Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

183. fundur 18. maí 2026 kl. 08:30 - 11:30 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Björg Eyþórsdóttir varamaður
  • Þórhallur Borgarson varaformaður
  • Guðný Margrét Hjaltadóttir varamaður
  • Ásdís Hafrún Benediktsdóttir aðalmaður
  • Eiður Gísli Guðmundsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Þórunn Hrund Óladóttir varamaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála

1.Brunavarnaáætlun 2026-2031

Málsnúmer 202604028Vakta málsnúmer

Haraldur Geir Eðvaldsson, slökkviliðsstjóri Múlaþings, situr fundinn undir þessum lið.
Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur, til samþykktar, Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Múlaþings 2026-2031.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrir sitt leyti Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Múlaþings 2026-2031 og vísar henni til samþykktar hjá sveitastjórn.

Samþykkt samhljóða.

2.Refa- og minkaveiðar í Múlaþingi

Málsnúmer 202603158Vakta málsnúmer

Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála, situr fundinn undir þessum lið.

Í upphafi máls vakti Eiður Gísli Guðmundsson (EGG) athygli á mögulegu vanhæfi sínu undir málslið 2 og gerði grein fyrir því. Fundarstjóri bar málið upp til atkvæðagreiðslu og var það samþykkt samhljóða. EGG vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Framlögð kynning á fyrirkomulagi refa- og minkaveiða í Múlaþingi ásamt drögum að nýjum samningum vegna refa- og minkaveiða til umræðu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningum og vísar þeim til endanlegrar afgreiðslu hjá sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

3.Starfshópur - framkvæmd stækkun Seyðisfjarðarskóla

Málsnúmer 202211079Vakta málsnúmer

Rúnar Matthíasson, verkefnastjóri framkvæmdamála, situr fundinn undir þessum lið.
Fyrir liggur niðurstaða starfshóps um stækkun Seyðisfjarðarskóla. Starfshópurinn samþykkti hönnun og kostnaðaráætlun verkefnisins með fyrirvara um lítilsháttar breytingar í samræmi við umræður á fundi hópsins og fól starfsmanni að fylgja þeim eftir. Fyrir liggur að gögn hafa verið uppfærð í samræmi við þær ábendingar og óskir sem fram komu hjá starfshópnum. Starfshópurinn telur með þeirri afgreiðslu að hlutverki hópsins sé lokið og vísar málinu áfram til umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að verkefnið verði boðið út í samræmi við fyrirliggjandi hönnunar- og útboðsgögn og felur sviðsstjóra framkvæmda að vinna málið áfram og hefja útboðsferli.

Samþykkt samhljóða.

4.Ránargata 1 Wathnehúsið, Seyðisfirði

Málsnúmer 202602088Vakta málsnúmer

Rúnar Matthíasson, verkefnastjóri framkvæmdamála, situr fundinn undir þessum lið.
Grenndarkynningu byggingaráforma við Ránargötu 1 (L155212) á Seyðisfirði í tengslum við flutning á Wathnehúsinu frá Hafnargötu 44 lauk þann 11. maí sl. Áformin voru jafnframt kynnt á íbúafundi á Seyðisfirði þar sem óskað var eftir skuggavarpsteikninga og fylgja þær hér til upplýsinga. Athugasemdir bárust við grenndarkynninguna og liggja fyrir drög að umsögn um þær.
Jafnframt liggja fyrir drög að útboðs- og verklýsingu ásamt kostnaðaráætlun fyrir uppsteypu á kjallara.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að umsögn um athugasemdir og felur skipulagsfulltrúa að koma þeim á framfæri.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir jafnframt að verkefnið verði boðið út í samræmi við fyrirliggjandi hönnunar- og útboðsgögn og felur sviðsstjóra framkvæmda að vinna málið áfram og hefja útboðsferli.

Samþykkt samhljóða.

5.Umsókn um byggingaráform, Austurvegur 32

Málsnúmer 202604019Vakta málsnúmer

Grenndarkynningu byggingaráforma við Austurveg 32 (L154901) á Seyðisfirði lauk þann 12. maí sl. án athugasemda.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð staðfestir að framkvæmd grenndarkynningar skv. 44. gr. skipulagslaga sé lokið án athugasemda.

Samþykkt samhljóða.

6.Umsókn um byggingarheimild, Stekkjartröð 10, 700

Málsnúmer 202603022Vakta málsnúmer

Grenndarkynningu byggingaráforma við Stekkjartröð 10 (L157995) á Egilsstöðum sem fela í sér viðbyggingu fyrir bílskúr, lauk þann 13. maí sl. Athugasemdir bárust og liggur fyrir ráðinu að taka þær til umfjöllunar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að mati umhverfis- og framkvæmdaráðs gefa framkomnar athugasemdir tilefni til breytinga á fyrirliggjandi byggingaráformum. Lagt er til að húsið verði lækkað og stytt með það að markmiði að draga úr skuggavarpi á aðliggjandi lóð, bæta birtuskilyrði og stuðla að betra samræmi byggingar við nærliggjandi byggð.
Óskað er eftir því að uppfærðar teikningar verði lagðar fyrir ráðið.

Samþykkt samhljóða.

7.Umsókn um framkvæmdaleyfi, Svörtu Sandar, vegslóði og bílastæði

Málsnúmer 202604196Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð nýs vegslóða og bílastæða við Svörtu Sanda á Búlandsnesi.
Framkvæmdin er í samræmi við skilmála aðalskipulags en ekkert deiliskipulag er í gildi og liggur fyrir ráðinu að taka afstöðu til grenndarkynningar.
Umsögn náttúruverndarndarnefndar liggur fyrir þar sem athygli er vakin á því að framkvæmdir hefjist ekki fyrr en eftir 15. júlí þegar varptíma er lokið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að áformin verði grenndarkynnt fyrir íbúum Djúpavogs á miðlum sveitarfélagsins.
Málið verður tekið aftur fyrir að grenndarkynningu lokinni.

Samþykkt samhljóða.

8.Umsókn um framkvæmdaleyfi, Svartagilslækur í Berufirði, efnistaka

Málsnúmer 202604180Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni vegna fyrirhugaðrar efnistöku við Svartagilslæk í botni Berufjarðar. Vinna á um 2.500 m3 af efni í malarslitlag af þekktu efnistökusvæði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Fyrirhuguð áform eru í samræmi við stefnu aðalskipulags og samþykkir umhverfis- og framkvæmdaráð að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi á grundvelli fyrirliggjandi gagna.

Samþykkt samhljóða.

9.Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá, Vífilsstaðir 1

Málsnúmer 202605127Vakta málsnúmer

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu lands úr jörðinni Vífilsstaðir (L157174). Ný lóð verður 6.440 m2 og fær heitið Vífilsstaðir 1.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

10.Breyting á lóð, Víkurland 2

Málsnúmer 202602247Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur beiðni um stækkun á lóð við Víkurland 2 (L159271) á Djúpavogi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umbeðna stækkun og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

11.Umsögn vegna byggingarleyfis fyrir sjókvíeldi í Seyðisfirði

Málsnúmer 202603003Vakta málsnúmer

Í upphafi máls vakti Ásdís Hafrún Benediktsdóttir (ÁHB) athygli á mögulegu vanhæfi sínu undir málslið 11 og gerði grein fyrir því. Fundarstjóri bar málið upp til atkvæðagreiðslu. Vanhæfið var fellt með 3 atkvæðum, 4 sátu hjá (ÁMS, ÁHB, ÞÓ og BE).

Fyrir liggur að nýju umsagnarbeiðni frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) vegna umsóknar Kaldvíkur hf. um byggingarleyfi fyrir sjókvíum á tveimur eldissvæðum í Seyðisfirði; Sörlastaðavík og Selstaðavík.
Málið var áður á dagskrá ráðsins þann 11. mars 2026 og var umsögn sveitarfélagsins skilað inn þann 17. mars.
Þann 16. apríl sl. tilkynnti HMS að rangar kortaupplýsingar hefðu fyrir mistök fylgt fyrri umsagnarbeiðni til Múlaþings. Uppfærð gögn bárust sveitarfélaginu þann 7. maí þar sem meðal annars hefur verið bætt við fóðurpramma og athafnasvæði veiðibanns uppfært til samræmis.
FARICE-sæstrengurinn liggur innan reits LV1 samkvæmt strandsvæðaskipulagi Austurlands, en reiturinn markar helgunarsvæði strengsins. Fyrir liggur umsögn FARICE ehf. þar sem staðfest er að akkeri fyrirhugaðra kvía liggja utan verndarsvæðis strengsins en þó bent á að þau liggi alveg á mörkum þess.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð staðfestir fyrri umsögn sína í málinu. Með hliðsjón af uppfærðum gögnum telur ráðið þó tilefni til að lagfæra og skýra orðalag umsagnar hvað varðar umfjöllun um helgunarsvæði FARICE-sæstrengsins til samræmis við fyrirliggjandi gögn og umsögn FARICE ehf.

Ráðið felur verkefnastjóra skipulagsmála að annast framangreinda lagfæringu og koma uppfærðri umsögn á framfæri við HMS.

Uumhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings, gerir alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) vegna umsagnarbeiðni um byggingarleyfi fyrir sjókvíeldi í Seyðisfirði.
Fyrir liggur að HMS sendi sveitarfélaginu gögn til umsagnar sem síðar reyndust byggð á röngum hnitum og röngum afstöðumyndum. Umsögn sveitarfélagsins var því unnin á grundvelli gagna sem HMS hefur sjálft staðfest að hafi verið röng. Slík vinnubrögð eru óásættanleg enda er það grundvallarforsenda vandaðrar stjórnsýslu að umsagnaraðilar fái rétt og skýr gögn til grundvallar afstöðu sinni.
Þá vekur athygli að sveitarfélagið þurfti ítrekað að óska eftir skýringum og upplýsingum um stöðu málsins áður en svör bárust frá HMS. Einnig er óljóst hvers vegna ekki var þegar í stað send ný formleg umsagnarbeiðni þegar ljóst var að fyrri gögn voru gölluð. Málsmeðferðin í heild sinni hefur verið ómarkviss og til þess fallin að grafa undan trausti á faglegri stjórnsýslu málsins.
Það er sérstaklega alvarlegt þegar opinber stofnun sem fer með mikilvægt eftirlits- og stjórnsýsluhlutverk leggur fram gögn sem reynast rangar forsendur fyrir afgreiðslu sveitarfélags. Slík mistök geta haft áhrif á efnislega afstöðu umsagnaraðila og veikja réttaröryggi við meðferð mála af þessu tagi.
Við óskum þess að HMS geri skýra grein fyrir því hvernig staðið verði að áframhaldandi meðferð málsins og hvaða ráðstafanir verði gerðar til að tryggja að sambærileg mistök endurtaki sig ekki og óskum eftir því að starfsmaður komi þessari bókun á framfæri við HMS.

Samþykkt samhljóða.

Fundi slitið - kl. 11:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?