Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

165. fundur 24. ágúst 2026 kl. 09:00 - 11:05 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Guðgeir Einarsson aðalmaður
  • Erlingur Hjörvar Guðjónsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Guðný Lára Guðrúnardóttir varamaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson varafulltrúi
  • Erla Gunnlaugsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
  • Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
  • Anna Steinunn Árnadóttir deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri velferðar á fjölskyldusviði

1.Frumkvæðisathugun GEV á stöðu fósturbarna á Íslandi

Málsnúmer 202603193Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV), sem gefin var út í júlí 2026, um eftirlit barnaverndarþjónusta með börnum í fóstri á Íslandi.
Sviðsstjóri velferðar fór yfir niðurstöður skýrslunnar og það verklag sem Barna- og fjölskylduvernd Múlaþings fylgir í störfum sínum. Nú er unnið að yfirferð og umbótum gæðaskjala, m.a. til að tryggja að verkferlar séu skjalfestir og endurspegli með fullnægjandi hætti framkvæmd og lögbundnar skyldur starfseminnar, þ.a.m. barna- og fjölskylduverndar. Sviðsstjóra velferðar er falið að vinna verkefnið áfram.

2.Ársfundur StarfA, starfsendurhæfingar Austurlands

Málsnúmer 202604036Vakta málsnúmer

Fyrir liggur ársskýrsla, ársreikningur og fundargerð frá ársfundi Starfsendurhæfingar Austurlands (StarfA) sem haldinn var á Egilsstöðum 29. apríl síðastliðinn.
Lagt fram til kynningar.

3.Faghópur um úthlutun menningarstyrkja

Málsnúmer 202606200Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að skipa einn fulltrúa úr fjölskylduráði í faghóp um úthlutun menningarstyrkja Múlaþings. Í faghópnum munu sitja deildarstjóri menningarmála, fulltrúi frá byggðaráði og fulltrúi frá fjölskylduráði.
Fjölskylduráð skipar Jóhann Hjalta Þorsteinsson sem fulltrúa ráðsins í faghóp um úthlutun menningarstyrkja.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Samráðshópur fatlaðs fólks - tilnefningar fulltrúa

Málsnúmer 202606140Vakta málsnúmer

Á fundi sveitarstjórnar þann 3. júní sl. var fjölskylduráði falið að kalla eftir tilnefningum frá hagsmunasamtökum fatlaðs fólks á þremur aðalfulltrúum og þremur varafulltrúum í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks.
Fyrir liggja tilnefningar frá Þroskahjálp og ÖBÍ í samráðshópinn. Þroskahjálp tilnefnir tvo aðalfulltrúa, Kolbrúnu Erlu Pétursdóttur og Matthías Þór Sverrisson, og einn varafulltrúa, Ásdísi Snjólfsdóttur. ÖBÍ tilnefnir einn aðalfulltrúa, Arnar Ágúst Sigríðarson og tvo varafulltrúa, Guðna Sigmundsson og Fanneyju Sigurðardóttur.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Kynning á starfsemi fjölskyldusviðs - Málefni fatlaðs fólks

Málsnúmer 202606038Vakta málsnúmer

Anna Steinunn Árnadóttir, deildarstjóri málefna fatlaðs fólks, kynnti starfsemi og helstu verkefni deildarinnar fyrir fjölskylduráði.
Fjölskylduráð þakkar Önnu Steinunni fyrir upplýsandi kynningu.

6.Skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla sviðsstjóra velferðar.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:05.

Getum við bætt efni þessarar síðu?