Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

162. fundur 15. júní 2026 kl. 09:00 - 12:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Einar Freyr Guðmundsson varaformaður
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Guðgeir Einarsson aðalmaður
  • Erlingur Hjörvar Guðjónsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Sigríður Lára Sigurjónsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Stefanía Malen Stefánsdóttir grunnskólafulltrúi
  • Marta Wium Hermannsdóttir leikskólafulltrúi
  • Ingibjörg Jónsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri velferðar á fjölskyldusviði
Áheyrnarfulltrúar grunnskóla, Ásgrímur Ingi Arngrímsson og Karen Sveinsdóttir, sátu fundinn undir liðum 1 - 4. Áheyrnarfulltrúar leikskóla, Kolbrún Nanna Magnúsdóttir, Hugrún Malmquist Jónsdóttir og Dagur Rafnsson, sátu fundinn undir liðum 5 - 9. Þorbjörg Sandholt, Viðar Jónsson, Ásgrímur Ingi Arngrímsson, Margrét Dögg Guðgeirsdóttir og Þórunn Óladóttir fylgdu lið 4. Anna Birna Einarsdóttir, Guðrún Sigríður Sigurðardóttir, Þórunn Óladóttir, Kolbrún Nanna Magnúsdóttir og Heiðdís Ragnarsdóttir fylgdu eftir lið 5.
Ásgrímur Ingi Arngrímsson fylgdi eftir erindi sínu undir lið 6.

1.Ársskýrsla grunnskóla Múlaþings skólaárið 2025 - 2026

Málsnúmer 202606075Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar ársskýrsla grunnskóla Múlaþings, vegna skólaársins 2025 - 2026.
Lagt fram til kynningar.

2.Skólapúlsinn í grunnskólum Múlaþings skólaárið 2025 - 2026

Málsnúmer 202605186Vakta málsnúmer

Fyrir liggja niðurstöður kannana Skólapúlsins í grunnskólum Múlaþings vegna skólaársins 2025-2026.
Lagt fram til kynningar.

3.Skipulagsbreytingar í grunnskólum

Málsnúmer 202606099Vakta málsnúmer

Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu um breytingar á stjórnskipulagi grunnskóla Múlaþings fyrir skólaárið 2026-2027.
Fjölskylduráð samþykkir tillögurnar og vísar þeim til staðfestingar hjá sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Starfsáætlanir grunnskóla 2026-2027

Málsnúmer 202604095Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til samþykktar starfsáætlanir grunnskóla Múlaþings vegna skólaársins 2026-2027. Skólastjórar grunnskólanna mættu á fundinn og kynntu sínar starfsáætlanir.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Starfsáætlanir leikskóla, skólaárið 2026 - 2027

Málsnúmer 202606052Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til samþykktar starfsáætlanir leikskóla í Múlaþingi fyrir skólaárið 2026-2027. Skólastjórar leikskólanna mættu á fundinn og kynntu sínar starfsáætlanir.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Opnunartími leikskólans í Brúarási skólaárið 2026-2027

Málsnúmer 202606080Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Ásgrími Inga Arngrímssyni, skólastjóra í Brúarásskóla, dagsett 10. júní 2026, varðandi opnunartíma leikskólans á næsta skólaári.
Fjölskylduráð samþykkir framlagða tillögu skólastjóra um breytingu á opnunartíma leikskólans í Brúarási. Næsta skólaár verður leikskólinn opinn til kl. 16:00 mánudaga til fimmtudaga en opnunartími á föstudögum verður óbreyttur, til kl. 14:10.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Ársskýrsla leikskóla Múlaþings, skólaárið 2025-2026

Málsnúmer 202606078Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar ársskýrsla leikskóla í Múlaþingi vegna skólaársins 2025-2026.
Lagt fram til kynningar.

8.Skólapúlsinn í leikskólum Múlaþings, skólaárið 2025-2026

Málsnúmer 202606077Vakta málsnúmer

Fyrir liggja niðurstöður kannana Skólapúlsins í leikskólum Múlaþings vegna skólaársins 2025-2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Starfsumhverfi leikskóla

Málsnúmer 202602258Vakta málsnúmer

Fyrir liggja tillögur til umfjöllunar frá starfshópi um breytingar á skipulagi og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi. Starfshópurinn hefur nú lokið störfum.
Fjölskylduráð ræddi tillögurnar og þakkar starfshópnum fyrir störf sín.

Fjölskylduráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram og óska eftir umsögnum frá heimastjórnum Múlaþings, stéttarfélögum, foreldraráðum leikskóla, starfsmönnum leikskóla og öðrum hagaðilum, áður en málið verður lagt aftur fyrir ráðið til frekari umfjöllunar og síðar afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

10.Framtíðaruppbygging Íþróttamiðstöðvar á Egilsstöðum

Málsnúmer 202511028Vakta málsnúmer

Starfshópur um framtíð íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum hefur starfað samkvæmt erindisbréfi sem samþykkt var á 169. fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs. Vegna sveitarstjórnarkosninga og upphafs nýs kjörtímabils þarf að endurskipa í starfshópinn. Fjölskylduráð skal tilnefna tvo fulltrúa í starfshópinn og tvo til vara.
Máli frestað um viku.

Fundi slitið - kl. 12:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?