Fara í efni

Sveitarstjórn Múlaþings

68. fundur 13. maí 2026 kl. 13:00 - 15:50 í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir forseti
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir aðalmaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Vilhjálmur Jónsson aðalmaður
  • Eyþór Stefánsson aðalmaður
  • Einar Freyr Guðmundsson aðalmaður
  • Þröstur Jónsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Hrund Erla Guðmundsdóttir starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Samþykkt um stjórn Múlaþings, breytingatillaga

Málsnúmer 202604001Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til seinni umræðu tillögur að breytingum á samþykkt um stjórn Múlaþings og viðaukum við hana.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tillögur að breytingum á samþykktum um stjórn Múlaþings og viðaukum við hana. Sviðsstjóra stjórnsýslu er falið að sjá um birtingu gagna með þeim hætti er lög og reglur kveða á um.

Samþykkt með 10 atkvæðum, einn sat hjá (ES).

2.Sveitarstjórnarkosningar 2026

Málsnúmer 202512171Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga um breytingu á skipan kjörstjórna á Borgarfirði eystri og Fljótsdalshéraði vegna sveitarstjórnar- og heimastjórnarkosninga þann 16. maí 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir breytingu á skipan kjörstjórnar á Borgarfirði eystri vegna sveitarstjórnar- og heimastjórnarkosninga þann 16. maí 2026.

Í stað Lindsey Suzanne Lee kemur Jóna Björg Sveinsdóttir sem aðalmaður í kjörstjórnina. Í stað Óttars Más Kárasonar kemur Elísabet Sveinsdóttir sem varamaður í kjörstjórnina.

Kjörstjórn á Borgarfirði eystri verður því þannig skipuð: Aðalmenn: Sigurður Högni Sigurðsson, Jóna Björg Sveinsdóttir, Sigurlaug Margrét Bragadóttir. Varamenn: Alda Marín Kristinsdóttir, Elísabet Sveinsdóttir og Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar.

Þá samþykkir sveitarstjórn breytingu á skipan kjörstjórnar í kjördeild 1 á Fljótsdalshéraði vegna heimastjórnarkosninga þann 16. maí 2026.

Í stað Ingibjargar Þuríðar Stefánsdóttur kemur Bogi Kárason sem varamaður í kjörstjórnina.

Kjörstjórn í kjördeild 1 á Fljótsdalshéraði vegna heimastjórnarkosninga verður því þannig skipuð: Aðalmenn: Aron Thorarensen, Sigurlaug Jónasdóttir, Arnar Jón Óskarsson. Varamenn: Bogi Kárason, Hafþór Atli Rúnarsson, Guðný B. Kjartansdóttir Briem.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Forvarnastefna Múlaþings

Málsnúmer 202603250Vakta málsnúmer

Fyrir liggur forvarnastefna Múlaþings sem fjölskylduráð vísaði til staðfestingar hjá sveitarstjórn á fundi sínum 7. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi forvarnarstefnu Múlaþings.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Snjómokstur og viðhald vega

Málsnúmer 202604033Vakta málsnúmer

Á 182. fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings 4. maí 2026 var til umræðu snjómokstur og viðhald vega í sveitarfélaginu. Loftur Þór Jónsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Austurlandi, sat fyrir svörum á fundinum.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísaði málinu til sveitastjórnar.
Til máls tóku: Jónína Brynjólfsdóttir, Hildur Þórisdóttir, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Þröstur Jónsson, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Eyþór Stefánsson, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Vilhjálmur Jónsson, Ívar Karl Hafliðason, Hildur Þórisdóttir, Þröstur Jónsson, Helgi Hlynur Ásgrímsson.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings tekur undir áhyggjur og kröfur umhverfis- og framkvæmdaráðs og allra heimastjórna sveitarfélagsins varðandi stöðu vegamála. Sveitarstjórn þakkar Vegagerðinni fyrir samstarfið en telur ljóst að verulega skorti á fjármagn til stofnunarinnar á Austursvæði til að tryggja fullnægjandi öryggi og þjónustustig á vegakerfinu innan Múlaþings.

Sveitarstjórn ítrekar þær kröfur að aukið fjármagn verði tryggt svo unnt sé að bjóða upp á vetraropnun alla daga vikunnar á Borgarfjarðarvegi nr. 94 um Vatnsskarð eystra, en núverandi fyrirkomulag með lokun á laugardögum er óviðunandi. Þá er það skýlaus krafa að Axarvegur verði nú þegar tekinn af G-reglu Vegagerðarinnar og þjónustaður í samræmi við þá miklu umferð sem um hann fer. Tryggja þarf fullnægjandi vetrarþjónustu um allt sveitarfélagið og er sérstaklega kallað eftir því að Upphéraðsvegur, á kaflanum frá Fellabæ að Hjarðarbóli, verði opnaður alla daga vikunnar til jafns við veginn austan megin Lagarfljóts. Einnig er þess krafist að fallið verði frá helmingamokstri á Jökuldalsvegi nr. 923 og að hann verði færður í fulla vetrarþjónustu.

Innan Múlaþings er gríðarlegur fjöldi malarvega sem flestir eru í mikilli þörf á viðhaldi þar sem slitlag þeirra er að mestu horfið. Sveitarstjórn áréttar að sú aðgerð að hefla vegi sem skortir slitlag er skammgóður vermir og langt því frá nægjanleg. Það er krafa sveitarstjórnar að aukið fjármagn verði tryggt svo hægt sé að bera í vegi og heimreiðar með kerfisbundnum hætti og að Vegagerðin forgangsraði þeim verkefnum í samráði við sveitarfélagið. Sveitarstjórn beinir þessari bókun til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, sem nú hefur til umfjöllunar drög að nýrri samgönguáætlun, og leggur áherslu á að tekið verði tillit til þessara sanngirniskrafna við úthlutun fjármagns.

Sveitarstjóra er falið að koma erindinu á framfæri við Vegagerðina, innviðaráðherra, fjármálaráðherra og umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Rekstur Menntaskólans á Egilsstöðum

Málsnúmer 202605062Vakta málsnúmer

Fyrir liggur ályktun frá skólanefnd Menntaskólans á Egilsstöðum, dagsett 29. apríl 2026, vegna kröfu ríkisins um niðurskurð til greiðslu á skuld við ríkissjóð vegna halla á rekstri skólans.
Til máls tóku: Berglind Harpa Svavarsdóttir, Hildur Þórisdóttir, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Ívar Karl Hafliðason, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Vilhjálmur Jónsson, Þröstur Jónsson, Eyþór Stefánsson, Björg Eyþórsdóttir, Vilhjálmur Jónsson.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings lýsir yfir miklum áhyggjum af boðuðum niðurskurði og tekur undir varnaðarorð skólanefndar Menntaskólans á Egilsstöðum.

Menntaskólinn á Egilsstöðum er lykilstofnun fyrir samfélagið á Austurlandi og gegnir mikilvægu hlutverki í að tryggja ungu fólki aðgang að fjölbreyttu námi í heimabyggð. Kröfur um verulegan niðurskurð til að mæta uppsöfnuðum halla ógna grunnstoðum skólans, námsframboði og gæðum skólastarfsins.

Sveitarstjórn Múlaþings telur ljóst að hallarekstur skólans stafi hvorki af óráðsíu í rekstri né óþarfa þjónustu við framhaldsskólanema, og að rót vandans liggi fremur í fjárveitingum ríkisins til skólans sem hvorki hafa haldið í við verðbólgu né hækkun launavísitölu.

Það er krafa sveitarstjórnar Múlaþings að ríkisvaldið tryggi skólanum starfsskilyrði sem gera honum kleift að rækja lögbundið hlutverk sitt án þess að gripið sé til aðgerða sem skerða þjónustu við nemendur og samfélagið á Austurlandi.

Sveitarstjóra er falið að koma erindinu til viðeigandi ráðherra með ósk um fund.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Gjaldskrár 2026

Málsnúmer 202508030Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun frá 158. fundi fjölskylduráðs 28. apríl 2026 um breytingu á gjaldskrá Lækjartúns á Seyðisfirði og Tryggvabúðar á Djúpavogi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrár Lækjartúns á Seyðisfirði og Tryggvabúðar á Djúpavogi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Kristni og kristinfræði í grunnskólum og leikskólum Múlaþings

Málsnúmer 202605059Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá Þresti Jónssyni sveitarstjórnarfulltrúa, dagsett 7. maí 2026, um að setja mál um kristni og kristinfræði í grunnskólum og leikskólum á dagskrá fundarins.
Til máls tóku: Þröstur Jónsson, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir sem beindi fyrirspurn til Þrastar, Hildur Þórisdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Eyþór Stefánsson sem beindi fyrirspurn til Þrastar, Þröstur Jónsson sem svaraði Ásrúnu Mjöll, Hildi, Helga Hlyni og Eyþóri.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings vísar málinu til umfjöllunar hjá fjölskylduráði.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Heimastjórn Borgarfjarðar - 69

Málsnúmer 2604023FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Borgarfjarðar frá 7. maí 2026.
Til máls tók: Eyþór Stefánsson um lið 1.

Lagt fram til kynningar.

9.Heimastjórn Djúpavogs - 71

Málsnúmer 2604012FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Djúpavogs frá 7. maí 2026.
Til máls tóku: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 1 og beindi fyrirspurn til Ívars Karls Hafliðasonar, Ívar Karl sem svaraði Ásrúnu Mjöll um lið 1, Ásrún Mjöll sem veitti andsvar um lið 1, Ívar Karl um lið 5.

Lagt fram til kynningar.

10.Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 69

Málsnúmer 2604024FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Fljótsdalshéraðs frá 7. maí 2026.
Til máls tóku: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 2 og beindi fyrirspurn til Vilhjálms Jónssonar, Vilhjálmur sem svaraði Ásrúnu Mjöll um lið 2, Ívar Karl Hafliðason um lið 2, Eyþór Stefánsson um lið 2, Helgi Hlynur Ásgrímsson um lið 2, Ásrún Mjöll sem veitti andsvar, Vilhjálmur sem svaraði Ásrúnu Mjöll.

Lagt fram til kynningar.

11.Heimastjórn Seyðisfjarðar - 68

Málsnúmer 2604011FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Seyðisfjarðar frá 8. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.

12.Byggðaráð Múlaþings - 186

Málsnúmer 2604009FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 21. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

13.Byggðaráð Múlaþings - 187

Málsnúmer 2604015FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 28. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Byggðaráð Múlaþings - 188

Málsnúmer 2604022FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 5. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.

15.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 180

Málsnúmer 2604008FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 20. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

16.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 181

Málsnúmer 2604013FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 27. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

17.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 182

Málsnúmer 2604021FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 4. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.

18.Fjölskylduráð Múlaþings - 157

Málsnúmer 2604006FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 21. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

19.Fjölskylduráð Múlaþings - 158

Málsnúmer 2604016FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 28. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

20.Fjölskylduráð Múlaþings - 159

Málsnúmer 2604018FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 5. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.

21.Ungmennaráð Múlaþings - 48

Málsnúmer 2604017FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð ungmennaráðs Múlaþings frá 6. maí 2026.
Til máls tóku: Einar Freyr Guðmundsson um lið 2, Hildur Þórisdóttir um lið 3.

Lagt fram til kynningar.

22.Skýrsla sveitarstjóra 2026

Málsnúmer 202601052Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri fór yfir og kynnti helstu mál sem hann hefur unnið að undanförnu og þau verkefni sem fram undan eru.

Fundi slitið - kl. 15:50.

Getum við bætt efni þessarar síðu?