Fara í efni

Sveitarstjórn Múlaþings

70. fundur 01. júlí 2026 kl. 13:00 - 15:01 í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir aðalmaður
  • Jónína Brynjólfsdóttir forseti
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Eiður Ragnarsson aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir aðalmaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Einar Freyr Guðmundsson aðalmaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson varamaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Hlynur Jónsson fundarritari
  • Hrund Erla Guðmundsdóttir starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
Í upphafi fundar bar forseti sveitarstjórnar upp tillögu um að mál undir lið 11, Sumarleyfi sveitarstjórnar, yrði bætt við dagskrána. Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

1.Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026

Málsnúmer 202606163Vakta málsnúmer

Fyrir liggur þingsályktun, sem samþykkt var á Alþingi 28. maí 2026, um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst 2026 og liggur fyrir sveitarstjórn að taka ákvarðanir og bóka samþykki sitt um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar innan sveitarfélagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að kjörstaðir vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 verði eftirfarandi:

Borgarfjörður: Grunnskólinn á Borgarfirði. Djúpivogur: Tryggvabúð Djúpavogi. Fljótsdalshérað: Menntaskólinn á Egilsstöðum. Seyðisfjörður: Íþróttamiðstöðin á Seyðisfirði.

Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að kjördeildir við atkvæðagreiðsluna verði fimm talsins, þar af tvær á Fljótsdalshéraði. Kjördeildirnar á Fljótsdalshéraði skiptast þannig: Í kjördeild 1 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum A til og með bókstafnum M. Í kjördeild 2 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur hverra nöfn byrja á bókstafnum N til og með bókstafnum Ö, íbúar í Fellabæ, Eiðum og Hallormsstað og íbúar í dreifbýli á Fljótsdalshéraði.

Sveitarstjórn samþykkir að óska eftir því við sýslumann að hægt verði að kjósa utan kjörfundar í atkvæðagreiðslunni á skrifstofum sveitarfélagsins á Borgarfirði og Djúpavogi, frá og með 13. ágúst til og með 28. ágúst 2026.

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að óska eftir því við sýslumann að kjörstjórar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu verði Alda Marín Kristinsdóttir, Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar og Þórunn Ólafsdóttir á Borgarfirði og Rúnar Matthíasson og Greta Mjöll Samúelsdóttir á Djúpavogi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Kosning fulltrúa í embætti, stjórnir, ráð og nefndir

Málsnúmer 202605189Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að skipun kjörstjórna í Múlaþingi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir eftirfarandi lista fulltrúa í yfirkjörstjórn Múlaþings og kjörstjórnir á Borgarfirði, Djúpavogi, Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði:

Eftirtaldir einstaklingar skipi yfirkjörstjórn Múlaþings. Aðalmenn: Stefán Þór Hauksson, Arna Soffía Dal Christiansen, Ásdís Þórðardóttir. Varamenn: Ólöf Ólafsdóttir, Unnur Óskarsdóttir, Alda Marín Kristinsdóttir.

Eftirtaldir einstaklingar skipi undirkjörstjórnir í Múlaþingi:

Fljótsdalshérað, kjördeild 1. Aðalmenn: Lovísa Hreinsdóttir, Eydís Bjarnadóttir, Jón Hávarður Jónsson. Varamenn: Maríanna Jóhannsdóttir, Bára Dögg Þórhallsdóttir, Aron Thorarensen.

Fljótsdalshérað, kjördeild 2. Aðalmenn: Inga Rós Unnarsdóttir, Vignir Elvar Vignisson, Bogi Kárason. Varamenn: Baldur Grétarsson, Guðmundur Sveinsson Kröyer, Anna Dís Jónsdóttir.

Borgarfjörður eystra. Aðalmenn: Lindsey Suzanne Lee, Sigurlaug Margrét Bragadóttir, Eyþór Stefánsson. Varamenn: Þórunn Ólafsdóttir, Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar, Óttar Már Kárason.

Djúpivogur. Aðalmenn: Egill Egilsson, Kristrún Gunnarsdóttir, Ólöf Vilbergsdóttir. Varamenn: Sóley Dögg Birgisdóttir, Unnþór Snæbjörnsson, Ragnar Björn Ingason.

Seyðisfjörður. Aðalmenn: Margrét Urður Snorradóttir, Þorsteinn Sotti Arason, Sigrún Rósa Björnsdóttir. Varamenn: Sigurður Snæbjörn Stefánsson, Elena Pétursdóttir, Sigurður Högni Sigurðsson.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Samgönguáætlun 2026 - 2040

Málsnúmer 202512034Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun sem samþykkt var á 69. fundi heimastjórnar Seyðisfjarðar um samgönguáætlun 2026-2040.
Til máls tók: Einar Freyr Guðmundsson.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings tekur undir bókun heimastjórnar Seyðisfjarðar og harmar þau svik sem raungerst hafa með nýsamþykktri samgönguáætlun Alþingis. Þar er ekki einvörðungu farið á bak við gefin fyrirheit stjórnvalda í aðdraganda sameiningar Múlaþings heldur er einu, fullhönnuðu og rannsökuðu jarðgöngum landsins hent út af áætluninni. Að baki liggur áratuga undirbúningsvinna, rannsóknir og hönnun með kostnaði fyrir ríki og sveitarfélag upp á milljarð króna.

Framganga stjórnvalda er grafalvarleg þar sem vegið er að trausti til þeirrar stefnumarkandi vinnu sem samgönguáætlun er ætlað að vera. Með slíku fordæmi verður vart hægt að taka mark á langtímaáætlun stjórnvalda héðan í frá.

Fjarðarheiðargöng eru öryggismál fyrir landið allt auk þess að vera gátt Íslands til Evrópu. Þá eru göngin fyrsti áfangi í hringtengingu samgangna á Austurlandi til eflingar atvinnulífs og samfélags.

Sveitarstjórn mun ekki una vinnubrögðum Alþingis sem rýrir verulega traust til löggjafarvaldsins.

Sveitarstjórn fordæmir að meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar hafi lagt blessun sína yfir vinnubrögð ráðherra og viðurkenni þar með að verkefni á framkvæmdahluta áætlunar séu tekin af borðinu. Sveitarstjórn mun vinna áfram ötullega að því að koma Fjarðarheiðargöngum í útboð.

Sveitarstjórn Múlaþings felur sveitarstjóra að koma bókuninni auk fylgigagna á framfæri við þingmenn og ráðherra.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Heilsársvegur um Öxi

Málsnúmer 202304027Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun sem samþykkt var á 71. fundi heimastjórnar Djúpavogs um Axarveg og fyrirhugaðar framkvæmdir næstu ára.
Til máls tóku: Eiður Ragnarsson, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings tekur undir bókun heimastjórnar Djúpavogs frá 26. júní 2026 og bendir á að fyrirhuguð tilfærsla á fjármagni flýtir ekki heildarframkvæmd verkefnisins. Það er því ljóst að miðað við núverandi áætlun muni taka að lágmarki 8 ár að klára þessa mikilvægu samgöngubót sem er fullkomlega óviðunandi.

Einnig vill sveitarstjórn benda á að viðhald og þjónusta á núverandi vegi sé í algjörum ólestri, enn hafi vegurinn ekki verið heflaður þrátt fyrir að komið sé fram í lok júní og verulega skortir á ofaníburð á löngum köflum.

Sveitarstjóra er falið að óska eftir fundi með Vegagerðinni um málið fyrir hönd sveitarstjórnar og fulltrúa heimastjórna.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Brunavarnaáætlun 2026-2031

Málsnúmer 202604028Vakta málsnúmer

Fyrir liggur brunavarnaráætlun slökkviliðs Múlaþings 2026-2031 sem umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkti á 183. fundi sínum og vísaði til staðfestingar hjá sveitarstjórn.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi brunavarnaáætlun slökkviliðs Múlaþings 2026 til 2031.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Refa- og minkaveiðar í Múlaþingi

Málsnúmer 202603158Vakta málsnúmer

Fyrir liggja samningar um refa- og minkaveiði í Múlaþingi sem umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkti á 183. fundi sínum að vísa til staðfestingar hjá sveitarstjórn.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi samninga um refa- og minkaveiði í Múlaþingi. Sveitarstjórn felur verkefnastjóra umhverfismála að ganga frá samningunum fyrir hönd sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Fundir sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna júní 2026-maí 2027

Málsnúmer 202604259Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að fundadagatali sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna tímabilið júní 2026 til maí 2027 sem hafa verið staðfest af viðkomandi fagráðum og heimastjórnum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi fundadagatal sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna tímabilið júní 2026 til maí 2027.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Skipulagsbreytingar í grunnskólum

Málsnúmer 202606099Vakta málsnúmer

Fyrir liggja tillögur sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu um breytingar á stjórnskipulagi grunnskóla Múlaþings fyrir skólaárið 2026 til 2027. Tillögurnar fela í sér að ekki verði starfandi aðstoðarskólastjórar í Egilsstaðaskóla, Fellaskóla og Djúpavogsskóla á skólaárinu. Fjölskylduráð samþykkti tillögurnar á 162. fundi sínum 15. júní 2026 og vísaði þeim til staðfestingar hjá sveitarstjórn.
Til máls tók: Jónína Brynjólfsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tillögur um breytingar á stjórnskipulagi grunnskóla Múlaþings fyrir skólaárið 2026 til 2027.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

9.Stjórnskipulag sveitarfélagsins

Málsnúmer 202508014Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga um að sveitarstjórn feli sveitarstjóra og byggðaráði að vinna heildstæða greiningu og leggja fram tillögur um endurskoðun stjórnskipulags sveitarfélagsins í samræmi við meirihlutasamning B og D lista.
Til máls tóku: Berglind Harpa Svavarsdóttir, Einar Freyr Guðmundsson, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, Berglind Harpa sem svaraði Ásrúnu Mjöll, Jónína Brynjólfsdóttir, Ásrún Mjöll til andsvara, Berglind Harpa, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Eiður Ragnarsson, Berglind Harpa sem svaraði Helga Hlyni.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra og byggðaráði að vinna tillögur að endurskoðun stjórnskipulags Múlaþings með það að markmiði að einfalda stjórnsýslu, auka skilvirkni og stuðla að hagræðingu í rekstri.

Í þeirri vinnu skal meðal annars leggja mat á fjölda fulltrúa í sveitarstjórn, ráðum og nefndum, fyrirkomulagi heimastjórna með hliðsjón af lokum núverandi heimilda árið 2028 og yfirfara starfskjör kjörinna fulltrúa með hliðsjón af starfskjörum í sambærilegum sveitarfélögum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

10.Starfskjör kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 202605237Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi sveitarstjórnarfulltrúans Helga Hlyns Ásgrímssonar, dagsett 23. júní 2026, um breytingu á starfskjörum formanna fastanefnda Múlaþings.
Til máls tóku: Helgi Hlynur Ásgrímsson, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Helgi Hlynur sem svaraði Berglindi Hörpu, Jónína Brynjólfsdóttir, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, Eiður Ragnarsson, Jónína Brynjólfsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram af hálfu Helga Hlyns:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að breyta 2. málsl. 8. gr. reglna um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Múlaþingi þannig að þóknun formanna fastanefnda lækki úr 7,5% af grunni í 5,0% af grunni fyrir hvern setinn fund.

Eftir breytinguna orðast 8. gr. reglnanna svo:
„Fyrir hvern setinn fund í fastanefndum sveitarfélagsins og heimastjórnum, sbr. b- og c-lið 3. gr., er greidd þóknun sem nemur 3% af grunni. Formaður fastanefndar þiggur 5,0% af grunni fyrir hvern fund.“

Breyting þessi tekur gildi 1. september 2026.

Tillagan er felld með 9 atkvæðum, 1 sat hjá (ÁMS), 1 samþykkti tillöguna (HHÁ).

Eftirfarandi tillaga lögð fram af hálfu meirihluta:
Með vísan til bókunar undir lið 7 um stjórnskipulag Múlaþings er tillögu um breytingu á starfskjörum formanna fastanefnda Múlaþings vísað inn í þá vinnu sem þar er fyrirhuguð af hálfu sveitarstjóra og byggðaráðs.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

11.Sumarleyfi sveitarstjórnar 2026

Málsnúmer 202606206Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga um sumarleyfi sveitarstjórnar 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að sumarleyfi sveitarstjórnar verði frá fundi hennar 1. júlí 2026 til og með 1. ágúst 2026. Byggðaráð Múlaþings mun fara með fullnaðarafgreiðslu mála þann tíma, samanber 32. grein samþykkta um stjórn Múlaþings. Fyrsti fundur sveitarstjórnar að afloknu sumarleyfi verði haldinn 12. ágúst 2026.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

12.Heimastjórn Borgarfjarðar - 70

Málsnúmer 2606017FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Borgarfjarðar frá 25. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

13.Heimastjórn Djúpavogs - 71

Málsnúmer 2606024FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Djúpavogs frá 26. júní 2026.
Til máls tóku: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 3, Eiður Ragnarsson um lið 3, Ívar Karl Hafliðason um lið 3, Dagmar Ýr Stefánsdóttir um lið 3.

Lagt fram til kynningar.

14.Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 70

Málsnúmer 2606021FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Fljótsdalshéraðs frá 24. júní 2026.
Til máls tóku: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 13, Eiður Ragnarsson um liði 8, 9 og 13, Ívar Kafl Hafliðason um liði 12 og 14.

Lagt fram til kynningar.

15.Heimastjórn Seyðisfjarðar - 69

Málsnúmer 2606010FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Seyðisfjarðar frá 18. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

16.Byggðaráð Múlaþings - 189

Málsnúmer 2605009FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 19. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.

17.Byggðaráð Múlaþings - 190

Málsnúmer 2606004FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 9. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

18.Byggðaráð Múlaþings - 191

Málsnúmer 2606013FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 16. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

19.Byggðaráð Múlaþings - 192

Málsnúmer 2606022FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 23. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

20.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 183

Málsnúmer 2605005FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 18. maí 2026.
Til máls tók: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 11

Lagt fram til kynningar.

21.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 184

Málsnúmer 2606001FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 8. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

22.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 185

Málsnúmer 2606012FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 15. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

23.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 186

Málsnúmer 2606020FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 22. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

24.Fjölskylduráð Múlaþings - 160

Málsnúmer 2605006FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 19. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.

25.Fjölskylduráð Múlaþings - 161

Málsnúmer 2606007FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 9. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

26.Fjölskylduráð Múlaþings - 162

Málsnúmer 2606014FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 15. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

27.Fjölskylduráð Múlaþings - 163

Málsnúmer 2606023FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 22. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

28.Skýrsla sveitarstjóra 2026

Málsnúmer 202601052Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri fór yfir og kynnti helstu mál sem hann hefur unnið að undanförnu og þau verkefni sem fram undan eru.

Fundi slitið - kl. 15:01.

Getum við bætt efni þessarar síðu?