Fara í efni

Hækkun virðisaukaskatts á baðlón

Málsnúmer 202603264

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 185. fundur - 07.04.2026

Fyrir liggur erindi frá framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, dagsett 30. mars 2026, um áform ríkisstjórnarinnar um hækkun virðisaukaskatts á baðlón, og áhrif þessarar hækkunar á atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu. Inn á fundinn undir þessum lið mæta Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, og Kristín Dröfn Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Vök baths.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings tekur undir áhyggjur Samtaka ferðaþjónustunnar og hvetur ríkisstjórnina til að falla frá áformum um hækkun virðisaukaskatts á baðlón. Ljóst er að hækkunin mun koma illa við starfsemi og framtíðaráform Vök baths á Egilsstöðum og hafa neikvæð áhrif á ferðaþjónustu, atvinnustarfsemi og lífsgæði íbúa á Austurlandi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Sveitarstjórn Múlaþings - 67. fundur - 15.04.2026

Fyrir liggur erindi frá framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, dagsett 30. mars 2026, um áform ríkisstjórnarinnar um hækkun virðisaukaskatts á baðlón, og áhrif þessarar hækkunar á atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu. Erindið var tekið fyrir á 185. fundi byggðaráðs Múlaþings, þann 7. apríl 2026.
Til máls tóku: Ívar Karl Hafliðason, Einar Freyr Guðmundsson, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Þröstur Jónsson.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í erindi Samtaka ferðaþjónustunnar og lýsir yfir verulegum áhyggjum af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón og áhrifum þeirrar ákvörðunar á ferðaþjónustu og atvinnulíf, sérstaklega á landsbyggðinni þar sem nánast öll baðlón landsins eru staðsett.

Baðlón eru lykilþáttur í ferðaþjónustu og gegna mikilvægu hlutverki í atvinnusköpun og uppbyggingu samfélaga utan höfuðborgarsvæðisins. Jafnframt eru þau mikilvæg þjónusta fyrir heimafólk. Í Vök Baths á Egilsstöðum eru seld rúmlega 800 árskort árlega til íbúa á Austurlandi og því er ljóst að hækkun virðisaukaskatts á baðlón felur einnig í sér hækkun neysluskatta á heimafólk.

Sveitarstjórn hefur sérstakar áhyggjur af því að fyrirhuguð hækkun geti haft neikvæð áhrif á rekstrarforsendur Vök Baths og leitt til samdráttar í starfsemi eða tímabundinnar eða varanlegrar lokunar yfir vetrarmánuði, með tilheyrandi áhrifum á atvinnu, þjónustu og lífsgæði í sveitarfélaginu. Slík þróun myndi jafnframt hafa neikvæð áhrif á byggðaþróun og samkeppnishæfni ferðaþjónustu á Austurlandi.

Sveitarstjórn Múlaþings telur mikilvægt að tryggja stöðugt og samkeppnishæft rekstrarumhverfi fyrir ferðaþjónustu um land allt og skorar á ríkisstjórn Íslands að endurskoða fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón og falla frá henni.

Sveitarstjóra er falið að koma bókun þessari á framfæri við viðeigandi ráðherra.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?