Fara í efni

Skipulagsbreytingar í grunnskólum

Málsnúmer 202606099

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 162. fundur - 15.06.2026

Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu um breytingar á stjórnskipulagi grunnskóla Múlaþings fyrir skólaárið 2026-2027.
Fjölskylduráð samþykkir tillögurnar og vísar þeim til staðfestingar hjá sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Sveitarstjórn Múlaþings - 70. fundur - 01.07.2026

Fyrir liggja tillögur sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu um breytingar á stjórnskipulagi grunnskóla Múlaþings fyrir skólaárið 2026 til 2027. Tillögurnar fela í sér að ekki verði starfandi aðstoðarskólastjórar í Egilsstaðaskóla, Fellaskóla og Djúpavogsskóla á skólaárinu. Fjölskylduráð samþykkti tillögurnar á 162. fundi sínum 15. júní 2026 og vísaði þeim til staðfestingar hjá sveitarstjórn.
Til máls tók: Jónína Brynjólfsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tillögur um breytingar á stjórnskipulagi grunnskóla Múlaþings fyrir skólaárið 2026 til 2027.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?