Fara í efni

Rekstur Menntaskólans á Egilsstöðum

Málsnúmer 202605062

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Múlaþings - 68. fundur - 13.05.2026

Fyrir liggur ályktun frá skólanefnd Menntaskólans á Egilsstöðum, dagsett 29. apríl 2026, vegna kröfu ríkisins um niðurskurð til greiðslu á skuld við ríkissjóð vegna halla á rekstri skólans.
Til máls tóku: Berglind Harpa Svavarsdóttir, Hildur Þórisdóttir, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Ívar Karl Hafliðason, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Vilhjálmur Jónsson, Þröstur Jónsson, Eyþór Stefánsson, Björg Eyþórsdóttir, Vilhjálmur Jónsson.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings lýsir yfir miklum áhyggjum af boðuðum niðurskurði og tekur undir varnaðarorð skólanefndar Menntaskólans á Egilsstöðum.

Menntaskólinn á Egilsstöðum er lykilstofnun fyrir samfélagið á Austurlandi og gegnir mikilvægu hlutverki í að tryggja ungu fólki aðgang að fjölbreyttu námi í heimabyggð. Kröfur um verulegan niðurskurð til að mæta uppsöfnuðum halla ógna grunnstoðum skólans, námsframboði og gæðum skólastarfsins.

Sveitarstjórn Múlaþings telur ljóst að hallarekstur skólans stafi hvorki af óráðsíu í rekstri né óþarfa þjónustu við framhaldsskólanema, og að rót vandans liggi fremur í fjárveitingum ríkisins til skólans sem hvorki hafa haldið í við verðbólgu né hækkun launavísitölu.

Það er krafa sveitarstjórnar Múlaþings að ríkisvaldið tryggi skólanum starfsskilyrði sem gera honum kleift að rækja lögbundið hlutverk sitt án þess að gripið sé til aðgerða sem skerða þjónustu við nemendur og samfélagið á Austurlandi.

Sveitarstjóra er falið að koma erindinu til viðeigandi ráðherra með ósk um fund.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?