Málsnúmer 202211079Vakta málsnúmer
Verkefnastjóri framkvæmdamála, Rúnar Matthíasson, situr fundinn undir þessum lið.
Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur niðurstaða útboðs vegna stækkunar Seyðisfjarðarskóla. Tvö tilboð bárust og voru þau yfir kostnaðaráætlun sveitarfélagsins að upphæð 939.426.340 kr.
Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að taka afstöðu til tilboðanna.
Fyrra tilboð kom frá MVA. Heildartilboðsupphæð, með VSK, samtals 1.163.575.982 kr.
Seinna tilboð kom frá Eðalmönnum ehf. Heildartilboðsfjárhæð, með VSK, samtals 1.062.594.657 kr.
Verkefnarstjóri á framkvæmdasviði, Rúnar Matthíasson, sat fundinn undir lið 2.