Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

185. fundur 15. júní 2026 kl. 09:30 - 12:49 í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir formaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir varaformaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Ólafur Arnar Hallgrímsson varamaður
  • Þórir Stefánsson aðalmaður
  • Glúmur Björnsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Sóley Valdimarsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála, situr fundinn undir liðum 3.-5.

Dagmar Ýr Stefánsdóttir, hafnastjóri, situr fundinn undir lið 6.

Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála, situr fundinn undir lið 7.

1.Fundir sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna júní til desember 2026

Málsnúmer 202604259Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að fundadagatali sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna tímabilið júní 2026-maí 2027.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi fundardagatal með áorðnum breytingum.

2.Fjárfestingaráætlun 2026

Málsnúmer 202508196Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda kynnir 10 ára fjárfestingaráætlun.
Lagt fram til kynningar.

3.Umsókn um stofnun lóðar, Brúarás, rofastöð

Málsnúmer 202605175Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn frá Rarik ohf. um 48 m2 lóð undir rofastöð í landi Brúarásskóla.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur starfsmanni að óska eftir frekari gögnum frá málsaðila.
Málinu er frestað.

Samþykkt samhljóða.

4.Stofnun lóðar, Lagarbraut 5 og 6

Málsnúmer 202510141Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.
Fyrir liggur merkjalýsing óbyggðar lóðar við Lagarbraut 6 í Fellabæ. Lóðin er innan skilgreinds miðsvæðis í Aðalskipulagi Múlaþings 2025-2045.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur verkefnastjóra skipulagsmála að færa lóðina á lista yfir lausar lóðir og að henni verði úthlutað í samræmi við lið b) í 3. grein reglna um úthlutun lóða hjá Múlaþingi.

Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl:

5.Tilkynning um eignaskerðingar vegna framkvæmda við Hafnarhólmaveg(947)

Málsnúmer 202605263Vakta málsnúmer

Þann 29. maí sl. barst sveitarfélaginu tilkynning frá Vegagerðinni, dags. 19. maí 2026, um eignaskerðingu vegna framkvæmda við Hafnarhólmaveg (947).
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir athugasemd við að vegstæði Vegagerðarinnar nái inn á gjaldtökusvæði við Hafnarhólma og leggur til að veghelgunarsvæðið verði minnkað um það sem því nemur.
Ráðið vísar erindinu einnig til umfjöllunar hjá heimastjórn Borgarfjarðar.

Verkefnastjóra skipulagsmála er falið að vinna umsögn til Vegagerðarinnar með ofangreint til hliðsjónar.

Samþykkt samhljóða.

6.Hafnaráð Múlaþings

Málsnúmer 202606083Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að taka til umfjöllunar stofnun Hafnaráðs Múlaþings.

Mikilvægt er að hafnamál fái skýran og fastan vettvang innan stjórnsýslu sveitarfélagsins þar sem hægt er að ræða stefnumótun, framtíðarsýn og þróun hafna sveitarfélagsins og taka pólitískar ákvarðanir um málaflokkinn til lengri tíma.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur hafnastjóra, formanni ráðsins og sviðsstjóra stjórnsýslu að vinna drög að samþykktum og stofnun Hafnaráðs Múlaþings.

Samþykkt samhljóða.

7.Refa- og minkaveiðar í Múlaþingi

Málsnúmer 202603158Vakta málsnúmer

Í upphafi máls vakti ÞBJ athygli á mögulegu vanhæfi sínu, sem landeigandi á svæði 9., undir þessum lið. Tillagan var borin upp til atkvæða og felld með öllum atkvæðum.

Nýlega auglýsti Múlaþing eftir refa- og minkaveiðimönnum á völdum veiðisvæðum í sveitarfélaginu. Framlagt er til kynningar minnisblað um þær umsóknir sem bárust.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar ráðningum refa- og minkaveiðimanna til samþykktar í sveitarstjórn í samræmi við framlagt minnisblað og umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

Fundi slitið - kl. 12:49.

Getum við bætt efni þessarar síðu?