Við upphaf máls vakti formaður (ÞKS) máls á mögulegu vanhæfi sínu og færði rök fyrir því. Formaður bar tillöguna upp til atkvæðagreiðslu og var hún samþykkt samhljóða.
Einnig vakti fulltrúi (GBH) máls á mögulegu vanhæfi sínu og færði rök fyrir því. Formaður bar tillöguna upp til atkvæðagreiðslu og var hún felld með öllum atkvæðum.
ÞKS vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins. Varaformaður (ÞBJ) fór með stjórn fundar í fjarveru hennar.
Fyrir ráðinu liggur erindi frá Þebu Björt Karlsdóttur Blöndal, dags. 7. júní 2026 þar sem óskað er eftir því að hverfisvernd í landi Múla 1 í Álftafirði, neðan þjóðvegar, verði aflétt í nýju Aðalskipulagi Múlaþings 2025-2045 sem nú er í auglýsingu.
Fyrirliggjandi erindi er vísað til yfirstandandi auglýsingar nýs Aðalskipulags Múlaþings 2025-2045 og verður afstaða tekin til þess samhliða þeirri málsmeðferð.