Fara í efni

Erindi nemenda í Djúpavogsskóla um Axarveg

Málsnúmer 202603232

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Djúpavogs - 70. fundur - 09.04.2026

Lagt fram til kynningar bréf frá nemendum í Grunnskóla Djúpavogs dagsett 16. mars 2026, þar sem þau lýsa yfir áformum sínum um að ganga yfir Axarveg laugardaginn 25. apríl, til að vekja athygli samgönguyfirvalda og annarra á mikilvægi þess að vegurinn verði byggður upp og að almenningssamgöngum verði komð á milli Egilsstaða og Djúpavogs, ásamt því að safna áheitum fyrir skólaferðalag 10. bekkjar vorið 2026.
Heimastjórn fagnar framtaki nemenda Grunnskóla Djúpavogs og hvetur íbúa og aðra áhugasama til þátttöku í göngunni.

Sveitarstjórn Múlaþings - 67. fundur - 15.04.2026

Fyrir liggur erindi nemenda í 10. bekk Djúpavogsskóla sem hyggjast ganga yfir Öxi laugardaginn 25. apríl 2026 til þess að vekja athygli á framkvæmdaleysi stjórnvalda á fjallveginum í áraraðir og mikilvægi almenningssamgangna innan Múlaþings, en með göngunni ætla þau jafnframt að safna áheitum vegna fyrirhugaðs skólaferðalags. Í erindinu er skorað á sveitarstjórn að ganga með nemendunum alla leið eða hluta leiðar.
Til máls tóku: Ívar Karl Hafliðason, Hildur Þórisdóttir, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings fagnar framtaki og frumkvæði nemenda grunnskólans á Djúpavogi til að vekja athygli á mikilvægi uppbyggingar heilsársvegar um Öxi. Sveitarstjórn hvetur íbúa og aðra áhugasama til þátttöku í göngunni.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?