Fara í efni

Starfskjör kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 202605237

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Múlaþings - 69. fundur - 03.06.2026

Fyrir liggur minnisblað um ákvörðun styrks til fulltrúa í sveitarstjórn og heimastjórnum til kaupa á tölvu eða síma, auk mánaðarlegs símastyrks til oddvita framboða og formanna ráða.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að styrkur til tækjakaupa til handa aðalfulltrúm í sveitarstjórn og heimastjórnum, samkvæmt 2. mgr. 14. gr. reglna um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Múlaþingi, verði kr. 212.500,- og að símastyrkur samkvæmt sama ákvæði verði kr. 7.500,-.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Sveitarstjórn Múlaþings - 70. fundur - 01.07.2026

Fyrir liggur erindi sveitarstjórnarfulltrúans Helga Hlyns Ásgrímssonar, dagsett 23. júní 2026, um breytingu á starfskjörum formanna fastanefnda Múlaþings.
Til máls tóku: Helgi Hlynur Ásgrímsson, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Helgi Hlynur sem svaraði Berglindi Hörpu, Jónína Brynjólfsdóttir, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, Eiður Ragnarsson, Jónína Brynjólfsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram af hálfu Helga Hlyns:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að breyta 2. málsl. 8. gr. reglna um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Múlaþingi þannig að þóknun formanna fastanefnda lækki úr 7,5% af grunni í 5,0% af grunni fyrir hvern setinn fund.

Eftir breytinguna orðast 8. gr. reglnanna svo:
„Fyrir hvern setinn fund í fastanefndum sveitarfélagsins og heimastjórnum, sbr. b- og c-lið 3. gr., er greidd þóknun sem nemur 3% af grunni. Formaður fastanefndar þiggur 5,0% af grunni fyrir hvern fund.“

Breyting þessi tekur gildi 1. september 2026.

Tillagan er felld með 9 atkvæðum, 1 sat hjá (ÁMS), 1 samþykkti tillöguna (HHÁ).

Eftirfarandi tillaga lögð fram af hálfu meirihluta:
Með vísan til bókunar undir lið 7 um stjórnskipulag Múlaþings er tillögu um breytingu á starfskjörum formanna fastanefnda Múlaþings vísað inn í þá vinnu sem þar er fyrirhuguð af hálfu sveitarstjóra og byggðaráðs.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?