Fara í efni

Umsókn um stofnun lóðar, Brúarás, rofastöð

Málsnúmer 202605175

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 185. fundur - 15.06.2026

Fyrir liggur umsókn frá Rarik ohf. um 48 m2 lóð undir rofastöð í landi Brúarásskóla.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur starfsmanni að óska eftir frekari gögnum frá málsaðila.
Málinu er frestað.

Samþykkt samhljóða.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 189. fundur - 17.08.2026

Tekin er fyrir að nýju umsókn Rarik ohf. um 48 m2 lóð undir rofastöð í landi Brúarásskóla. Fyrir liggja teikningar af húsinu og umsögn skólastjóra Brúarásskóla.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir stofnun lóðarinnar með hliðsjón af jákvæðri umsögn skólastjóra Brúarásskóla og fyrirliggjandi gögnum um útlit og umfang fyrirhugaðs húsnæðis.
Ráðið felur skipulagsfulltrúa að stofna lóðina og úthluta til málsaðila.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?