Fara í efni

Umsókn um framkvæmdaleyfi, Svartagilslækur í Berufirði, efnistaka

Málsnúmer 202604180

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 183. fundur - 18.05.2026

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni vegna fyrirhugaðrar efnistöku við Svartagilslæk í botni Berufjarðar. Vinna á um 2.500 m3 af efni í malarslitlag af þekktu efnistökusvæði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Fyrirhuguð áform eru í samræmi við stefnu aðalskipulags og samþykkir umhverfis- og framkvæmdaráð að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi á grundvelli fyrirliggjandi gagna.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?