Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

163. fundur 22. júní 2026 kl. 09:00 - 12:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Einar Freyr Guðmundsson varaformaður
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Guðgeir Einarsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Erlingur Hjörvar Guðjónsson aðalmaður
  • Sigríður Lára Sigurjónsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
  • Helga Þórarinsdóttir deildarstjóri í félagslegri ráðgjöf
  • Anna Steinunn Árnadóttir deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks
  • Þórey Hákonardóttir ráðgjafi í málefnum eldra fólks
Fundargerð ritaði: Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar

1.Málefni fjölskylduráðs, framkvæmd og skipulag funda

Málsnúmer 202606037Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til samþykktar drög að fundadagatali fjölskylduráðs tímabilið júní 2026 - maí 2027.
Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi fundardagatal.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Húsnæðismál Stólpa

Málsnúmer 202601108Vakta málsnúmer

Á 151. fundi fjölskylduráðs var kynnt minnisblað er varðar aðstöðu fyrir Stólpa og var sviðsstjóra velferðar falið að vinna málið áfram.
Kynnt var staða þarfagreiningar vegna Stólpa. Formanni fjölskylduráðs er falið að vinna áfram að málinu ásamt starfsmanni.
Málið í vinnslu.

3.Samráðshópur fatlaðs fólks

Málsnúmer 202606140Vakta málsnúmer

Samráðshópur fatlaðs fólks er vettvangur sem hefur það hlutverk að stuðla að samráði, miðlun upplýsinga og virkri þátttöku fatlaðs fólks í málefnum sem það varða. Í samráðshópnum sitja fulltrúar úr hagsmunasamtökum fatlaðs fólks, starfsmenn sveitarfélagsins og kjörnir fulltrúar.
Fjölskylduráð felur starfsmanni að óska eftir tilnefningum frá hagsmunasamtökum fatlaðs fólks á þjónustusvæðinu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Virk efri ár í Múlaþingi

Málsnúmer 202604149Vakta málsnúmer

Þórey Hákonardóttir, ráðgjafi í málefnum eldra fólks, kynnti drög að verkefninu Virk efri ár í Múlaþingi, sem er verkefni er varðar heilsueflingu á efri árum.
Fjölskylduráð þakkar Þóreyju Hákonardóttur fyrir kynninguna. Málið áfram í vinnslu.

5.Stafrænt samstarf í velferðarþjónustu

Málsnúmer 202606100Vakta málsnúmer

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga, fyrir hönd sveitarfélaga landsins, gerðu í nóvember síðastliðnum samstarfssamning um öflun og nýtingu gagna í félagsþjónustu og stafræna þróun hins opinbera á því sviði.
Lagt fram til kynningar.

6.Kynning á starfsemi velferðar á fjölskyldusviði Múlaþings

Málsnúmer 202606038Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri velferðar kynnti starfsemi sviðsins og veitti yfirlit yfir helstu verkefni, áherslur og þjónustu. Jafnframt var farið yfir þær starfseiningar sem heyra undir sviðið.
Fjölskylduráð þakkar sviðsstjóra velferðar fyrir kynninguna.

7.Framtíðaruppbygging Íþróttamiðstöðvar á Egilsstöðum

Málsnúmer 202511028Vakta málsnúmer

Starfshópur um framtíð Íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum hefur starfað samkvæmt erindisbréfi sem samþykkt var á 169. fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs. Vegna sveitarstjórnarkosninga og upphafs nýs kjörtímabils, þarf að endurskipa í starfshópinn.
Fjölskylduráð tilnefnir Jónínu Brynjólfsdóttur og Erling Hjörvar Guðjónsson sem aðalmenn og Herdísi Mögnu Gunnarsdóttur og Jóhann Hjalta Þorsteinsson sem varamenn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Skýrsla Ríkisendurskoðunar - Farsæld barna

Málsnúmer 202606141Vakta málsnúmer

Fyrir liggur úttekt Ríkisendurskoðunar á innleiðingu og framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Lagt fram til kynningar.

9.Fundagerðir Farsældarráðs á Austurlandi

Málsnúmer 202601225Vakta málsnúmer

Fyrir liggur 3. fundargerð Farsældarráðs Austurlands, dagsett 13. apríl 2026.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?