Fara í efni

Sveitarstjórn Múlaþings

69. fundur 03. júní 2026 kl. 13:00 - 14:21 í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir aðalmaður
  • Jónína Brynjólfsdóttir forseti
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Eiður Ragnarsson aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir aðalmaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir aðalmaður
  • Einar Freyr Guðmundsson aðalmaður
  • Glúmur Björnsson varamaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Hlynur Jónsson fundarritari
  • Hrund Erla Guðmundsdóttir starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
Í upphafi fundar bar Berglind Harpa Svavarsdóttir upp tillögu um að mál undir lið 10, Samgönguáætlun 2026-2040, yrði bætt við dagskrána. Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

1.Kosning fulltrúa í embætti, stjórnir, ráð og nefndir

Málsnúmer 202605189Vakta málsnúmer

Fyrir liggja tillögur um kosningu fulltrúa í embætti, stjórnir, ráð og nefndir sveitarfélagsins.
Berglind Harpa Svavarsdóttir aldursforseti sveitarstjórnar setti fundinn og bauð fundarfólk velkomið.

Gengið var til dagskrár og stýrði Berglind Harpa kjöri forseta sveitarstjórnar.

Fram kom tillaga um Jónínu Brynjólfsdóttur sem forseta sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Að þeim dagskrárlið loknum tók Jónína Brynjólfsdóttir, nýkjörinn forseti sveitarstjórnar, við stjórn fundarins.

Kosning fulltrúa í embætti, stjórnir og nefndir:
a) Kosning 1. og 2. varaforseta
1. varaforseti: Berglind Harpa Svavarsdóttir D-lista
2. varaforseti: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir V-lista

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

b) Kosning skrifara
Aðalmenn
Einar Freyr Guðmundsson D-lista
Hólmfríður Rut Einarsdóttir L-lista

Varamenn
Þórey Birna Jónsdóttir B-lista
Lárus Bjarnason M-lista

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til 4. mgr. 47. gr. sveitarstjórnarlaga samþykkir sveitarstjórn að farið verði eftir ákvæðum 3. mgr. 47. gr. sömu laga þegar varamenn eru kallaðir til setu á fundum í nefndum, stjórnum og ráðum þar sem lagðir voru fram sameiginlegir listar við kjör í viðkomandi nefnd og þeir urðu sjálfkjörnir eða kosið var milli þeirra hlutfallskosningu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

c) Byggðaráð
Berglind Harpa Svavarsdóttir D-lista (formaður)
Eiður Ragnarsson B-lista (varaformaður)
Þórhildur Katrín Stefánsdóttir D-lista
Ásrún Mjöll Stefánsdóttir V-lista
Lárus Bjarnason M-lista

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Samkvæmt 1. mgr. 50. gr. sveitarstjórnarlaga hafa framboðsaðilar sem ekki fá kjörinn fulltrúa í byggðaráð rétt á að tilnefna áheyrnarfulltrúa í ráðið.

Áheyrnarfulltrúi:
Hólmfríður Rut Einarsdóttir L-lista

Sveitarstjórnarfulltrúarnir Lárus Bjarnason og Hólmfríður Rut Einarsdóttir leggja fram eftirfarandi bókun um kjör í byggðaráð:

Þar sem byggðaráð er kjörið til eins árs í senn, samanber 27. gr. samþykktar um stjórn Múlaþings, hafa L-listi og M-listi komið sér saman um að skipta sæti í ráðinu á milli sín þannig að fyrri helming kjörtímabilsins (starfsárin 2026-2027 og 2027-2028) muni fulltrúi M-lista, Lárus Bjarnason, sitja sem aðalmaður í byggðaráði. Seinni helming kjörtímabilsins (starfsárin 2028-2029 og 2029-2030) muni Lárus láta af störfum og fulltrúi L-lista, Hólmfríður Rut Einarsdóttir, verða kjörin sem aðalmaður í hans stað. Varamenn flokkanna muni taka sæti með sama hætti á kjörtímabilinu. Jafnframt muni listarnir skipta með sér rétti til tilnefningar áheyrnarfulltrúa í byggðaráði með samsvarandi hætti á tímabilinu. Þessu pólitíska samkomulagi verður fylgt eftir við árlega skipan byggðaráðs á fyrsta fundi hvers starfsárs sveitarstjórnar.

d) Fjölskylduráð
Jónína Brynjólfsdóttir B-lista (formaður)
Einar Freyr Guðmundsson D-lista (varaformaður)
Herdís Magna Gunnarsdóttir D-lista
Björg Eyþórsdóttir B-lista
Guðgeir Einarsson B-lista
Jóhann Hjalti Þorsteinsson L-lista
Erlingur Hjörvar Guðjónsson M-lista

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Varamenn
Brynjar Pálmi Ásgeirsson B-lista
Erla Gunnlaugsdóttir B-lista
Þórey Birna Jónsdóttir B-lista
Guðný Lára Guðrúnardóttir D-lista
Sylvía Ösp Jónsdóttir D-lista
Urður Arna Ómarsdóttir L-lista
Berglind Sveinsdóttir M-lista

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Samkvæmt 1. mgr. 50. gr. sveitarstjórnarlaga hafa framboðsaðilar sem ekki fá kjörinn fulltrúa í fastanefnd með fullnaðarafgreiðsluheimild rétt á að tilnefna áheyrnarfulltrúa í ráðið.

Áheyrnarfulltrúi:
Sigríður Lára Sigurjónsdóttir V-lista

Varaáheyrnarfulltrúi:
Helgi Hlynur Ásgrímsson V-lista

e) Umhverfis- og framkvæmdaráð
Aðalmenn
Þórhildur Katrín Stefánsdóttir D-lista (formaður)
Þórey Birna Jónsdóttir B-lista (varaformaður)
Guðmundur Bj. Hafþórsson B-lista
Þórhallur Borgarsson D-lista
Þórir Stefánsson D-lista
Glúmur Björnsson V-lista
Ásrún Mjöll Stefánsdóttir V-lista

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Varamenn
Ólafur Arnar Hallgrímsson D-lista
Gabríel Arnarsson D-lista
Skarphéðinn Smári Þórhallsson D-lista
Eiður Ragnarsson B-lista
Björg Eyþórsdóttir B-lista
Guðrún Ásta Tryggvadóttir V-lista
Helgi Hlynur Ásgrímsson V-lista

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Samkvæmt 1. mgr. 50. gr. sveitarstjórnarlaga hafa framboðsaðilar sem ekki fá kjörinn fulltrúa í fastanefnd með fullnaðarafgreiðsluheimild rétt á að tilnefna áheyrnarfulltrúa í ráðið.

Áheyrnarfulltrúar:
Hannes Karl Hilmarsson M-lista, Hólmfríður Rut Einarsdóttir L-lista
Varaáheyrnarfulltrúar:
Stefán Bragi Birgisson M-lista, Jóhann Hjalti Þorsteinsson L-lista

f) Fulltrúar sveitarstjórnar í fjórar heimastjórnir

Heimastjórn Borgarfjarðar
Aðalmaður: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir (formaður)
Varamaður: Helgi Hlynur Ásgrímsson (varaformaður)

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Djúpavogs
Aðalmaður: Þórey Birna Jónsdóttir (formaður)
Varamaður: Jónína Brynjólfsdóttir (varaformaður)

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs
Aðalmaður: Eiður Ragnarsson (formaður)
Varamaður: Þórey Birna Jónsdóttir (varaformaður)

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Seyðisfjarðar
Aðalmaður: Einar Freyr Guðmundsson (formaður)
Varamaður: Ívar Karl Hafliðason (varaformaður)

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

g) Yfirkjörstjórn
Í samræmi við ákvæði 17. gr. kosningalaga nr. 112/2021 kýs sveitarstjórn eftirtalda í yfirkjörstjórn. Þeim er jafnframt falið að hafa yfirumsjón með starfi undirkjörstjórna í sveitarfélaginu og að vera hverfiskjörstjórn á kjörstað á Egilsstöðum.

Aðalmenn
Stefán Þór Hauksson
Arna Soffía Dal Christiansen
Guðni Sigmundsson

Varamenn
Ólöf Ólafsdóttir
Ásdís Þórðardóttir
Alda Marín Kristinsdóttir

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Með vísan til heimilda í lögum er kjöri í undirkjörstjórnir frestað.

h) Fulltrúar í stjórn HEF veitna
Aðalmenn
Ívar Karl Hafliðason D-lista
Eiður Ragnarsson B-lista
Ágústa Björnsdóttir D-lista
Helgi Hlynur Ásgrímsson V-lista
Hólmfríður Rut Einarsdóttir L-lista frá 1. júní 2026 til 31. maí 2028, fulltrúi M-lista frá 1. júní 2028 til 31. maí 2030

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Varamenn
Þórir Stefánsson D-lista
Ólafur Arnar Hallgrímsson D-lista
Guðmundur Bj. Hafþórsson B-lista
Helgi Ómar Bragason, V-lista
Páll Baldursson L-lista frá 1. júní 2026 til 31. maí 2028, fulltrúi M-lista frá 1. júní 2028 til 31. maí 2030

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

i) Ungmennaráð
Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra og starfsmanni ungmennaráðs að kalla eftir tilnefningum í ráðið í samræmi við erindisbréf ungmennaráðs.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

j) Öldungaráð
Aðalmenn
Einar Freyr Guðmundsson D-lista
Erla Gunnlaugsdóttir B-lista
Jóhann Hjalti Þorsteinsson L-lista frá 1. júní 2026 til 31. maí 2028, Lárus Bjarnason M-lista frá 1. júní 2028 til 31. maí 2030

Varamenn
Herdís Magna Gunnarsdóttir D-lista
Björg Eyþórsdóttir B-lista
Hólmfríður Rut Einarsdóttir L-lista frá 1. júní 2026 til 31. maí 2028, Berglind Sveinsdóttir M-lista frá 1. júní 2028 til 31. maí 2030

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að kalla eftir tilnefningu þriggja aðalmanna og þriggja varamanna frá félögum eldri borgara í Múlaþingi og einum fulltrúa og einum til vara frá HSA.

k) Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
Aðalmenn
Unnur Ólöf Tómasdóttir D-lista
Guðgeir Einarsson B-lista
Guðrún Ásta Tryggvadóttir V-lista

Varamenn
Guðný Margrét Hjaltadóttir D-lista
Eygló Jóhannsdóttir B-lista
Ásrún Mjöll Stefánsdóttir V-lista

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Sveitarstjórn samþykkir að fela fjölskylduráði að kalla eftir tilnefningum, þriggja fulltrúa og þriggja til vara, frá hagsmunasamtökum fatlaðs fólks.

l) Fulltrúar sveitarfélagsins á haustþing og aðalfund Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA)
Samkvæmt samþykktum SSA eru allir kjörnir fulltrúar sveitarstjórnar fulltrúar þess á haustþingi og aðalfundi SSA og skipta þar hlutfallslega með sér atkvæðafjölda sveitarfélagsins. Varamenn kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn eru jafnframt varamenn þeirra á haustþingum og aðalfundum SSA.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Almannavarnanefnd
Í samræmi við samkomulag um skipan sameiginlegrar almannavarnanefndar í umdæmi lögreglunnar á Austurlandi situr sveitarstjóri í nefndinni sem fulltrúi sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn staðfestir því Dagmar Ýr Stefánsdóttur sem aðalfulltrúa en varafulltrúi er Hlynur Jónsson.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Stjórn Ársala bs.
Aðalmenn: Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Ingvar Rafn Stefánsson
Varamenn: Hlynur Jónsson, Anna Alexandersdóttir

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands
Aðalmaður: Björn Ingimarsson
Varamaður: Dagmar Ýr Stefánsdóttir

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heilbrigðisnefnd Austurlands
Aðalmenn: Jónína Brynjólfsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson
Varamenn: Þórhallur Borgarsson, Jóhann Hjalti Þorsteinsson

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
Aðalmenn
Berglind Harpa Svavarsdóttir D-lista
Ívar Karl Hafliðason D-lista
Jónína Brynjólfsdóttir B-lista
Ásrún Mjöll Stefánsdóttir V-lista

Varamenn
Þórhildur Katrín Stefánsdóttir D-lista
Einar Freyr Guðmundsson D-lista
Eiður Ragnarsson B-lista
Helgi Hlynur Ásgrímsson V-lista

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Stjórn Brunavarna á Héraði
Aðalmenn: Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Ingvar Rafn Stefánsson
Varamenn: Hlynur Jónsson, Hugrún Hjálmarsdóttir

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga
Aðalmaður: Þórhallur Borgarsson
Varamaður: Jóhann Hjalti Þorsteinsson

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Stjórn Vísindagarðsins ehf.
Aðalmenn: Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Ívar Karl Hafliðason
Varamenn: Hlynur Jónsson, Jónína Brynjólfsdóttir

Til máls tóku: Helgi Hlynur Ásgrímsson, Jónína Brynjólfsdóttir til andsvara, Helgi Hlynur.

Samþykkt með 9 atkvæðum, tveir sátu hjá (HHÁ og GB).

Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs
Aðalmenn
Eiður Ragnarsson B-lista
Pétur Heimisson V-lista
Varamenn:
Jónína Brynjólfsdóttir B-lista
Guðrún Schmidt V-lista

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Stjórn Náttúrustofu Austurlands
Aðalmaður: Stefán Bogi Sveinsson
Varamaður: Lárus Bjarnason

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Múlaþingi 2026

Málsnúmer 202605236Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar greinargerð yfirkjörstjórnar Múlaþings um úrslit sveitarstjórnarkosninga sem fram fóru 16. maí 2026.
Sveitarstjórnarkosningar fóru fram í Múlaþingi 16. maí 2026. Kjörstaðir voru fjórir, þ.e. í Menntaskólanum á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði, Grunnskólanum á Borgarfirði, Tryggvabúð á Djúpavogi og Íþróttamiðstöðinni á Seyðisfirði.

Í Múlaþingi öllu voru 3.660 á kjörskrá. Atkvæði greiddu 2.425, þar af 337 utan kjörfundar. Kjörsókn var því 66,6%.

Talning atkvæða fór fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum og hófst um kl. 01:05 aðfaranótt 17. maí 2026 og var henni lokið kl. 02:15.

Talin voru 2.630 atkvæði sem skiptust svona:

B-listi Framsóknarflokks, 619 atkv. og þrír fulltrúar kjörnir.
D-listi Sjálfstæðisflokks, 773 atkv. og fjórir fulltrúar kjörnir.
L-listi Austurlistans / Viðreisnar Múlaþingi, 287 atkv. og einn fulltrúi kjörinn.
M-listi Miðflokks, 378 atkv. og einn fulltrúi kjörinn.
V-listi VG og óháðra, 498 atkv. og tveir fulltrúar kjörnir.

Auðir seðlar voru 65 og ógildir seðlar voru 10.

Lagt fram til kynningar.

3.Ráðningarsamningur sveitarstjóra

Málsnúmer 202605200Vakta málsnúmer

Fyrir liggur ráðningarsamningur sveitarstjóra dagsettur 1. júní 2026.
Til máls tóku: Helgi Hlynur Ásgrímsson, Berglind Harpa Svavarsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi ráðningarsamning við Dagmar Ýr Stefánsdóttur. Samningurinn verði birtur á vefsíðu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Fundatími sveitarstjórnar

Málsnúmer 202605201Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga um reglulegan fundartíma sveitarstjórnar Múlaþings og boðun aukafundar 1. júlí 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að fastur fundartími hennar verði að jafnaði 2. miðvikudagur í mánuði að júlí frátöldum og að fundir hefjist kl. 13.00. Fundarstaður verði auglýstur fyrir hvern fund, en stefnt er að því að funda víðs vegar um sveitarfélagið.

Þá samþykkir sveitarstjórn að boða til aukafundar miðvikudaginn 1. júlí 2026 kl. 13:00.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Starfskjör kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 202605237Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað um ákvörðun styrks til fulltrúa í sveitarstjórn og heimastjórnum til kaupa á tölvu eða síma, auk mánaðarlegs símastyrks til oddvita framboða og formanna ráða.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að styrkur til tækjakaupa til handa aðalfulltrúm í sveitarstjórn og heimastjórnum, samkvæmt 2. mgr. 14. gr. reglna um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Múlaþingi, verði kr. 212.500,- og að símastyrkur samkvæmt sama ákvæði verði kr. 7.500,-.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Siðareglur kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 202605238Vakta málsnúmer

Fyrir liggja siðareglur kjörinna fulltrúa í Múlaþingi.
Lagt fram til kynningar.

7.Erindisbréf nefnda

Málsnúmer 202206247Vakta málsnúmer

Fyrir liggja erindisbréf fyrir eftirtaldar nefndir Múlaþings:
Byggðaráð, umhverfis- og framkvæmdaráð, fjölskylduráð, heimastjórn Borgarfjarðar, heimastjórn Djúpavogs, heimastjórn Seyðisfjarðar, heimastjórn Fljótsdalshéraðs, öldungaráð, ungmennaráð og samráðshóp um málefni fatlaðs fólks.
Til máls tóku: Berglind Harpa Svavarsdóttir

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir erindisbréf byggðaráðs, umhverfis- og framkvæmdaráðs, fjölskylduráðs, heimastjórnar Borgarfjarðar, heimastjórnar Djúpavogs, heimastjórnar Fljótsdalshéraðs, heimastjórnar Seyðisfjarðar, öldungaráðs, ungmennaráðs og samráðshóps um málefni fatlaðs fólks, og felur sveitarstjóra að leggja þau fyrir viðkomandi nefndir til kynningar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Aukaaðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 2026

Málsnúmer 202605247Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundarboð vegna aukaaðalfundar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sem haldinn verður fimmtudaginn 4. júní 2026 klukkan 11.30 í Þingmúla, hótel Valaskjálf á Egilsstöðum.
Lagt fram til kynningar.

9.Málefnasamningur meirihluta sveitarstjórnar Múlaþings 2026 til 2030

Málsnúmer 202605202Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar málefnasamningur B- og D-lista fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
Lagt fram til kynningar.

10.Samgönguáætlun 2026 - 2040

Málsnúmer 202512034Vakta málsnúmer

Fyrir liggur nefndarálit um tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030 frá meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar á Alþingi, dagsett 29. maí 2026.
Til máls tóku: Berglind Harpa Svavarsdóttir, Lárus Bjarnason, Jónína Brynjólfsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Einar Freyr Guðmundsson, Eiður Ragnarsson, Berglind Harpa, Glúmur Björnsson, Þórey Birna Jónsdóttir, Ívar Karl Hafliðason.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings lýsir yfir miklum vonbrigðum með nefndarálit meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dagsett 29. maí 2026, vegna tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040. Þrátt fyrir skýr og rökstudd varnaðarorð sveitarfélaga og hagsmunaaðila á Austurlandi er ljóst að nefndin hefur kosið að líta fram hjá alvarlegri stöðu innviða í fjórðungnum. Austurland er áfram skilgreint sem afgangsstærð í samgöngubótum ríkisins.

Sveitarstjórn telur það til marks um tómlæti að helsta breytingin sem lögð er til á Austurlandi sé sú að færa fjármuni sem áður voru eyrnamerktir hringtorgi á Egilsstöðum yfir í fjallveginn um Öxi. Þessi tilfærsla dugar skammt til að koma raunverulegum framkvæmdum um nýjan veg um Öxi af stað.

Þá er það óásættanlegt að meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar ávarpi ekki Fjarðarheiðargöng með afgerandi hætti. Fjarðarheiðargöng eru ekki einkamál Múlaþings heldur öryggismál fyrir landið allt auk þess að vera gátt Íslands til Evrópu. Þá eru göngin fyrsti áfangi í hringtengingu samgangna á Austurlandi til eflingar atvinnulífs og samfélags. Að fresta eða þoka þeim framkvæmdum óskilgreint inn í framtíðina eru svik á gefnum loforðum ríkisvaldsins sem ekki verður við unað.

Sveitarstjórn fagnar þó því að horfið sé frá lækkun á mótframlagi ríkisins til hafnarframkvæmda í Múlaþingi og að hægt verði þar með að hefja mikilvægar framkvæmdir við lengingu Strandabakka strax á næsta ári. Einnig er því fagnað að auknum fjármunum verði varið til vetrarþjónustu og bindur sveitarstjórn Múlaþings vonir við að þá skapist rými til að koma á sjö daga vetrarþjónustu yfir Vatnsskarð til Borgarfjarðar eystra og loks verði hægt að taka G-reglu af Axarvegi og setja á fasta opnunardaga allan veturinn.

Sveitarstjórn Múlaþings skorar á alþingismenn allra flokka að sýna ábyrgð og réttlæti á lokametrum þingmálsins. Þingsályktunartillögunni verður að breyta áður en hún verður afgreidd frá Alþingi þannig að stórframkvæmdir á Austurlandi; Fjarðarheiðargöng, raunveruleg flýting Axarvegar og efling Egilsstaðaflugvallar verði tryggðar á fyrsta tímabili áætlunarinnar.

Sveitarstjóra er falið að koma þessari bókun á framfæri við alla alþingismenn, forsætisráðherra, innviðaráðherra og fjármálaráðherra.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 14:21.

Getum við bætt efni þessarar síðu?