnagátt Alþingis mál 535, Innviðafélag. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 10. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að senda inn umsögn um frumvarpið í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

15.Umsagnarbeiðni um 568. mál, Stofnun atvinnuveganna

Málsnúmer 202603245Vakta málsnúmer

Fyrir liggur í umsagnagátt Alþingis mál 568, Stofnun atvinnuveganna. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 15. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að senda inn umsögn um frumvarpið í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

16.Umsagnarbeiðni um mál 582. Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits)

Málsnúmer 202603253Vakta málsnúmer

Fyrir liggur í umsagnagátt Alþingis mál 582, Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 16. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að senda inn umsögn um frumvarpið í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Fundi slitið - kl. 11:48.

Getum við bætt efni þessarar síðu?