Fara í efni

Heimastjórn Djúpavogs

70. fundur 09. apríl 2026 kl. 11:00 - 13:45 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Ívar Karl Hafliðason formaður
  • Ingi Ragnarsson aðalmaður
  • Oddný Anna Björnsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Eiður Ragnarsson fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Eiður Ragnarsson fulltrúi sveitarstjóra

1.Málefni Ríkarðshúss á Djúpavogi.

Málsnúmer 202105265Vakta málsnúmer

Kristján Ingimarsson formaður stjórnar Ríkarðsshús mætir á fundinn og fer yfir stöðu mála.
Búið er að selja fasteignir sem Ríkarðshús átti hlut í og jörðina Miðdal 2 í Mosfellsbæ.
Næstu skref eru að að meta stöðuna og móta stefnu fyrir Ríkarðshús til framtíðar.

Heimastjórn visar málinu til Byggðarráðs og leggur til að ráðist verði í stefnumótunarvinnu varðandi uppbyggingu og rekstur á Ríkarðssafni og að horft verði til samlegðaráhrifa í menningartengdri starfsemi á Djúpavogi.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Kristján Ingimarsson

2.Frumvarp innviðaráðherra um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða nr. 1162006 (sértækar ívilnanir og jöfnunarheimild)

Málsnúmer 202603228Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (sértækar ívilnanir og jöfnunarheimild).
Guðlaugur Birgisson útgerðarmaður á Ölingi SU 19 kom inn á fundinn og fór það með heimastjórn hvaða afleiðingar breytingarnar gætu mögulega haft fyrir útgerð og fiskvinnslu á Djúpavogi.
Starfsmaður heimastjórnar fer yfir samantekt í minnisblaði varðandi fyrirhugaðar breytingar.

Heimastjórn Djúpavogs telur að fyrirhugaðar breytingar á línuívilnun sem nefndar eru í frumvarpinu hafi verulega neikvæð áhrif á starfsemi sjávarútvegsfyrrtækja á Djúpavogi og vill beina því til ráðherra að þessi ákvæði verði endurskoðuð.

Samþykkt samhljóða og erindinu og minnisblaði vísað til byggðarráðs.

Gestir

  • Guðlaugur Birgisson

3.Umsóknir í Fiskeldissjóð 2026

Málsnúmer 202602038Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar niðurstöður umsókna Múlaþings í Fiskeldissjóð fyrir árið 2026.
Tvö verkefni fengu styrk á Djúpavogi, endurnýjun á götu og veitulögnum við Markaland, 45.222.959 kr og gatnagerð við Víkurland, 30.882.269 kr. Einnig fékk Múlaþing styrk í grunnskólabyggingu á Seyðisfirði, 30.707.111 kr.

4.Almenningssamgöngur milli Djúpavogs og Egilsstaða

Málsnúmer 202602097Vakta málsnúmer

Innviðaráðherra hefur að tillögu valnefndar samþykkt styrk vegna verkefnisins „Almenningssamgöngur milli Djúpavogs og Egilsstaða“ að upphæð 10.000.000,- kr.

Stefán Aspar Stefánsson fer yfir stöðu almenningssamgangna milli Djúpavogs og Egilsstaða. Verið er að undirbúa áætlunarferðir milli staðanna, sem fara af stað í haust sem tilraunaverkefni til eins árs.

Heimastjórn fagnar því að nú sé hægt að fara að skipuleggja og koma á almenningssamgöngum milli Egilsstaða og Djúpavogs.

Gestir

  • Stefán Aspar Stefánsson

5.Erindi nemenda í Djúpavogsskóla um Axarveg

Málsnúmer 202603232Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá nemendum í Grunnskóla Djúpavogs dagsett 16. mars 2026, þar sem þau lýsa yfir áformum sínum um að ganga yfir Axarveg laugardaginn 25. apríl, til að vekja athygli samgönguyfirvalda og annarra á mikilvægi þess að vegurinn verði byggður upp og að almenningssamgöngum verði komð á milli Egilsstaða og Djúpavogs, ásamt því að safna áheitum fyrir skólaferðalag 10. bekkjar vorið 2026.
Heimastjórn fagnar framtaki nemenda Grunnskóla Djúpavogs og hvetur íbúa og aðra áhugasama til þátttöku í göngunni.

6.Prestsþjónusta á Djúpavogi

Málsnúmer 202602009Vakta málsnúmer

Farið yfir samskipti við Biskupsstofu varðandi sölu á prestbústaðnum á Djúpavogi.
Heimastjórn fagnar því að ákveðið hafi verið að fresta sölu á prestsbústaðnum á Djúpavogi um einhvern tíma.
Heimastjórn vill engu að síður benda á að á Djúpivogi sé enginn virkur leigumarkaður og því nauðsynlegt að fyrir kirkjuna að eiga hús á staðnum, til að auðveldara sé að fá prest til starfa.
Einnig vill heimastjórn hvetja Bisksupsstofu til að auglýsa embættið til umsóknar sem fyrst.

Samþykkt samhljóða.

7.Samfélagsverkefni heimastjórna 2026

Málsnúmer 202601217Vakta málsnúmer

Farið yfir þær hugmyndir að samfélagsverkefnum sem skilað var inn af áhugasömum á Djúpavogi.
Heimastjórn þakkar áhugasömum fyrir fjölmargar góðar hugmyndir.

Heimastjórn samþykkir að láta kostnaðarmeta þrjár hugmyndir, útigrill í Blánni, minigolfbraut í Blánni og golfæfingasvæði í Blánni og leggja niðurstöðuna fyrir heimastjórn til ákvörðunartöku í kjölfarið.

Samþykkt samhljóða.

8.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Djúpavogi

Málsnúmer 202209244Vakta málsnúmer

Gatnagerð:
Búið er að bjóða út endurbyggingu á götu og lögnum í Markalandi, gert er ráð fyrir því að vinna hefjist á næstu dögum

Unnið er í undirbúningi á gatnagerð í Víkurlandi (deiliskipulag og hönnun).

Opnun á Axarvegi:
Tíðarfar hefu verið óhagstætt, til stóð að opna fyrir páska en því var frestað. Stefnt er á opnun eftir komandi helgi (í viku 16).

Göngustígar:
Búið er að tengja Borgarland og Hlíð með nýjum göngustíg, einnig Brekku og Markaland og gert er ráð fyrir tengingu milli Markalands og Merkur í tengslum við gatnagerð í Markarlandi.

Höfnin:
Flotbryggja sem setja á niður í stað eldri trébryggju verður væntanlega sett niður fyrir lok apríl.

9.Fundir Heimastjórnar Djúpavogs

Málsnúmer 202010614Vakta málsnúmer

Næsti fundur heimastjórnar Djúpavogs verður haldinn fimmtudaginn 7. maí, í Geysi kl. 10:00. Er þetta síðasti fundur sitjandi heimastjórnar.
Erindi fyrir fundinn þurfa að berast starfsmanni heimastjórnar fyrir kl 16:00 fimmtudaginn 30. apríl, á netfangið eidur.ragnarsson@mulathing.is.

Fundi slitið - kl. 13:45.

Getum við bætt efni þessarar síðu?