Fara í efni

Samráðshópur fatlaðs fólks

Málsnúmer 202606140

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 163. fundur - 22.06.2026

Samráðshópur fatlaðs fólks er vettvangur sem hefur það hlutverk að stuðla að samráði, miðlun upplýsinga og virkri þátttöku fatlaðs fólks í málefnum sem það varða. Í samráðshópnum sitja fulltrúar úr hagsmunasamtökum fatlaðs fólks, starfsmenn sveitarfélagsins og kjörnir fulltrúar.
Fjölskylduráð felur starfsmanni að óska eftir tilnefningum frá hagsmunasamtökum fatlaðs fólks á þjónustusvæðinu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fjölskylduráð Múlaþings - 165. fundur - 24.08.2026

Á fundi sveitarstjórnar þann 3. júní sl. var fjölskylduráði falið að kalla eftir tilnefningum frá hagsmunasamtökum fatlaðs fólks á þremur aðalfulltrúum og þremur varafulltrúum í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks.
Fyrir liggja tilnefningar frá Þroskahjálp og ÖBÍ í samráðshópinn. Þroskahjálp tilnefnir tvo aðalfulltrúa, Kolbrúnu Erlu Pétursdóttur og Matthías Þór Sverrisson, og einn varafulltrúa, Ásdísi Snjólfsdóttur. ÖBÍ tilnefnir einn aðalfulltrúa, Arnar Ágúst Sigríðarson og tvo varafulltrúa, Guðna Sigmundsson og Fanneyju Sigurðardóttur.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?